Fréttablaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 53

Fréttablaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 53
LAUGARDAGUR 14. janúar 2006 Kæru ættingjar, vinir, stuðningsmenn, félagar í flokknum og samferðarfólk í gegnum tíðina. Það væri mér sönn ánægja að hitta ykkur við opnun kosningaskrifstofu minnar að Sætúni 8 kl. 17 – 19 í dag, laugardaginn 14. janúar. Þar mun ég kynna stefnumál mín fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor, auk þess sem boðið verður uppá veitingar og ýmsa skemmtun. Ég vonast til þess að sjá ykkur sem flest og eiga með ykkur góða stund. Bestu kveðjur, Óskar. Opnun kosningaskrifstofu Splunkunýr söngleikur um hina ómótstæðilegu Carmen verður frumsýndur í Borgarleikhúsinu í dag. Ásgerður Júníusdóttir fer með hlutverk sígaunastúlkunnar skapstóru. Með önnur hlutverk fara leik- ararnir Bergur Þór Ingólfsson, Birna Hafstein, Guðmundur Ólafs- son, Kristjana Skúladóttir, Marta Nordal, Pétur Einarsson og Theo- dór Júlíusson. „Þau syngja bara með sínu nefi, en á móti fæ ég að leika mjög mikið því þetta er leikgerð óperunnar,“ segir Ásgerður, en hún er eina óperusöngkonan sem tekur þátt í sýningunni. Guðrún Vilmundardóttir dram- atúrg hefur unnið söngleikinn upp úr hinni frægu óperu Bizets, en það er Guðjón Pedersen leikhús- stjóri sem leikstýrir. Söngtextar eru eftir þau Davíð Þór Jónsson, Frank Hall, Kristján Hreinsson, Sigríði Hagalín Björnsdóttur, Sjón og Þorstein Valdimarsson. Ýmist eru þetta þýðingar eða splunkuný- ir textar. Agnar Már Magnússon útsetti tónlistina. „Við erum bæði tónlistinni og óperunni mjög trú. Það er ekkert verið að fikta í neinu sem skiptir sköpum og músíkin fær að standa af mjög mikilli virðingu og hlýju,“ segir Ásgerður. „Agnar Már útsetti tónlist- ina fyrir sígaunaband með lúðr- um, harmonikku og gítar. Hann hefur búið til úr henni mjög heillandi sígaunahljóðheim.“ Dans setur einnig mjög sterkan svip á sýninguna og er hann unnin í samvinnu við Íslenska dansflokk- inn. Sjálf hefur Ásgerður aldrei tekið þátt í uppsetningu á Carmen, þótt hún hafi eins og aðrar söng- konur sungið aríur úr óperu Bizets við ýmis tækifæri. „Ég hef reyndar meira sóst eftir því að vera í nútímatónlist, hef tekið þátt í að frumflytja ný verk og þá unnið náið með tónskáldun- um,“ segir Ásgerður, sem engu að síður segist alltaf hafa haft mikinn áhuga á að syngja þetta drauma- hlutverk allra mezzósóprana. „Þetta hefur verið draumahlut- verk mitt lengi, ekki síst af því ég er dramatískur mezzo. Þetta er frábært hlutverk fyrir þá rödd, og svo höfðar karakterinn líka til manns. Kona með skap.“ ■ Carmen í splunkunýjum búningi ÁSGERÐUR JÚNÍUSDÓTTIR Í DRAUMAHLUTVERKI ALLRA MEZZÓSÓPRANA Ópera Bizets um ástir og örlög sígaunastelpunnar Carmen er orðin að söngleik sem frumsýndur verður í kvöld í Borgarleikhúsinu. Einn af leikstjórum heimildar- myndarinnar vinsælu „Metallica: Some Kind of Monster“ ætlar að gera heimildamynd um Tommy Lee, fyrrverandi trommara í Möt- ley Crue. Lee lék nýverið í sínum eigin raunveruleikaþætti, „Tommy Goes to College“ á sjónvarpsstöð- inni NBC. „Í rokkheiminum eru fáar per- sónur eins litríkar og Tommy Lee, og það er ekki bara vegna húð- flúranna,“ sagði Bruce Sinofsky leikstjóri. „Við munum sýna bak við tjöldin hjá þessari stjörnu og slúðurblaðafóður sem Tommy er orðinn. Fylgst verður með honum eiga samskipti við fjölskyldu sína, vini og tónlistarbransann í heild sinni.“ Tommy Lee er sjálfur hæst- ánægður með tíðindin og segir það mikinn heiður að gerð sé heimildamynd um sig. ■ Heimildamynd um Tommy Lee TOMMY LEE Trommarinn fyrrverandi hefur verið áberandi í gegnum árin. Heimildar- mynd um hann er á leiðinni. ... upplýsingum um laun, verktakagreiðslur, hlutafé, lán, bifreiðahlunnindi o.fl. á árinu 2005 ... Síðasti skiladagur: RAFRÆN SKIL - 6. febrúar PAPPÍRSSKIL - 26. janúar Skilist til skattstjóra viðkomandi umdæmis RSK RÍKISSKATTSTJÓRI ALLT UM rafræn skil á rsk.is/vefskil Hafið þið SKILAÐ TIL SKATTSINS LAUNAGREIÐENDUR, HLUTAFÉLÖG, FJÁRMÁLASTOFNANIR ... MIKILVÆGT ER AÐ UPPLÝSINGAR BERIST TÍMANLEGA VEGNA FORSKRÁNINGAR Á FRAMTÖL Sjá nánar auglýsingu í Stjórnartíðindum um skil á upplýsingum á árinu 2006 NFS ER Á VISIR.IS Bein útsending á VefTV og upptökur þegar þér hentar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.