Fréttablaðið - 14.01.2006, Page 48
14. janúar 2006 LAUGARDAGUR32
Hún lítur út eins og hver önnur íslensk stelpa sem hefur gaman af bíóferðum,
skemmtunum og slúðri með vin-
konum. Hanna Sigríður Ragnars-
dóttir hefur þó upplifað mun meira
en mörg stúlkan á hennar aldri
enda hélt hún upp á 21 árs afmæli
sitt á Mekong-fljóti í Kambódíu.
„Mig hefur alltaf langað til að
prófa eitthvað nýtt en samt verið
hrædd við að fara eitthvað út í
heim og ekki beint týpan til að taka
stóra skrefið og stökkva burt,“
segir Hanna þegar hún rifjar upp
hvernig það æxlaðist að hún fór að
vinna við hjálparstarf í Taílandi
og Kambódíu á síðasta ári. Hún
hafði útskrifast úr Snyrtiskóla
Kópavogs haustið 2004 og ákvað
þá að gera eitthvað allt annað.
Hanna fann á netinu skóla í litlu
þorpi norður af Lundúnum þar
sem kennt er hvernig standa eigi
að hjálparstarfi. Þar dvaldi hún í
þrjá mánuði áður en hún og nokkr-
ir skólafélagar hennar héldu til
Kambódíu og Taílands til að læra
af reynslunni enda getur engin
bókleg kennsla komið í staðinn
fyrir kynni af raunverulegu lífi.
Gist á vændishúsi
„Fyrsta kvöldið í Kambódíu var
örugglega með þeim erfiðari í
lífi mínu,“ rifjar Hanna Sigríður
upp. „Við keyrðum frá Taílandi til
Kambódíu og áttum að taka rútu
til höfuðborgarinnar á landamær-
unum en misstum af henni. Þarna
stóðum við á landamærum Kam-
bódíu með fullt af berrössuðum
krökkum og betlurum og vissum
ekkert hvað við áttum að gera,“
lýsir Hanna en það vildi svo vel
til að hópurinn rakst á dreng sem
var viljugur til að hjálpa þeim og
útvegaði þeim pláss á gistiheimili
einu heldur hrörlegu. Þangað kom-
ust þau á mótorhjólum, sem er
aðalferðamátiinn í Kambódíu, og
sátu tvö aftan á hverju hjóli.
„Við komust reyndar að því
síðar um nóttina að ekki var allt
með felldu með þetta gistihús
þegar fóru að heyrast ýmis óhljóð
úr næstu herbergjum og menn
fóru að koma með konur inn. Þá
rann upp fyrir okkur að þetta væri
vændishús,“ segir Hanna kímin
því sagan er fyndin þó annað hafi
hún hugsað á sínum tíma. „Þetta
var mikið menningarsjokk svona
fyrstu nóttina að sofa í rifnum
sængurverum með kakkalakka
skríðandi upp úr holunni sem átti
að heita klósett.“
Brosmildir munaðarleysingjar
Það kom Hönnu hvað mest á óvart
við komu sína til Kambódíu hvað
allir voru brosmildir þrátt fyrir
það harðræði sem fólkið hefur
þurft að upplifa og sorglega sögu
landsins. Hanna starfaði í rúman
mánuð við enskukennslu á mun-
aðarleysingjahæli í Kambódíu. Á
heimilinu voru krakkar frá fimm
til átján ára aldurs. „Krakkarnir
voru rosalega opnir. Um leið og við
komum hlupu þau í kringum okkur
og knúsuðu eins og þau hefðu allt-
af þekkt okkkur,“ rifjar Hanna
upp. „Þau voru svo þakklát en í
raun höfðu þau miklu meiri áhrif
á líf okkar en við höfðum nokkurn
tíma á þeirra,“ segir Hanna sem
fannst frábært að sjá vilja þess-
ara barna til að læra. „Það er frá-
bært skólakerfi á Íslandi en maður
nennir varla að læra, svo eru
þarna krakkar sem vilja fá að vita
allt milli himins og jarðar,“ segir
Hanna upprifin af kynnum sínum
af þessum námsfúsu börnum sem
mörg áttu foreldra á lífi en svo illa
farna af jarðsprengjum að þeir
gátu ekki séð um þau.
Hún minnist þess hve erfitt var
að yfirgefa krakkana og landið.
„Það var rosalega erfitt að segja
bless við krakkana og mjög til-
finningaríkt því ekki var ljóst að
við myndum nokkurn tíma sjá þau
aftur.
Bjargað úr kynlífsþrælkun
Eftir mánaðardvöl í Kambódíu hélt
Hanna ásamt nokkrum félögum til
Norður-Taílands. Þar reka banda-
rísk hjón heimili fyrir stúlkur sem
bjargað hefur verið úr kynlífs-
þrælkun. Þessi hjón ákváðu þegar
þau komust á eftirlaunaaldur að
fara til Taílands og gera eitthvað
við líf sitt.
„Það sem þau gera er að fara
í fjallaþorp þar sem fjölskyldur
eru stórar og ekki óalgengt að ung
stúlkubörn séu seld hórmöngur-
um. Þau fara þá og yfirbjóða hór-
mangarana og hafa bjargað mörg-
um stúlkum frá slæmri reynslu,“
ústkýrir Hanna en einnig hafa
hjónin farið í björgunarleiðangra
í hóruhúsin sjálf og bjargað eldri
stúlkum úr kynlífsþrælkun.
„Það var ótrúlegt að sjá þessar
stúlkur enda búnar að þurfa að fást
við margt í lífi sínu. Í raun voru
þær að upplifa á ný hvernig það er
að vera barn og unglingur,“ segir
Hanna sem man sérstaklega eftir
sögu einnar stúlku sem bjargað
var eftir tvö ár í hóruhúsi.
Segja já til að halda lífi
„Þessi stúlka var búin að vera tvö
ár í kynlífsþrælkun en hún var
seld þangað fjórtán ára gömul.
Þessi stelpa var komin með
alnæmi og búin að eignast barn
sem var á heimili fyrir alnæm-
issmituð börn,“ segir Hanna en
saga hennar fékk töluvert á hana.
„Hún vildi ekki tala mikið um
smáatriði en tók skýrt fram að
stúlkur segi aldrei nei. Ef þær
vilji halda lífi segi þær já,“ lýsir
Hanna og hryllir við sögum af því
þegar hórmangararnir tóku mey-
dóm stúlknanna.
Með foreldra og Jesú að fyrirmynd
Þegar Hanna kom heim rétt fyrir
jólin fékk hún í raun annað menn-
ingarsjokk að sjá það neyslubrjál-
aði sem hér ræður ríkjum. „Mér
fannst rosalega sorglegt að sjá að
þrátt fyrir að við búum í frábæru
landi þar sem maður hefur ekkert
að óttast og allir hafa allt til alls,
þá eru svo margir óhamingjusam-
ir,“ segir Hanna sem heldur aftur
út til Englands von bráðar til að
vinna að forvarnarstarfi í enskum
skólum. „Ég mun tala við krakka
um alls konar málefni sem ekki
eru kennd í Englandi, líkt og getn-
aðarvarnir, fóstureyðingar og mis-
munandi menningarheima,“ segir
Hanna sem gæti vel hugsað sér að
helga líf sitt því að hjálpa öðrum.
„Mér finnst áskorunin mikil og
góð og ég hef þroskast mjög mikið
og get varla beðið eftir framhald-
inu,“ segir snyrtidaman unga sem
hefur bæði foreldra sína og Jesú
að fyrirmynd. ■
MEÐ NEMENDUM Í KAMBÓDÍU Hanna Sigríður með nokkrum stúlkum af munaðarleys-
ingjahælinu í Kambódíu þar sem hún kenndi ensku.
Úr snyrtifræði til hjálparstarfs
Á VÆNDISHÚSI FYRSTU NÓTTINA Hanna
og félagar hennar urðu strandaglópar á
landamærum Taílands og Kambódíu. Þau
urðu að gista á gistiheimili sem reyndist
síðan vera vændishús.
Hanna Sigríður Ragnarsdóttir hélt upp á 21 árs
afmæli sitt á Mekong-fljóti í Kambódíu. Þar starf-
aði hún á munaðarleysingjahæli áður en hún hélt
til Taílands til að vinna á heimili fyrir stúlkur
sem bjargað hefur verið úr kynlífsþrælkun. Sól-
veig Gísladóttir ræddi við hinn unga snyrtifræð-
ing um reynslu hennar af brosmildum börnum og
hreinskilnum fórnarlömbum.
NLP Námskeið
Neuro - Lingustic - Programming
- Er sjálfstraustið í ólagi?
- Langar þig í betri líðan?
- Finnst þér að fáir skilji þig?
- Er eitthvað í fari þínu sem að þú vilt vinna bug á?
- Finnst þér að öðrum gangi betur í lífinu en þér?
- Gengur illa að klára verkefni sem þú byrjar á?
- Finnst þér erfitt að höndla gagnrýni?
Með NLP aðferðum getur þú auðveldlega breytt lífi þínu og skapað þína eigin framtíð.
NLP er notað af fólki um allan heim sem hefur náð frábærum árangri í lífinu
NLP Námskeið verður haldið 30.janúar til 10.febrúar í Reykjavík.
Leiðbeinandi: Kári Eyþórsson MPNLP.
Upplýsingar í síma: 894-2992
Netfang: kari@ckari.com
Nánari upplýsingar um NLP má finna á: www.ckari.com
TIL HJÁLPAR Hanna Sigríður Ragnarsdóttir gæti vel hugsað sér að helga líf sitt því að hjálpa öðrum.