Fréttablaðið - 14.01.2006, Page 26
14. janúar 2006 LAUGARDAGUR26
Meðan stöku sóldýrkendur eru líklegir til að skála í kampavíni vegna þeirra
frétta að nú sé að hlýna á norður-
hveli jarðar, eru þeir mun fleiri
sem hafa þungar áhyggjur af þró-
uninni. Þeir svartsýnustu segja
aðeins tímaspursmál hvenær allt líf
á jörðinni tekur stökkbreytingum
með hörmulegum afleiðingum fyrir
allt mannkyn.
Þurfi einhverra frekari sann-
ana við nægir að skoða niðurstöð-
ur rannsókna undanfarinna ára á
trjáhringum, gömlum kóröllum og
borkjörnum úr jöklum sem taka af
allan vafa um að hitastig í heimin-
um hefur ekki verið hærra í þúsund
ár.
Fyrir milljónum manna víða um
heim blasa staðreyndirnar þegar
við. Inúítar í Kanada og á Grænlandi
hafa undanfarin ár upplifað bráðn-
un heimsskautaíss og hækkandi
hitastig. Fólk í Suður-Ameríku og
Suðaustur-Asíu upplifir mun oftar
storma, hvirfilbylji og mannskæð
flóð en áður tíðkaðist. Í Evrópu eru
skógareldar algengari en nokkru
sinni, hitabylgjur nánast árlegur
viðburður og bráðnun jökla fer ekki
fram hjá nokkrum manni. Á Íslandi
hefur hitastig sjávar hækkað með
þeim afleiðingum að fiskistofnar
sem áður veiddust víða kringum
landið finnast nú aðallega í kaldari
sjó fyrir norðan ef þeir þá finnast.
Gróðurhúsaáhrifin
Jörðin hefur að mati vísindamanna
aldrei áður hitnað jafn snögglega og
síðustu 30 árin á sama tíma og nátt-
úrufyrirbrigði á borð við hringrás
sólarinnar og eldgos ættu í raun að
lækka hitastig jarðar. Enginn vafi
leikur lengur á að athafnir manns-
ins hafa mikil áhrif á þær öru breyt-
ingar sem átt hafa sér stað.
Sívaxandi notkun á auðlindum
jarðarinnar er sá þáttur sem mest
áhrif hefur. Eyðing skóga losar
mikið magn koldíoxíðs út í andrúms-
loftið og það gerir öll brennsla á
kolum, olíu og gasi einnig. Koldíoxíð
er gastegund sem hindrar að orku-
ríkir geislar sólarinnar sleppi út úr
gufuhvolfinu svo hitastigið hækkar
líkt og gerist í gróðurhúsi. Hæfi-
lega mikil gróðurhúsaáhrif eru þó
nauðsynleg því ef þeirra nyti ekki
við í einhverjum mæli væri meðal-
hitastig á jörðinni -20°C í stað +15°.
Önnur efni eins og metan hafa enn
fremur mikil áhrif til hins verra.
Vísindamenn næstum einróma
Áætlað er að haldi sama þróun
áfram og verið hefur muni hitastig
á jörðinni hækka um tvær til fimm
gráður á þessari öld. Miðað við
þróunina í dag eru þær spár vart
fjarri lagi. Yfirstandandi ár er það
næstheitasta sem mælst hefur á
norðurhveli jarðar, en hitametið er
frá árinu 1998. Sumir vísindamenn
benda á að það ár var el Nino
veðurfyrirbrigðið í hámarki og
hækkaði meðaltalið til muna og því
telja þeir 2005 heitasta ár í sögunni
hvað norðurhvelið varðar.
Sumir vísa því á bug að
hækkandi hitastig sé mannkyninu
að kenna. Benda þeir á að dæmi
séu um svipaðar breytingar á
hitastigi jarðarinnar í fortíðinni.
Þó eru langflestir vísindamenn
sammála um að þróunin sem hefur
átt sér stað síðustu árin sé óeðlileg
og að enga aðra skýringu sé á því
að finna en inngrip mannsins. Þó
eru reiknilíkön þau sem notuð eru
mismunandi og ekki ber öllum
saman um að hitastig hækki jafn
mikið eða jafn ört. Öll gefa þau þó til
kynna að hækkun er óumflýjanleg.
Hvað merkir þetta allt?
Sé gengið út frá að vísindamenn
hafi rétt fyrir sér er ljóst að
jörðin mun taka breytingum fyrr
en síðar. Bráðni Grænlandsjökull
og hækki yfirborð sjávar um sjö
metra munu heilu löndin fara
undir vatn. Vert er að hafa í huga
að stór hluti Flórídaríkis og allt
Bangladess eru einum metra yfir
sjávarmáli. Þúsundir borga og bæja
við strendur munu hverfa undir
sjó og landslagið mun taka miklum
breytingum frá því sem nú er.
Veðurfar mun breytast en deilt
er um hversu mikið. Óvíst er hvort
og þá hvenær bráðnun jökla fer að
hafa áhrif fyrir alvöru á hafstrauma
um víða veröld. Talið er víst að
mikil bráðnun Grænlandsjökuls
geti breytt og jafnvel lokað að öllu
leyti fyrir flæði heitari sjávar sem
berst hingað til lands og til Evrópu
með Golfstraumnum. Afleiðingar
þess háttar breytinga yrðu mjög
alvarlegar enda Golfstraumnum að
þakka að lífvænlegt er á norðurhveli
Evrópu.
Eins er víst að hlýnandi loftslag
mun valda meiri þurrkum og enn
frekari matarskorti hjá milljónum
manna. Aðstæður til ræktunar
versna nánast alls staðar sökum
minnkandi úrkomu á sumum
stöðum og vaxandi úrkomu á öðrum
sem mun ýta undir flóð og skriður
en ekki gera ræktun auðveldari.
Túndrur heimsins munu þiðna og
frá þeim streyma jafn mikið magn
metangass og mannkynið allt hefur
losað á fáum árum. Dýr og plöntur
eru mismunandi vel í stakk búin til
að takast á við örar loftslagsbreyt-
ingar. Margar trjátegundir geta ekki
þróast nógu fljótt en fuglar og dýr
geta í mörgum tilfellum flutt sig til.
Varpstöðvar og jafnvel varptímar
munu breytast og óvíst er með öllu
hvaða áhrif það hefur á umhverfið
til lengri tíma litið. Það er senni-
lega boðberi þess sem koma skal
að fyrsta dýrið sem sannað hefur
verið að hefur þegar þróast í takt
við breytingar á hitastigi heimsins
er moskítóflugan alræmda. ■
JÖKULHETTA KILIMANJARO Í KENÍA Snjór hefur þakið topp þessa hæsta fjalls Afríku í þúsundir ára en nú sér fyrir endann á því.
Heimamenn segja bráðnun íssins svo öra að hann verði með öllu horfinn innan fárra ára.
Mannkynið á hálum ís
NORÐURHEIMSKAUTIÐ Á myndinni sést vel hversu mjög ísinn á norðurheimskautinu hefur minnkað síðustu áratugi. Ýmsir fagna því að með áframhaldandi bráðnun opnist brátt sjóleið milli Atlantshafsins og Kyrrahafsins en hverjar
afleiðingarnar verða fyrir vistkerfi heimskautsins og hafstrauma í heiminum öllum er ómögulegt að segja fyrir um.
Árið 2005 var annað heitasta árið á norðurhveli
jarðar og eitt af fimm heitustu árunum á jörðinni
allri síðan áreiðanlegar mælingar hófust fyrir rúmri
öld. Albert Örn Eyþórsson skoðar hlýnun jarðar.
❄ Meðalhitastig í vesturhluta Kanada,
Alaska og austurhluta Rússlands hefur
hækkað um 3-4° síðustu 50 ár. Tvöfalt
meira en annars staðar í heiminum.
❄ Bráðni öll ísbreiðan á Grænlandi
hækkar það yfirborð sjávar um sjö
metra. Spár gera ráð fyrir umtalsverðri
bráðnun á þessari öld.
❄ Plöntur í Evrópu blómstra viku fyrr
en þær gerðu að meðaltali árið 1950.
❄ Þrír jöklar prýddu fjalltoppa á
Spáni áður fyrr. Þeir eru horfnir. Um
80 prósent þeirra jökla sem voru í
Bandaríkjunum fyrir tveimur öldum
eru sömuleiðis bráðnaðir.
❄ Ekki er talið útilokað að hækkandi
hitastig sé orsakavaldur að tvísýnna
veðri í heiminum. Fellibyljir í
heiminum hafa aldrei verið fleiri en á
síðasta ári.
❄ Einn slíkur stormur kom að landi á
Kanaríeyjum sl. haust. Það er í fyrsta
sinn sem það gerist í manna minnum.
❄ Rigningar og flóð hafa orðið tíðari á
sumum stöðum en lengri þurrkatími
og vatnsskortur hrjáir aðra í heiminum.
❄ Hækkandi hiti mun auka áhrif
loftmengunar og fjölga til muna
þeim er glíma við astma eða aðra
öndunarfærasjúkdóma.
❄ Er yfirborð sjávar hækkar mun
saltvatn blandast ferskvatni víða á
láglendi. Ferskvatn er þegar í dag af
skornum skammti.
Staðreyndir eða tilviljun?