Fréttablaðið - 14.01.2006, Qupperneq 20
14. janúar 2006 LAUGARDAGUR20
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að
ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Sigríður Ólafsdóttir
Lágholti 6, Mosfellsbæ,
lést 13. janúar í Víðinesi. Jarðarförin auglýst síðar.
F.h. aðstandenda,
Kristján Þorgeirsson.
HUMPHREY BOGART (1899-
1957) LÉST ÞENNAN DAG.
„Ég fæddist þegar
þú kysstir mig. Ég dó
þegar þú yfirgafst mig.
Ég lifði í fáeinar vikur
meðan þú elskaðir
mig.“
Bandaríski kvikmyndaleikarinn
Humphrey Bogart var og er
dáður. Hann er einna þekktastur
fyrir hlutverk sitt í Casablanca.
MERKISATBURÐIR
1742 Edmond Halley uppgötvaði
halastjörnuna sem nú er
nefnd eftir honum.
1918 Læknafélag Íslands er
stofnað.
1976 Ólafur Jóhann Sigurðsson
hlýtur bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs, fyrstur
Íslendinga.
1978 Punkhljómsveitin Sex
Pistols heldur sína síðustu
tónleika.
1984 Páfi staðfestir helgi Þorláks
biskups Þórhallssonar og
viðurkennir hann sem
verndardýrling íslensku
þjóðarinnar.
2002 Lýst er yfir að Bretland
sé loks laust við gin- og
klaufaveiki.
Á þessum degi árið 1954 gengu
í hjónaband kynbomban og
leikkonan Marilyn Monroe og
hafnaboltahetjan Joe DiMaggio.
Þau hittust fyrst snemmma
árið 1952. Þá hafði DiMaggio
nýlega lagt skóna á hilluna og
vildi ólmur fá að hitta hina fögru
dömu eftir að hann sá mynd af
henni sitja fyrir á hafnabolta-
velli. Stuttu eftir hinn fyrsta fund
blómstraði ástin.
Þau giftu sig í San Fransisco
og varð brúðkaupið forsíðufrétt
víða um veröld. Einn galli var
þó á gjöf Njarðar. DiMaggio var
öfundsjúkur vegna vinsælda
Marilyn meðal annarra karl-
manna. Helsta ósk hans var að
lifa utan sviðsljóssins en frægð-
arstjarna konu hans var rétt byrj-
uð að rísa.
Við hina frægu loftræsti-
myndatöku, fyrir myndina The
Seven Year Itch sem tekin var fyrir
utan Trans-Lux leikhúsið í New
York þar sem vindurinn feykir
pilsi Monroes aftur og aftur upp
þannig að sést í hvít undirfötin,
sat DiMaggio fýldur hjá meðan
um tvö þúsund manns fylgdust
spenntir með konu hans í nærri
tvo tíma. Að lokum gekk hann
ævareiður út af tökustað. Síðar
heyrðist mikið rifrildi frá hótel-
herbergi þeirra hjóna og tveimur
vikum síðar skildu Marilyn og Joe
að borði og sæng.
ÞETTA GERÐIST > 14. JANÚAR 1954
Marilyn Monroe giftist Joe DiMaggio
MONROE OG DIMAGGIO
Í dag, 14. janúar, eru liðin 30 ár
síðan Ólafur Jóhann Sigurðsson
rithöfundur hlaut Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs, fyrstur Íslendinga.
Verðlaunin hlaut hann fyrir ljóðabækur
sínar Að laufferjum sem kom út 1972 og
Að brunnum sem kom út tveimur árum
síðar.
Ólafur Jóhann fæddist í september
1918 í Hlíð á Álftanesi en fluttist ungur
í Grafninginn þar sem hann ólst upp.
Fimmtán ára hleypti hann heimdraganum
og flutti til Reykjavíkur.
Ritstörf voru Ólafi Jóhanni snemma
hugleikin og er hermt að hann hafi nánast á
barnsaldri ákveðið að verða rithöfundur.
Hann var að mestu sjálfmenntaður en
fór til Kaupmannahafnar og var þar
undir verndarvæng Jóns Helgasonar
prófessors. Síðar fór hann til ársdvalar
til Bandaríkjanna og sótti fyrirlestra um
nútímabókmenntir og skáldsagnaritun í
Columbia háskóla í New York.
Barnasagan Við Álftavatn sem kom
út 1934 var hans fyrsta verk en tveimur
árum síðar sendi hann frá sér sína
fyrstu bók fyrir fullorðna, Skuggarnir
af bænum.
Framan af ferli sínum sinnti
Ólafur Jóhann ýmsum aukaverkum,
meðal annars vann hann við múrverk,
blaðamennsku og hjá útgáfufélaginu
Helgafelli og síðar annaðist hann
prófarka- og handritalestur fyrir
útgáfufyrirtæki.
Ólafur Jóhann var afkastamikill
rithöfundur og sendi frá sér fjölda
skáldsagna, smásagna og ljóða
um ævina. Þó að hann hafi hlotið
Bókmenntaverðlaunin fyrir ljóð eru
smásögur og skáldsögur talin höfuðverk
hans. Helst er þar nefnd skáldsagan
Gangvirkið en í henni segir af Páli
Jónssyni blaðamanni sem flyst á mölina
en líkar þar lífið illa. Um Pál fjallar
Ólafur Jóhann líka í bókunum Seiður og
hélog og Drekum og smáfuglum.
Fjölmörg verk hans hafa verið þýdd,
til dæmis á kínversku, rússnesku og
esperanto. Þá þýddi hann sjálfur erlend
bókmenntaverk yfir á íslensku, til dæmis
Mýs og menn eftir John Steinbeck.
Ólafur Jóhann bar óendanlega
virðingu fyrir íslensku máli og notaði
hreint og fágað tungutak í bókum
sínum. Félagslegt raunsæi einkennir
flest verka hans.
Ólafur Jóhann kvæntist Önnu
Jónsdóttur árið 1943 og eignuðust þau
synina Jón, haffræðing, og Ólaf Jóhann,
rithöfund og athafnamann í New York.
Á þeim þrjátíu árum sem liðin
eru frá því að Ólafur Jóhann hlaut
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
hafa fimm aðrir Íslendingar hlotið
þau. Snorri Hjartarson 1981,
Thor Vilhjálmsson 1988, Fríða Á.
Sigurðardóttir 1992, Einar Már Guð-
mundsson 1995 og Sjón á síðasta ári.
Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1962.
ÓLAFUR JÓHANN SIGURÐSSON RITHÖFUNDUR Fluttist fimmtán ára til Reykjavíkur til að sinna ritstörfum.
ÓLAFUR JÓHANN: HLAUT BÓKMENNTAVERÐLAUN NORÐURLANDARÁÐS FYRIR 30 ÁRUM
Ákvað nánast á barnsaldri
að verða rithöfundur
ANDLÁT
Jórunn Róbertsdóttir lést á
sjúkrahúsi mánudaginn 26.
desember. Útförin fór fram í
Lyngby, Danmörku, föstudaginn
6. janúar.
Víkingur Guðmundsson,
Grænhóli, Akureyri, andaðist á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
miðvikudaginn 11. janúar.
Dagmar Ingólfsdóttir, Álftamýri
58, Reykjavík, lést á hjúkrunar-
heimilinu Eir þriðjudaginn 10.
janúar.
JARÐARFARIR
10.30 Jón Árni Jónsson frá
Eyrarbakka, Brekastíg 36,
Vestmannaeyjum, verður
jarðsunginn frá Landakirkju.
11.00 Gestur Ingvi Kristinsson,
Torfnesi, Hlíf 1, Ísafirði, áður
Hlíðarvegi 4, Suðureyri,
verður jarðsunginn frá
Ísafjarðarkirkju.
11.00 Sigurbjörg Guðmunds-
dóttir, Víðigrund 4, Sauðár-
króki, verður jarðsungin frá
Sauðárkrókskirkju.
14.00 Björn Þórðarson, áður
Hafnargötu 6, Siglufirði,
verður jarðsunginn frá
Siglufjarðarkirkju.
14.00 Helgi Runólfsson bifreiða-
stjóri, Ánahlíð 12, Borgar-
nesi, verður jarðsunginn frá
Borgarneskirkju.
14.00 Hulda Ingimars frá
Þórshöfn, verður jarðsett á
Þórshöfn.
14.00 Ingólfur Gunnarsson,
Valþjófsstað II í Fljótsdal,
verður jarðsunginn frá
Valþjófsstaðakirkju.
14.00 Snæbjörn Stefánsson,
Stangarholti 3, verður jarð-
sunginn frá Reykholtskirkju
í Borgarfirði.
14.00 Svanlaug Pétursdóttir
frá Sauðárkróki, verður
jarðsungin frá Sauðárkróks-
kirkju.
AFMÆLI
Bóas Hallgrímsson
tónlistarmaður er
26 ára.
Ingvi Hrafn Óskars-
son aðjúnkt er 32 ára.
Sigurður Svavarsson,
útgáfustjóri Eddu,
er 52 ára.
Tryggvi Felixson,
framkvæmdastjóri
Landverndar,
er 51 árs.
Jón Reykdal
listmálari er 61 árs.
Einar Hákonarson
listmálari er 61 árs.
FÆDDUST ÞENNAN DAG
Handbók Ferðamálastofu
fyrir árið 2006 er komin út.
Þetta er viðamikið rit þar sem
finna má upplýsingar um vel
á annað þúsund ferðaþjón-
ustuaðila um allt land. Einnig
er að finna í bókinni ýmsar
hagnýtar upplýsingar fyrir
ferðamenn.
Þar má meðal annars finna
lista yfir upplýsingamiðstöðv-
ar, ferðaskrifstofur, ferða-
skipuleggjendur, ræðismenn,
sendiráð, náttúruvernd-
arsvæði og fleira. Einnig má
finna lista yfir viðburði af
ýmsu tagi um allt land. Upp-
lýsingar um áætlunarferðir
á láði, lofti, legi, bílaleigur,
vegalendir milli staða og
möguleika á gistingu hvers
konar.
Í handbókinni er að finna
upptalningu á afþreyingu af
ýmsum toga, þar á meðal má
nefna flúðasiglingar, hesta-
ferðir og golfvelli auk upplýs-
inga um söfn og sýningarsali.
Handbókin er gefin út á
íslensku og ensku og gagnast
vel þeim sem starfa að skipu-
lagningu og upplýsingagjöf í
ferðaþjónustu.
Handbók Ferðamálastofu komin út
HANDBÓK 2006 Í bókinni má
finna hagnýtar upplýsingar fyrir
ferðamenn.
TRÚARLEGUR TROMMUSLÁTTUR
Heilagur maður af hindúatrú spilar
á damru, hefðbundið ásláttar-
hljóðfæri, við tjaldbúðir nálægt
Gangasagar, mynni árinnar Ganges.
AP/REUTERS
1886 Hugh Lofting
rithöfundur
1875 Albert Schweitz-
er, heimspekingur og
handhafi friðarverð-
launa Nóbels