Fréttablaðið - 14.01.2006, Qupperneq 34
[ ]
Kundalini-hugleiðsla er
aldagömul aðferð þar sem
frumkrafturinn er virkjaður.
Innri styrkurinn eykst og fólk
höndlar lífið betur
,,Kundalini-hugleiðsla er aðferð
til að virkja frumkraftinn í
okkur svo hægt sé að hafa áhrif
á lífið til góðs,“ segir Kristbjörg
Kristmundsdóttir en hún heldur
Kundalini-hugleiðslunámskeið í
janúar og febrúar. ,,Í raun og veru
snýst allt jóga um þessa orku,
Kundalini-orkuna, sem er frum-
krafturinn í okkur öllum, í atóm-
inu og alheiminum.“
Hugleiðslan er í nokkru frá-
brugðin annars konar hugleiðslu
þó markmiðið sé það sama. ,,Það
eru til margar aðferðir og ýmsir
skólar til að hugleiða, en allir
stefna þeir að því að öðlast frið,
visku, sátt og andlegt frelsi.
Kundalini-hugleiðslan er hins
vegar frábrugðin að því leyti að
hún er mjög kraftmikil. Ég hef
komið víða við í jógískum skólum
en þessi aðferð hefur skilað mér
miklum árangri á mjög stuttum
tíma.“
Hugleiða á tvisvar á dag, kvölds
og morgna. ,,Til að byrja með duga
fimmtán mínútur í senn. Fyrstu
hugleiðslustigin eru þrjú þar sem
athyglinni er beint að vissum
svæðum líkamans. Í framhaldinu
er kafað dýpra en allan tímann er
áhersla lögð á það að viðkomandi
er andleg vera í veraldlegum lík-
ama og lífi.“
Kristbjörg segir alls ekki flók-
ið að tileinka sér aðferðina. ,,Það
þarf hins vegar einhvern til að
gefa manni tækið svo hægt sé
að vinna áfram. Hjá hverjum og
einum opnar kennarinn þrjár aðal
orkubrautirnar, ef þær eru ekki
opnar fyrir, ásamt orkustöðvun-
um og sér til þess að orkan flæði
eðlilega um líkamann.“
Flestir þeir sem iðka hugleiðsl-
una höndla lífið betur. ,,Þetta er
ekki þannig að allir verði voðalega
háfleygir og heilagir heldur verð-
ur bara rosalega gaman hjá öllum.
Innri styrkurinn er dreginn fram
og það sem einu sinni voru erfið-
leikar verða einungis áskoranir.
Hugleiðslan hjálpar fólki meðal
annars til að líta ranghugmyndir
réttum augum, kringumstæður
breytast og fólk sem var manni
erfitt verður það ekki lengur.“
Aðferðin er aldagömul og var
einungis notuð meðal gúrúa.
,,Miklir kennarar kenndu öðrum
miklum kennurum æfingarnar en
í dag erum við öll orðin gúrúar,
hver og einn er skapari í sínu lífi
og ber ábyrgð á því. Þess vegna
eru fræðin kennd hér á Vestur-
löndum en fara þarf í gegnum
mikla þjálfun til að kenna hug-
leiðsluna.“
Námskeiðin verða haldin í
Gerðubergi og stendur hvert
þeirra í fjögur kvöld. Fyrsti tím-
inn verður þann 16. janúar.
,,Því fleiri sem rækta með sér
innri manninn og efla andann,
þeim mun friðsamari verður jörð-
in og okkur líður betur saman.
Þetta er okkar innlegg í að skapa
betra samfélag,“ segir Kristbjörg
að lokum. mariathora@frettabladid.is
Í átt að betra
samfélagi
Ávaxtasafar geta verið hollir og C-vítamínríkir. Oftar en ekki inni-
halda þeir samt mestmegnis sykur svo það skiptir máli að vanda valið.
Landlæknisembættið mælir
ekki með neinum ferðatak-
mörkunum eða bólusetningu
ferðamanna sem ferðast til
landa þar sem fuglaflensa
hefur greinst.
Breytingar hafa orðið á útbreiðslu
veirunnar H5N1 og hafa nokkrir
dáið úr fuglainflúensu á síðustu
vikum.
Landlæknisembættið telur ekki
nauðsyn á ferðatakmörkunum eða
að ferðamenn þurfi á bólusetningu
að halda ætli þeir að ferðast til landa
þar sem fuglaflensa hefur greinst.
Ferðamönnum er hins vegar bent á
að gæta ítrustu varúðar og reyna að
forðast snertingu við lifandi fugla
eða úrgang úr þeim. Einnig skal
gæta þess að fuglaafurðir séu nægi-
lega vel eldaðar og huga að almennu
hreinlæti.
Sjá má nákvæmar upplýsingar
um svæði og lönd þar sem inflú-
ensa í hænsnfuglum og farfuglum
hefur greinst á vefsíðu Alþjóða-
dýraheilbrigðisstofnunarinnar,
www.oie.int.
Engar ferðatak-
markanir
SAMTÖK INDVERJA SEM ERU Á
MÓTI REYKINGUM HAFA LAGT TIL
AÐ EIN HELSTA BOLLÍWOODHETJA
HEIMS, AMITABH BACHCHAN, VERÐI
FANGELSAÐUR BIÐJIST HANN EKKI
AFSÖKUNAR Á AÐ HAFA LÁTIÐ BIRTA
MYND AF SÉR REYKJANDI VINDIL
Í AUGLÝSINGUM FYRIR NÝJUSTU
BÍÓMYND SÍNA.
Veggspjöldin
sem birtust af
Amitabh stríða
gegn lögum sem
sett voru árið
2003 og banna
tóbaksauglýs-
ingar, að sögn
samtakanna.
Þau hafa beðið
Bachchan um að
biðjast opinber-
lega afsökunar
á athæfi sínu
og útskýra hvað
leiddi hann til að
láta mynda sig
með logandi vindil fyrir auglýsingu
sem birst hefur um allt Indland.
Verði hann við óskum þeirra ætla
samtökin að láta málið niður falla,
en annars hóta þau að fara fyrir
dómstóla.
Heilbrigðisráðherra Indlands er
þessa dagana að reyna að banna
reykingar í indverskum bíómyndum,
en tillagan hefur mætt mikilli mót-
stöðu Bollíwoodmyndaframleiðanda.
Bachchan hefur leikið í yfir 150
bíómyndum, en þessi sem hann
auglýsir nú hefur ekki verið frumsýnd
enn.
Reykingar í
Bollíwood
Kristbjörg Kristmundsdóttir verður með Kundalini-hugleiðslunámskeið í janúar og febrúar.
FRÉTTABLAÐIÐ / VALLI
Breytingar hafa orðið á útbreiðslu fuglaflensunnar og eru ferðamenn hvattir til að sýna
ýtrustu varkárni ferðist þeir um svæði þar sem flensan hefur komið upp.
Deilur eru nú
uppi í Indlandi
um hvort banna
skuli reykingar í
bíómyndum.