Fréttablaðið - 14.01.2006, Síða 60
14. janúar 2006 LAUGARDAGUR44
utlit@frettabladid.is
Margar konur eiga það til að verða sérlega kaupglaðar á þessum árstíma, sérstaklega þær sem
hafa yndi af að gera góð kaup og finnst
þær í alvörunni missa af lestinni ef þær
kaupa ekkert. Það þarf þó að fara sérlega
gætilega þegar keypt er á útsölum því
það er svo auðvelt að láta glepjast. Það er
til dæmis algengur kvilli að kaupa allt of
lítil föt á janúarútsölunum. Viðkomandi
er kannski í leikfimisátaki og ætlar að
grennast um tvö fatanúme fyrir páska,
en svo gerist eitthvað á sem veldur því að
það slaknar á átakinu og þá er viðkomandi
kannski búinn að eyða peningum í fatnað
sem hann getur aldrei notað. Að minnsta
kosti ekki meðan kílóin eru öll á sínum
stað.
Þær sem ætla hins vegar að kaupa föt
á útsölum verða að vera meðvitaðar um
eigið vaxtarlag. Þær konur sem eru beinar
í vextinum (mittislausar) ættu til dæmis að
kaupa sér skyrtu með púffermum, þröngar
niðurmjóar gallabuxur og millibreitt belti
til að hafa í mittinu. Þær gætu líka hent
nokkrum pörum af flatbotna skóm með
í innkaupakörfuna. Þær sem eru eins og
stundaglös í laginu ættu að leggja áherslu á
kjóla sem sýna mittið vel, jafnvel „vintage“
kjóla með víðu pilsi. Þær ættu líka að kaupa
sér vesti á útsölu, aðsniðnar skyrtur og vel
sniðnar svartar buxur. Þær sem eru a-
laga í laginu ættu að leggja áherslu á efri
partinn. Vera í þröngu að ofan og hnésíð
pils klæða þetta vaxtarlag vel. Þær sem
eru perulaga ættu að skoða tískuna
frá sjöunda áratugnum vel, enda er sú
tíska klæðskerasniðin á þetta vaxtar-
lag. Þær sem eru hins vegar „hjarta-
laga“ (stærri að ofan en neðan) ættu
að leggja áherslu á fótleggina. Ef þú
ert í þessum flokki skaltu kaupa þér
mínipils, ullarsokkabuxur og flott
stígvél á útsölunni og þunna v-háls-
málspeysu því það dregur úr stærð
brjóstanna.
Eitt er þó lykilatriði og það er að
konur geta breyst í vextinum. Ekki
ganga út frá því að það sama klæði
þig nú og klæddi þig vel fyrir tíu
árum.
martamaria@frettabladid.is
Finndu þinn stíl
MÓÐUR VIKUNNAR
> MARTA MARÍA FER YFIR MÁLIN
NATALIE PORTMAN
tekur sig vel út í
stelpulegum
A-laga
sniðum.
NICOLE KIDMAN er há
og grönn með I-laga
vöxt og ber vel síða
kjóla, þröngar buxur og
efnismiklar kápur.
HELENA CHRISTENSEN
er með stundaglasvöxt
(S-laga)og fer henni vel að
klæðast aðsniðnum fötum
með flegið hálsmál.
Vinkona mín hringdi í mig í vik-
unni og tilkynnti mér að hún
hefði farið í klippingu og þar
með væri „sósíalbanni“ aflétt.
Hún var nefnilega hætt að geta
látið sjá sig utandyra út af
hroðalegu hári að hennar sögn.
Ég samgladdist henni enda
ómögulegt að vera innandyra
heilu helgarnar, sérstaklega
þar sem vinkona mín er einn af
þessum frábæru kvenkostum
sem gengur laus.
Sjálf er ég svo mikil lúða að
ég fer helst ekki í klippingu og
litun nema að einhver
spyrji mig út í öll gráu
hárin, þá drattast ég
af stað. Bið um klipp-
ingu og smá strípur,
en samt má eiginlega
aldrei gera of mikið
því þá finnst mér
ég vera asna-
leg. Ég er
líka komin
upp á lag
með að klippa mig sjálf, klippi
oft toppinn og bæti í stytturnar.
Þessar athafnir eru reyndar ekki
vel séðar hjá hárgreiðslufólki
en ég get svarið að ef ég minn-
ist ekki á þetta (þessi tvö skipti
á ári sem ég fer í klippingu) þá
tekur enginn eftir þessu. Þetta
er heldur ekki sérlega atvinnu-
skapandi atferli hjá mér en ég
reyni bara að bæta það upp á
öðrum sviðum.
Um daginn hitti ég fólk sem hefur
búið í þó nokkurn tíma erlendis
en er nýflutt heim. Þau
voru alveg gáttuð
á einu og spurðu:
Af hverju eru
næstum því allir
á Íslandi með
strípur? Ég gat
ekki annað en
boðið þau velkom-
in í íslenskan raun-
veruleika því þetta
er Reykjavík í
hnotskurn.
Sósíalbanni aflétt
Spáir þú mikið í tískuna? Nei ég
spái nú ekki mikið í hana. Yfirleitt
spái ég frekar í það hvað mér finnst
fallegt. Tískan hefur samt einhver
áhrif því oft er eitthvað fallegt í
tískunni.
Hvernig myndirðu lýsa stílnum
þínum? Hann er einfaldur, þægileg-
ur og bara ansi fallegur held ég.
Uppáhaldshönnuðir eða fata-
merki?
Issey Miyake er í miklu uppáhaldi
hjá mér. Ég er mjög hrifin af
einfaldleikanum sem einkennir
hönnun hans og einnig finnst mér
þessi skúlptúrstemning sem er á
fötunum ansi skemmtileg.
Flottustu litirnir? Rauður og
svartur eru algjörlega í uppáhaldi
hjá mér.
Hverju ertu veikust fyrir? Ef ég
finn rosalega fallegan jakka eða skó
þá get ég ekki sleppt því að kaupa.
Hvaða flík keyptir þú þér síðast?
Ég keypti mér Aftur hettupeysu.
Hvað finnst þér flottast í tískunni
núna? Flottast finnst mér hvað fólk
er orðið sjálfstætt í fatavali. Þegar
ég bjó erlendis og kom heim fannst
mér alltaf allir vera eins. En í dag er
fólk farið að klæða sig meira eftir
sínum eigin persónulega stíl.
Hvað finnst þér nauðsynlegt að
eiga í vetur? Það er algjörlega
nauðsynlegt að eiga fallega spöng
eins og fæst einmitt í Pjúru. Falleg-
ur jakki er einnig afar nauðsynlegur.
Uppáhaldsverslun? Ég verð auð-
vitað að nefna Pjúru en auk þess
finnst mér Nonnabúð alveg frábær.
Hvað eyðir þú miklum pening-
um í föt á mánuði? Ég sauma
mest á sjálfa mig svo það er ekki
mikið sem ég eyði. Í mesta lagi tíu
þúsund.
Hvaða flíkur gætir þú ekki verið
án? Ég gæti ekki lifað án þess að
eiga alls konar ermar. Ég nota þær
á hverjum einasta degi.
Uppáhaldsflík? Ég fékk ofsalega
fallegan kínajakka í jólagjöf og svo
á ég líka afar fínan gallajakka sem
ég er mjög glöð með. Nýja Aftur
hettupeysan mín er líka algjört æði.
Ég er alltaf í henni.
Hvert myndir þú fara í verslun-
arferð? Ég myndi fara til New York
því þar er svo ótrúlega mikið
úrval. Það er nánast hægt
að láta sér detta í hug
hvernig flík sem er og
maður finnur hana.
Ljótasta flík sem
þú hefur keypt
þér? Ég keypti
mér viðbjóðslega
ljótan gervipels
í Gloss þegar ég
var tólf ára sem var
rosalega stór, dökk-
grænn með rennilás.
Oftast leyfi ég mér nú
ekki að kaupa svona dýrar
flíkur nema ég sé viss um
gæði þeirra. En ég lærði af
reynslunni.
SMEKKURINN: KOLBRÚN ÝR GUNNARSDÓTTIR HÖNNUÐUR OG EINN EIGENDA PJÚRU
Flottast þegar fólk er sjálfstætt í fatavali
> Skreyttu þig
með fallegri hárspöng sem
hristir upp í heildarlúkkinu þínu
og lýsir upp janúarskammdegið.
Þessi er frá Roksanda Ilincic og
fæst í Kronkron.