Fréttablaðið - 14.01.2006, Síða 8

Fréttablaðið - 14.01.2006, Síða 8
8 14. janúar 2006 LAUGARDAGUR SKIPT_um stíl INNFLYTJENDUR Hvergi á landinu eru erlendir ríkisborgarar hærra hlutfall af íbúafjölda en á Aust- fjörðum. Þar eru heil 17 prósent íbúa með erlent ríkisfang meðan hlutfallið á landsvísu er 4,5 pró- sent og hefur aldrei verið hærra eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær. Þessar tölur eiga vel að merkja aðeins við um innflytjendur sem enn halda sínu erlenda ríkisfangi. Í raun eru innflytjendur mun fleiri því fjölmargir hafa fengið íslenskan ríkisborgararétt gegn- um árin og hætta því að teljast erlendir ríkisborgarar. Hjá Hag- stofu Íslands liggja ekki fyrir tölur um heildarfjölda innflytj- enda en giskað er á að talan geti verið nálægt tuttugu þúsundum þegar allt er reiknað. Austfirðir skera sig úr að öðru leyti eins og meðfylgjandi tafla Hagstofunnar ber með sér en þar má sjá að karlmenn með erlent ríkisfang eru hvorki fleiri né færri en tuttugu og fimm af hundraði allra karla á svæðinu. Fjórði hver karlmaður á Austfjörðum er því erlendur ríkisborgari. Vestfirðir skera sig líka úr að nokkru leyti en þar er hlutfall erlendra ríkis- borgara nokkru hærra en lands- meðaltalið en kynjahlutfallið er öfugt miðað við Austfirði, það eru fleiri erlendar konur fyrir vestan en karlar. - ssal Austfirðir skera sig úr í fjölda innflytjenda: Fjórði hver karl er útlendur HLUTFALL ERLENDRA RÍKISBORG- ARA EFTIR KYNI OG LANDSVÆÐUM Alls Karlar Konur Höfuðborgarsvæði utan Reykjavíkur 2,7 2,7 2,7 Reykjavík 4,7 4,6 4,8 Suðurnes 5,0 5,2 4,9 Vesturland 4,6 4,9 4,2 Vestfirðir 6,2 5,8 6,6 Norðurland vestra 2,7 2,1 3,3 Norðurland eystra 2,3 2,0 2,5 Austurland 16,9 24,6 6,4 Suðurland 4,5 4,1 4,9 ALLS 4,5 5,0 4,1 DANMÖRK Danski Jafnaðarmanna- flokkurinn, ásamt flokki rót- tækra, vill að danska herliðið í Írak verði kallað heim í sumar. Formaður flokksins, Helle Thorn- ing-Schmidt, segir að Danir, eins og aðrar þjóðir sem hafi sent herl- ið til Íraks, verði að endurskoða áframhaldandi hersetu í landinu. Anders Fogh Rasmussen, for- sætisráðherra Dana, lét hafa eftir sér í dagblaðinu Berlingske Tidende að þessi stefnubreyt- ing jafnaðarmanna sé tilkomin vegna þrýstings frá vinstri armi flokksins og ekki síst frá for- manninum fyrrverandi, Mogens Lykketoft. - ks Danskir jafnaðarmenn: Vilja herinn heim frá Írak VEISTU SVARIÐ 1Hver er formaður Kaupmannafé-lags Akureyrar? 2Hvernig fór æfingleikur Íslands og Noregs í handknattleik? 3Í hvaða landi var farið fram á 17 þúsund ára fangelsi yfir herfor- ingja? SVÖR Á BLS. 54 SÁDI-ARABÍA, AP Það voru allt að 600.000 pílagrímar sem í fyrradag reyndu að komast að múslima- helgistaðnum al-Jamarat í Mina utan við Mekka þegar ósköpin dundu yfir í fyrradag, á síðasta degi Hajj-pílagrímahátíðarinnar. Í mannþrönginni sem mjakaðist í gegnum innganginn að svæðinu voru fjórir menn á fermetra. Við þessar aðstæður þurfti ekki meira til en að nokkrum í þrönginni yrði fótaskortur á farangri í gangveg- inum til að hrinda af stað hóp- troðningi sem endaði með því að 363 manns, þar af að minnsta kosti 85 konur, tróðust undir. Talsmaður sádi-arabíska inn- anríkisráðuneytisins, Mansour al-Turki, sagði á blaðamannafundi í gær að lögregla á staðnum hefði gripið til aðgerða til að dreifa mannfjöldanum um leið og troðn- ingurinn hófst. Lögreglan reyndi sitt besta til að sjá til þess að píla- grímarnir bæru ekki farangur á sér um svæðið, einmitt vegna hættunnar á að fólk dytti um hann, en erfitt væri við það að eiga þegar fjöldinn væri svona mikill. - aa LEITA ÁSTVINA Fjölskylda frá Malasíu skoðar í gær mynd af móðurinni Ruspita Lubis, sem var meðal þeirra sem tróðust undir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP 363 manns létu lífið í troðningnum í Sádi-Arabíu: 600.000 voru í mannþrönginni

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.