Fréttablaðið - 14.01.2006, Síða 31
LAUGARDAGUR 14. janúar 2006 3
Þegar bílstjóri þarf að nauðhemla,
sérstaklega á hálu eða blautu yfir-
borði, er algengt að hjólin læs-
ist. Þá rennur bíllinn stjórnlaust
áfram og bílstjórinn hefur ekkert
um það að segja hvað gerist næst.
Til að forða þessu má stíga mjög
laust á bremsuna eða, það sem
betra er, „pumpa“ bremsupedal-
ann (stíga oft laust og sleppa strax
aftur). Við óvæntar aðstæður er
lítill tími til ákvarðanataka og því
var ABS bremsukerfið hannað til
að sjá um þetta fyrir bílstjórann.
ABS stendur fyrir Anti-Lock
Brake System eða bremsukerfi
með læsivörn. Til eru nokkrar
tegundir af slíkum kerfum en það
sem hefur gefið hvað besta raun
virkar svona í sinni einföldustu
mynd:
Við hvert hjól er nemi. Hann
fylgist með hraða hjólsins og leit-
ar sérstaklega eftir því að hjólið
hægi meira á sér en eðlilegt er, til
dæmis úr 60 í 0 á einni sekúndu
eins og þegar hjólið læsist. Sendi
skynjarinn slík boð til stjórnstöðv-
arinnar dregur hún úr þrýstingi til
bremsudælunnar við það hjól svo
það byrjar að snúast aftur. Jafn-
harðan er þrýstingi aftur hleypt
á dæluna og því hægist á hjólinu
aftur. Þetta ferli er svo endurtek-
ið allt að fimmtán sinnum á sek-
úndu þannig að hjólið hægir hratt
á sér en læsist aldrei alveg. Þessi
síendurtekna breyting á bremsun
finnst á bremsufótstiginu sem öfl-
ugur púls. Það er mjög mikilvægt
að láta það ekki rugla sig og halda
áfram að stíga fast á fótstigið.
ABS-bremsur skyldi ekki pumpa
eins og áður er lýst, þar sem það
dregur úr virkni þeirra.
Með þessu móti er hægt að
stöðva bílinn á miklu styttri tíma
en ef hjólin læsast og það sem
skiptir meira máli; hafa stjórn á
honum á meðan.
HCD9 Talus frá Hyundai var
frumsýndir á bílasýningunni í
Detroit sem nú stendur yfir.
Á bílasýningunni í Detroit kennir
ýmissa grasa eins og endranær.
Suðurkóreski bílaframleiðandinn
Hyundai kynnti þar meðal annars
hugmyndabíl sem bílaframleið-
andinn segir að boði byltingu í
eiginleikum sportbíla. Bíllinn er
jepplingur en hefur flesta eigin-
leika sem einkenna sportbíla.
Bíllinn er fjögurra sæta og með
rúmgott farangursrými eins og
venjan er með sportjeppa eða
jepplinga. Bíllinn er á 22 tommu
felgum og því með mun meiri veg-
hæð en hefðbundnir sportbílar,
auk þess sem hann er einnig hugs-
aður með valkvæðu fjórhjóladrifi
sem hægt er að virkja með sér-
stakri stillingu. Þetta gefur bíln-
um ákveðið jepplingaútlit.
Að öðru leyti er hann hannaður
sem sígildur sportbíll og hefur 4,6
lítra V8 vél.
Sportjepplingur frá Hyundai
HCD9 Talus hugmyndabíllinn frá Hyundai.
ABS-bremsur gera bílstjórum kleift að hafa
stjórn á bílnum við nauðhemlun.
Bíóbílarnir
Áfram veginn
Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar
Einhverntíma á lífsleiðinni var ég leiddur í allan sannleikann um bíó-
myndir. Það hefur örugglega verið stór biti að kyngja fyrir ungan
heila að allt sem gerðist í þessum undraverða kassa væri bara plat,
uppspuni og tilgerð. Nema fréttir kannski.
Í dag finnst mér samt voðalega gott að vita þetta. Væri hálf neyðar-
legt að trúa öllu sem ratar á skjáinn. Til dæmis lifa nokkrar goðsagnir
um bíla góðu lífi í bíómyndum en hvergi annarsstaðar.
Svo eitthvað sé nefnt þarf mjög sérstakar aðstæður til að það væli í
dekkjum þegar bíll fer í gegnum beygju á malbiki. Malbikið þarf að
vera heitt, dekkin helst líka og þau þurfa að skrika eða spóla rólega
í gegnum alla beygjuna (eða drifið að vera læst). Ekki í bíómyndum
samt. Þar er meira að segja hægt að væla í beygjum í eltingaleik í
miðri eyðimörk. Flott það.
Þegar Kaninn gerir kappakstursmyndir setur hann beinskipta bíla í
forgrunn. Fæstir Bandaríkjamenn kunna á þannig græjur og því eru
þær sveipaðar hálfgerðum ævintýraljóma. Þegar hetjan er við það
að missa af fyrsta sætinu í hendur vonda karlsins grípur hún til áður
óþekkts úrræðis í kappakstursheiminum; hann skiptir um gír og fer
framúr. Ó, ef aðeins vonda karlinum hefði dottið það í hug líka...
Uppáhaldsgoðsögnin mín er samt sú þar sem bílar taka upp á því
að springa við óhentugustu aðstæður. Í gömlu hasarmyndunum var
nóg að þeir keyrðu fram af hengiflugi, þá brást ekki að þeir stóðu
í ljósum logum um leið og öll hjólin voru komin á flug. Framfarir í
bílaiðnaðum virðast hafa náð til Hollywood og nú springa bílar bara
ef þeir rekast utan í eitthvað, velta eða skotið er á þá. Sem betur
fer fyrir okkur bíleigendur eru meiri líkur á að vinna tvisvar í lottói
sama daginn heldur en að þessháttar hnjask dugi til að sprengja bíl.
Það er meira að segja ótrúlega erfitt að sprengja bensíntank með því
að skjóta á hann, enda er flestir brunar í bílum raktir til rafkerfis en
ekki bensíns eða byssukúlna.
Ekki misskilja mig samt, ég mæli ekkert sérstaklega með því að þið
séuð mikið að keyra bílana ykkar fyrir björg, bara þó að það kvikni
ekki í þeim við það...
HVAÐ ER... ABS?