Fréttablaðið - 14.01.2006, Side 33
][
Friedricshafen í Suður-Þýska-
landi er nýr áfangastaður
Iceland Express og hefst flug
þangað í maí á þessu ári. Flog-
ið verður þrisvar í viku.
Eitt helsta tromp Friedricshafen
er staðsetningin, en borgin stendur
við Bodensee, stöðuvatnið þar sem
landamæri Austurríkis, Sviss og
Þýskalands mætast. Við vatnið er
mikil og falleg fjallasýn. Á góðum
degi sjást fjöll nokkurra landa og
hefur þau áhrif að öll landamæri
virðast þurrkast út. Á vorin er afar
vinsælt að hjóla í kringum vatnið og
eru það ferðaskrifstofur á staðnum
sem skipuleggja slíkar ferðir. Þá
er ekið með farangurinn á milli
hótela á meðan fólk nýtur dagsins í
rólegheitum á hjólinu.
Á sjálfu vatninu er að finna
þrjár eyjar, þar af er blómaeyjan
Mainau vinsæll ferðamannastaður,
enda þykir eyjan ævintýraleg
og falleg, mikið blómaskrúð og
fiðrildi öllum til yndisauka. Borgin
Konstanz stendur einnig við vatnið,
lítil og falleg borg með sögulegum
byggingum. Borgin er fyrst og
fremst þekkt fyrir að vera mikill
háskólabær. Zeppelin fæddist
þar og fyrsta loftfarið sem hann
hannaði, Zeppelin, hóf sig á loft
frá flugvellinum í Friedrichshafen.
Í Konstanz er að finna krá
sem ber nafnið Zeppelin en í
Friedrichshafen er Zeppelin-safn
þar sem meðal annars er hægt að
fara í útsýnisflug í loftfari. Hinum
megin við vatnið er Austurríki. Þar
er á hverju sumri haldin Bregenzer-
tónlistarhátíðin þar sem óperur
eru sýndar í stórum uppfærslum á
fljótandi sviði á vatninu og virðist
hátíðin stækka með hverju árinu
sem líður.
Auðvelt er að ferðast um Suður-
Evrópu út frá Bodensee. Tekur
það aðeins þrjá tíma að aka suður
til Mílanó og áhugavert er keyra
um gamla hluta Sviss þar sem enn
má sjá konur þvo fötin sín í bala.
Bæjaraland er einnig skammt
undan þar sem sveitasælan ræður
ríkjum og á ökrunum getur að líta
rauðar kýr með stórar bjöllur um
hálsinn. Þar eru kýrnar reknar
á fjöll á sumrin og hafðar með
bjöllu um hálsinn til að auðvelda
smalanum verkið þegar hann nær
í þær að hausti. Mikil hátíð er í
þorpunum þegar kýrnar koma
aftur að hausti, harkið í kúnum
og hljómurinn í kúabjöllunum
bergmálar um dalinn.
Þar sem vegir
liggja til allra átta
Ferðaskrifstofurnar bjóða upp á helgar- og vikuferðir til ýmissa landa sem
oft má fá á góðu verði. Það getur lífgað upp á skammdegið að skella sér í stutta
ferð til útlanda.
Þann 18. janúar stendur Íslenski
Alpaklúbburinn fyrir framhaldsnám-
skeiði í ísklifri. Kennsla í bóklegum
hluta fer fram að kvöldi 18. janúar.
Þar verður kennd upprifjun á
hnútum og uppsetning megintrygg-
inga og sýnd verður stuttmynd um
helstu ísklifursvæði Íslands. Verkleg
kennsla verður þann 21. janúar og
verður þá kennt klifur í ofanvað og
sig með öryggishnút.
Til að fá að taka þátt í þessu
námskeiði er þess að krafist að
viðkomandi hafi lokið námskeiði í
Ísklifri I eða hafi einhverja reynslu
af ísklifri.
Ísklifur
Friedrichshafen er við Bodenvatnið.
Kýr með bjöllur sjást víða um sveitir í
Bæjaralandi.