Fréttablaðið - 14.01.2006, Side 24
14. janúar 2006 LAUGARDAGUR24
Ferð Dominik hófst ekki með neinum glæsibrag. Þegar hann lenti uppgötvaðist
að farangur leikstjórans hafði
misfarist. Auðvitað var Ísland í
essinu sínu og blés hressilega á
Moll sem sárvantaði gönguskóna
sína og úlpu enda vetur konugur
loksins farinn að herja á lands-
menn. Leikstjóranum seinkaði
því aðeins enda fannst allt hans
hafurtask fyrir rest. Hann kom
því skælbrosandi í húsnæði Alli-
ance Francaise, ánægður með að
vera loksins orðinn almennilega
skóaður.
Ferðalangur á Íslandi
Dominik Moll er ekki ókunnug-
ur Íslandi. Hann kom hingað í
frí fyrir tæpu ári ásamt kærustu
sinni. „Við leigðum okkur bíl og
keyrðum eftir suðurströnd lands-
ins. Alveg upp til Höfn,“ útskýrir
leikstjórinn og fær sopa af kaffinu
sem hafði verið hellt uppá í tilefni
af komu hans. „Þetta var mjög
þægilegt því við gátum stoppað
hvenær sem við sáum eitthvað
fallegt,“ segir hann og brosir.
Moll á þýskan pabba og franska
mömmu og bjó fyrstu ár ævi sinn-
ar í Baden - Baden sem er lítill bær
við Svartaskóg. Hann hefur þó
búið í Frakklandi síðustu tuttugu
árin. „Ég fékk fyrst áhuga á kvik-
myndagerð við sextán ára aldur
en hafði ekki hugmynd um hvort
þetta ætti að vera mitt lifibrauð,“
svara Moll þegar hann er spurður
af hverju kvikmyndagerð. „Mig
langaði alltaf til að vita hvernig
þær væru gerðar og vildi sjá sem
mest af þeim,“ bætir leikstjórinn
við. „Eftir framhaldsskóla flutt-
ist ég til Parísar og reyndi að
komast yfir þær kvikmyndir sem
mér hafði ekki tekist að sjá. Þýski
smábærinn bauð ekki uppá ýkja
mikið úrval,“ segir Moll og skellir
uppúr. „Mér fannst ég þurfa bæta
aðeins upp fyrir þetta tap.“
Þegar Moll hafði innritast í
háskóla í höfuðborginni rakst hann
á skiptinemaverkefni og sló til.
Hann fór til New York enda segist
Moll alltaf hafa verið mjög hrifinn
af Bandaríkjunum. „Þar skráði ég
mig í kvikmyndadeild City Coll-
ege New York borgar og áhuginn
var fljótur að kvikna,“ útskýrir
hann og það var ekki aftur snúið.
Þegar Moll snéri heim til Frakk-
lands skráði Dominik sig strax í
kvikmyndaháskólann þaðan sem
hann er útskrifaður 1987. „Við
tóku verkefni sem aðstoðarleik-
stjóri og klippari og þá aðallega
við heimildarmyndir.“
Sjálfsmorðsferðir læmingjans
Lemming er þriðja mynd Moll
í fullri lengd. Síðasta mynd hans,
Harry er hér til að hjálpa, sló í
gegn fyrir rúmum fimm árum
síðan. Hann segir að þær vinsæld-
ir hafi gert honum auðveldara um
vik til að fjármagna þessa mynd.
Hann segir hins vegar að sköp-
unarferlið sé alltaf jafn snúið.
„Maður er jú alltaf að reyna að
bæta sig,“ segir Dominik og hlær.
„Það þarf að fínpússa hin og þessi
smáatriði og svo framvegis,“
bætir hann við.
Myndin segir frá ungu pari,
Alain og Bendedicte, sem eru flutt
í nýtt hverfi vegna vinnu manns-
ins. Eina nóttina finnur Alain
læmingja í vatnslásnum og eftir
það hefst undarleg atburðarrás.
„Ég veit eiginlega ekki hvaðan
þessi hugmynd er kominn,“ segir
Dominik og brosir. „Það laust
allt í einu mynd í kollinn á mér
af manni sem finnur læmingja.
Ég vissi ekki hvert framhaldið
yrði en fannst þetta góð byrjun,“
útskýrir hann. Þá var Moll ekki
síður hrifinn af goðsögunni um
sjálfsmorðsferðir nagdýrsins en
sagan segir að þegar dýrið hefur
náð ákveðnum fjölda fremji það
fjöldasjálfsmorð. „Þetta er auðvit-
að ekki rétt en það hefur ekki enn
tekist að útskýra hegðun læm-
ingjans til fullnustu,“ segir Moll.
„Mest spennandi var hins vegar
að læmingjar búa ekki í Frakk-
landi og Frakkar vita lítið sem
ekkert um þetta dýr,“ segir leik-
stjórinn og er augljóslega kom-
inn á flug. „Aðalsögupersónan
er náungi sem telur hamingjuna
felast í því að hafa stjórn á öllu
en óþekkt nagdýr kemur honum í
opna skjöldu,“ segir Moll. Þá vildi
hann einnig tefla saman ungu pari
sem hefði framtíðina fyrir sér og
eldri hjónum sem lífið hefði leikið
grátt.
Tónlist spilar stóra rullu í
myndinni því hún er notuð til að
koma áhorfandanum úr jafnvægi.
Hún er þó ekki fyrirferðarmikil
hvað tíma varðar. „Hún kemur
kannski ekki fyrir nema í tuttug
mínútur í heildina en ég nota hana
til að byggja upp ákveðna spennu
eða mynda eitthvað andrúmsloft,“
segir Dominik en oft eru kvik-
myndahúsagestir orðnir smeykir
án þess að einhver ástæða sé til
þess.
Vill ekki vinna í
draumasmiðjunni
Lemming var opnunarmyndin á
Cannes og segir Moll að hátíðin sé
mjög mikilvæg fyrir kvikmynd-
ina. „Hún er mjög mikilvæg uppá
dreifingu mynda og auðveldar
manni leið inná alþjóðlegan mark-
að,“ segir hann. „Fyrst og fremst
er þetta þó mikil viðurkenning.“
Gagnrýnendur hafa margir
hverjir líkt Lemming við verk
bandaríska leikstjórans David
Lynch. Moll tekur þó ekki undir
þá líkingu nema að litlu leyti en
viðurkennir að Lynch hafi haft
áhrif á sig. „Hann nýtti sér mörk
veruleikans og óraunveruleikans
til hans ýtrasta og var frumkvöð-
ull í að leika sér með það sem
gerðist og það sem sögupersónur
héldu að gerðist,“ útskýrir Moll og
segist sjálfur hafa mjög gaman af
því að leika sér með þessi mörk.
„Kvikmyndaformið hentar mjög
vel til þess,“ segir Moll.
Framundan hjá Moll er verk-
efni sem byggt verður á tveimur
smásögum eftir bandaríska rit-
höfundinn TS Boyle. Moll segist
þó ekki vera á leiðinni í dæmi-
gerða Hollywood framleiðslu enda
segist hann ekki kæra sig um að
vera undir hælnum á einhverjum
kvikmyndaverum. „Ég vill frekar
gera kvikmyndir í óháða kvik-
myndageiranum en dæmigerða
Hollywood mynd,“ segir hann en
kaldhæðni örlaganna haga því
þannig til að næsta mynd hans
verður að vera tekin upp í Banda-
ríkjunum. Moll hefur ferðast um
allan heim til að kynna myndina
sína en hann segist reyna halda
ferðalögum sínum í lágmarki.
„Það er auðvitað gaman að koma
til framandi staða en maður fer
líka fljótt að endurtaka sig.“
freyrgigja@frettabladid.is
Franski leikstjórinn Dominik Moll er hér á landi
í tilefni af því að kvikmynd hans Lemming var
frumsýnd á frönsku kvikmyndahátíðinni sem
hófst á fimmtudaginn. Freyr Gígja Gunnarsson
ræddi við hann um kvikmyndagerð, David Lynch
og læmingja.
DOMINIK MOLL Heillaðist af goðsögunni um sjálfsmorðsferðir læmingja en þeir leika stórt hlutverk í nýjustu kvikmynd hans.
FRÉTTABLAÐIÐ / HARI
Læmingjaleikstjórinn
�������������������������������������������������������������������
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI