Fréttablaðið - 14.01.2006, Side 70

Fréttablaðið - 14.01.2006, Side 70
 14. janúar 2006 LAUGARDAGUR54 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8 LÁRÉTT 2 báru að 6 hvort 8 útdeildi 9 knæpa 11 í röð 12 mælieining 14 glæpafélag 16 ógrynni 17 utan 18 pípa 20 klaki 21 íþróttafélag. LÓÐRÉTT 1 viðartegund 3 einnig 4 drykkur 5 þak- brún 7 umbætur 10 geislahjúpur 13 ái 15 svari 16 heyskaparamboð 19 guð. LAUSN LÁRÉTT: 2 komu, 6 ef, 8 gaf, 9 krá, 11 rs, 12 karat, 14 mafía, 16 of, 17 inn, 18 rör, 20 ís, 21 fram. LÓÐRÉTT: 1 tekk, 3 og, 4 martíní, 5 ufs, 7 framför, 10 ára, 13 afi, 15 ansi, 16 orf, 19 ra. 1 Ragnar Sverrisson 2 31-30 fyrir Íslandi 3 Argentína [ VEISTU SVARIÐ? ] NÚNA BÚIÐ Gamaldags rósir Fegra hvert heimili og setja á það „Martha Stewart”-svipinn. Sleðar Þetta er afskaplega hressandi og gamaldags sport. Kinnalitur Sér um að rósrauð útivera sé á postulínshúðinni. Mjög sætt. Silkiplöntur Æ, þetta er hálf plebbalegt og auk þess rándýrt. Bleik bindi Það er enginn hnakki með hnökk- um án þess að eiga svona. Búið semsagt. Hlaupabretti Af hverju ertu inni? Drífðu þig út í náttúruna. HRÓSIÐ ...fær rokkabillíbandið Langi Seli og Skuggarnir fyrir að hafa tekið aftur saman en hljómsveitin var mjög vinsæl í lok níunda áratug- arins. „Þetta er eitt stærsta skref sem stig- ið hefur verið í skáksögu Íslands,“ segir Kristjón Kormákur Guðjóns- son, forseti Hróksins, um verkefnið Skáklandið Íslands sem verður að veruleika í dag. Þá mun Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamála- ráðherra kynna sex manna starfs- hóp sem undirbýr tilraunaverkefnið „Skák í skólana“ og miðar að því að skák verði tekin upp sem námsgrein í tíu til fimmtán skólum um allt land. „Skákhreyfingin stendur öll sam- einuð að baki Guðfríði Lilju Grétars- dóttur, forseta skáksambandsins, sem ætlar að helga sig þessu starfi og leiða það,“ segir Kristjón Kormá- kur en að Skáklandinu Íslandi standa Skáksamband Íslands, Skákskóli Íslands, Skákskóli Hróksins ásamt menntamálaráðuneytinu. Sjálfur mun Kristjón ásamt Stefáni Stephensen kennara rita nýja kennslubók fyrir nemendur og kennara um skáklistina. „Þetta á að vera skemmtileg bók fyrir alla þá sem vilja læra skák, enda mark- miðið ekki að gera Ísland að útung- unarstöð fyrir stórmeistara, heldur bæta menntakerfið og ala upp hugs- andi fólk. Skák er jú umfram allt skemmtileg hugarleikfimi.“ Þorgerður Katrín kynnir verk- efnið í Hásölum Strandbergs, safn- aðarheimilis Hafnarfjarðarkirkju. Auk þess mun Hafnarfjörður fá útnefninguna „Skákbærinn Hafnar- fjörður“ og verður miðpunktur nýrr- ar stórsóknar í íslensku skáklífi. Þá verður Hinrik Danielsen sem nýver- ið hlaut íslenskan ríkisborgararétt sérstaklega heiðraður fyrir framlag sitt til skákíþróttarinnar og Ragn- heiður Gröndal og Litli kór Kársnes- skóla munu taka lagið. Hátíðin hefst klukkan 14.30 og er öllum opin. Skákin kemur í skólana KRISTJÓN KORMÁKUR Segir skák umfram allt vera skemmtilega hugarleikfimi. Í kvöld heldur Alþjóðahúsið og rússneska sendiráðið rússneskt diskókvöld á Kaffi Kúltura. Fyrr um daginn gefst áhugasömum kostur á því að skoða nýjan sal MÍR á Hverfisgötu 105 en hann verður opnaður klukkan þrjú. Tilefni dansleiksins er ærið en á miðnætti í gær gekk nýtt ár í garð samkvæmt júlíanska tímatalinu. Reyndar hefur verið haldið upp á nýja árið samkvæmt því greg- oríanska í Rússlandi en Sergey S. Gushchin segir að nýju ári sé nú fagnað samkvæmt kirkjudagatali rússnesku rétttrúnaðarkirkjunn- ar. Sergey er þriðji sendiráðsritari rússneska sendiráðsins og talar íslensku reiprennandi. Hann les íslenska fjölmiðla og greinir frá því sem þar ber hæst en auk þes tekur hann þátt í sendinefndum og viðræðum sem krefjast tungu- málakunnáttu. Fyrir byltingu var við lýði júlí- anska tímatalið í Rússlandi sem kirkjan hélt fast í. Eftir að bol- sévikar tóku völdin var það tíma- tal lagt niður og það gregóríanska tekið upp en Vesturlönd fylgja því. Rétttrúnaðarkirkjan sat hins vegar föst við sinn keip. Það má því segja að fyrsta janúar hafi hinu „veraldlega“ ári verið fagn- að en nú sé verið að taka á móti því „heilaga“. „Rússar fagna nú nýju ári áður en jólahaldið hefst,“ segir Sergey en jólin gengu í garð aðfaranótt sjöunda janúar. „Þetta er í raun viðbótartilefni til þess að skemmta sér,“ viðurkennir hann og hlær. Rússnesk diskókvöld hafa verið haldin undanfarin ár bæði á haustin og vorin og hafa þau notið mikilla vinsælda. Sergey segir að spiluð verði gömul og ný rússnesk tónlist en þegar gengið er á hann kemur í ljós að þriðji sendiráðsritarinn er plötusnúður kvöldsins. „Ég hef verið að safna lögum á mp3-diska,“ segir Sergey en hann kallar sjálf- an sig Dj Sergey. Rússnesk dæg- urtónlist er ekki frábrugðin því sem Íslendingar hlusta á nema það heyrir til undantekninga að rússneskir tónlistarmenn syngi á ensku heldur kjósa þeir frekar að tjá sig á móðurmálinu. „Ég mun spila rússneskt popp, rokk, rapp og hipp hopp. Svo verður líka rúss- neskt reggí á fóninum,“ segir Serg- ey en húsið opnar klukkan ellefu. Þessi einstaki dansleikur stendur til klukkan fjögur um nóttina. freyrgigja@frettabladid.is SERGEY S. GUSHCHIN: ÞRIÐJI SENDIRÁÐSRITARI OG PLÖTUSNÚÐUR Spilar rússneskt rapp og reggí SERGEY S. GUSHCHIN Starfar sem þriðji sendiráðsritari rússneska sendiráðsins en bregður sér í líki plötusnúðs í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ / STEFÁN FRÉTTIR AF FÓLKI Franska kvikmyndahátíðin var sett í Háskólabíói á fimmtudagskvöldið og var fjöldi Frakka samankominn til að berja augum nýjustu mynd Dominik Moll, Lemming. Þeir voru einnig margir Íslendingarnir sem blönduðu geði við þessa miklu menningarþjóð og meðal þeirra voru ljóðskáldið Sigurður Pálsson og leikhússtjórinn fyrrverandi Sveinn Einarsson. Kvikmyndaleikstjór- arnir Ari Alexander og Hilmar Oddsson létu sig heldur ekki vanta og leikarinn Þór Tulinius sat á fremsta bekk. Þá gaf rithöfundurinn Árni Þórarinsson sér einnig tíma til að kíkja í bíó auk þess sem útvarpsmógúllinn Freyr Eyjólfsson var mættur og samstarfsfélagi hans af Ríkisútvarpinu, Ævar Kjartansson, lét sig heldur ekki vanta. Helga Vala Helgadóttir er samkvæmt síðustu fréttum hætt á NFS og gengin til liðs við Kastljósið þar sem hún mun stjórna leikhúsgagnrýni. Helga Vala stjórnaði þættinum Sögur af fólki og hefur verið ákveðið að hætta með þáttinn en hann var á dagskrá stöðvarinnar alla laugardaga klukkan ellefu. Sögur af fólki hóf fyrst göngu sína á Talstöðinni sálugu en Róbert Marshall var fyrsti stjórnandi hans. Stjórnendur NFS voru þó ekki lengi að fylla upp í skarðið því Þorfinnur Ómarsson mun framvegis stjórna þættinum Fréttavikan en hann verður í ætt við Vikulokin sem Þorfinnur stjórnaði einmitt á Rás 1 fyrir ekki margt löngu. Leigubíllinn frægi sem Þröstur Leó Gunnarsson keyrði í kvikmyndinni Nóa albínóa er nú til sölu. Um er að ræða Mercedes Bens 280 SE. Frá þessu er greint á vefsíðunni B2. Þar er krækja yfir á söluaðila bílsins og má þar finna skemmtilega sögu hans sem aðeins hefur verið í eigu þriggja aðila, þar á meðal Björgvins Vilmundarsonar, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, en hann flutti bíl- inn inn nýjan árið 1977. Þess má geta að bíllinn er með bensínvél en vegna þess að flestir leigubílar eru með dísilvél var hljóðbrellum beitt til að láta hann hljóma þannig. SÚR HVALUR OG RENGI HARÐFISKUR OG HÁKARL opið laugardaga 10-14.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.