Fréttablaðið - 14.01.2006, Síða 29
[ ]
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
��������������
�������
������������������
�������������
��������
������
�����������������
��� ����
�������������������
�������
�������
�������������
��������������
��������������
���������������
��������������
� ��������
Góðan dag!
Í dag er laugardagurinn 14. janúar,
14. dagur ársins 2006.
Slúður er þegar
enginn segir frá
neinu bara í eitt
eyra!
KRÍLIN
Dagsferðir á vegum Útivistar
og Ferðafélags Íslands verða
farnar á morgun. Útivist
gerir tilraun til skíðaferðar
og munu snjóalög ráða
hvert verður farið. Lagt verð-
ur af stað frá BSÍ klukkan
hálf ellefu. Áhugasamir ættu
að fylgjast með á www.
utivist.is. Ferðafélag Íslands
leggur af stað klukkan 10.15
frá Mörkinni og gengið verð-
ur um nágrenni Reykjavíkur.
Áætlað er að ganga í þrjá
til sex tíma. Ferðirnar eru
opnar öllum.
Lýðheilsutöð hefur gefið
út kynningarbækling um
starfsemi sína. Þó að Lýð-
heilsustöð hafi vaxið jafnt
og þétt frá árinu 2003 þegar
hún var stofnuð eru enn
ekki margir sem af tilvist
hennar og tilgangi vita. Gerð
kynningarbæklingsins er liður
í að kynna starfsemina enn
betur og hefur bæklingnum
verið dreift víða.
Chanel er nú fyrir rétti vegna
ákæru frá World Tricot, einum
framleiðanda Chanel. Fyrir-
tækið er ákært fyrir að hafa
stolið hönnun World Tricot
og fyrir samningsbrot. Stefn-
an hljómar samtals upp á 3,6
milljónir punda. Forsvars-
menn Chanel neita öllum
ásökunum og hafa kært
World Tricot fyrir meiðyrði.
Dieter Zetsche, forstjóri
DaimlerChrysler hugleiðir
nú að selja Smart bílafram-
leiðsluna. Þó að Smart hafi
aukið söluna um 3,8 prósent
á árinu 2005 miðað við árið
á undan þá var enn tap á
rekstrinum. Dieter hefur ráðið
ráðgjafafyrirtæki til að sinna
áhugasömum kaupendum á
Smartbílum.
LIGGUR Í LOFTINU
[ BÍLAR FERÐIR TÍSKA HEILSA ]
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 10.57 13.37 16.17
Akureyri 11.03 13.21 15.41
Heimild: Almanak Háskólans
Friðjón Sveinbjörnsson náði á einu ári
að safna sér fyrir rúmlega milljón króna
bíl. Hann segir að með mikilli vinnu og
smá aðhaldi sé ekki mikið mál að safna
sér fyrir nýjum og flottum bíl.
Friðjón eignaðist bílinn, sem er Toyota Cor-
olla, í júní 2004 en hann keypti hann ein-
faldlega í gegnum smáauglýsingar Frétta-
blaðsins. Friðjón var ekki alveg tilbúinn til
þess að segja hvað hann kostaði, en reyndi
þó að afsaka sig með því að segja að myndi
ekki nákvæmlega hvað hann kostaði.
Bílinn segist Friðjón hafa keypt eftir að
hafa unnið og safnað þannig peningum á
um það bil ári. ,,Ég vann sumarið 2003 á
Hótel Sögu. Þar vann maður nær alla daga,
allt sumarið, yfirleitt um 12 tíma á dag, til
dæmis sem næturvörður. Um veturinn
vann ég þar í aukavinnu með skóla.“
Friðjón segist ekki þekkja marga á
sínum aldri sem hafa getað borgað í einu
lagi fyrir nýlegan bíl ,,Þetta fer svolítið
eftir því hversu mikið fólk þarf að eyða í
sig sjálft, til dæmis hvort það býr heima hjá
foreldrum eða eitt,“ segir Friðjón og bætir
við að það
þurfi einn-
ig að leggja
pínu á sig til
þess að geta
safnað fyrir
slíkum bíl.
Friðjón seg-
ist hins vegar
alls ekki sjá
eftir neinu.
F r i ð j ó n
segir að lyk-
illinn að því
að námsmenn
geti safnað
sér fyrir svona bíl sé að vinna mikið á
sumrin. ,,Maður eyðir náttúrlega mjög litlu
þegar maður vinnur svona mikið. Þannig
að það er mjög gott, eitt leiðir af öðru og
svona,“ segir Friðjón og brosir.
Að lokum segist Friðjón vera afar
ánægður með Corolluna og segir bílinn
frábæran fyrir nema eins og hann. Í fram-
tíðinni stefnir Friðjón hins vegar kannski
frekar að því að safna sér fyrir einhverju
stærra, til dæmis íbúð.
steinthor@frettabladid.is
Afrakstur árs vinnu
Reynsluakstur
Renault Modus
BLS. 2
Friðjón er ánægður með bílinn sinn, segir hann eyða litlu og vera þægilegan í akstri og í raun að öllu leyti.FRÉTTABLADID/PJETUR
TOYOTA COROLLA
HATCHBACK
Árgerð: 2003
Vél: 1,6 lítara, 16 ventlar
Hestöfl: 110
Keyrður: 47 þúsund kílómetra
Jóga
Betra samfélag
BLS. 6
Friedrichshafen
Vegir til allra átta
BLS. 5