Tíminn - 16.01.1977, Blaðsíða 18

Tíminn - 16.01.1977, Blaðsíða 18
18 Sunnudagur 16. janúar 1977 menn og málefni Börnin og málið, sem fyrir þeim er haft Frönsk stemming Svo er sagt, aö börnin læri mál- iö af þvi, sem fyrir þeim er haft. „Þar eru blessuö börnin frönsk með borðalagöa húfu”, sagöi Jónas Hallgrimsson, en jí jar ekki að ööru en þessi frönsku börn tali islenzku, kannski þó ofurlitiö dönskuskotna, þvi aö þarna voru lika „yfirvöldin illa dönsk á ann- arri hverri þúfu”. Aftur á móti þótti þá fint, að dætur helztu embættismanna lærðu frönsku, svo að þær væru ekki eins og álfar út úr hól, þegar yfirmenn eftir- litsskipanna, sem fylgdu franska veiðiflotanum á Islandsmiö, héldu veizlur og dansleiki á blið- um og lognværum sumarkvöld- um, og yrðu ekki orðlausar and- spænis hinni stimamjúku kur- teisi, er einkennisbúnir þegnar Loðviks Filippusar voru tamdir við i V inarvölsunum, eða dæmdar til að þegja þunnu hljóði, þegar leitað var út að borðstokkunum við æðaslátt hinnar réttu stemmningar. Austur á fjörðum bjargaöist fólk þó við Fáskrúðsfjarðar- frönsku sem kunnugt er, ef orða þurfti við, enda minna skeytt um hámenningu utan rósagarðs embættisdýrðarinnar á nitjándu öld. Og nóg þótti sóra Hákoni Espólin, þessum stóra og burða- mikla manni, um það, hversu margt báta fór fram hjá kirkju- staðnum, þegar hann var á hött- unum á hlaði úti á messudögum, ef franskar duggur lágu við land inni á firðinum. Það var nú þá. Nú er öldin önnur Nú fæðist ekki ýkjamargt barna með frönsku yfirbragði á tslandi. Fáskrúðsfjarðarfransk- an er týnd og tröllum gefin, og frönskunám ekki lengur sérstakt keppikefli ungra embættis- mannadætra. Enda ekki lengur von i frönskum offfseraböllum á skipsfjöl á Engeyjarsundi. Bless- uð sólin kveður nú annan heim en var, þegar hún gengur undir handan jökuls. Torfundnar eru lika þúfur, sem setnar eru af illa dönskum yfir- völdum. Þar hefur sem sé sú sveifla orðið að þau eru nú helzt illa amerisk — sum hver. Og anzi mörg illa islenzk i mál- íari. Kanseliístíll og hröngulsstíll Þá erum viö komin aftur að hinu gamla orðtaki um málið, sem börnin læra eins og það er fyrir þeim haft. Svo undarlega hefur sem sé brugöið við i seinni tið, að engu er likara en það hafi misst gildi sitt. Við skulum fyrst um sinn halda okkur við stétt lærdómsmanna og stjórnsýslumanna. Frá þessu fólki rennur endalaus straumur af skýrslum, ræðum og greinar- gerðum með þvi málfari, að al- þýöa manna rekur upp stór augu og veit tæpast, hvaöan á sig stendur veðrið. Magnús Stephen- sen varð nafntogaöur af kanselli- stilnum, sem hann tileinkaöi sér, — torræðum, lotulöngum og leið- inlegum. Vafalaust hefur málfar hans orðið honum fjötur um fót, og margt réttmætt og gagnlegt, sem hann vildi innræta þjóð sinni, farið fyrir ofan garð og neðan hjá almenningi sökum þeirrar torf- ristu, sem hann iðkaði, er hann tók sér penna i hönd. Sá hrönguls- still, sem nú riður húsum meðal sérfræðinga og embættismanna i mörgum stofnunum, er keimlikt fyrirbæri, og stefnir óðfluga að þvi, að mynda slika gjá milli þeirra og venjulegs fólks, að um lögreglunnar óstinnt upp”, var fyrirsögn i öðru. „Oliuspill- ingin við Nantucket: Reynt að kveikja i oliuflákanum”, stóð yfir grein i hinu þriðja. I greininni sjálfri var siöan margstagazt á þessari „oliuspillingu”. Fyrir hátiðarnar var þráfald- lega talað um það i blöðunum, og raunar fleiri fjölrpiðlum, að kveikja ætti i brennu eða kveikt hefði verið i brennu, og nær þvi daglega ákæra menn um og á- saka fyrir eitthvað og þess á milli gizka þeirupp á eða skeyta á ann- an hátt saman orðum úr tvennum orðatiltækjum. Undir mynd i einu blaðanna stóð fyrir fáum dögum: „Spænskir kjósendur fengu ný- lega smjörþefinn af lýðræðisleg- um vinnubrögðum I þjóðarat- kvæðagreiöslu”.Þrátt fyrir þetta orðafar mun sá, sem setninguna samdi, ekki vera sérlegur fylgis- maður fasista á Spáni. Smjörþef- ur var bara orð, sem hann notaði, án þess að skilja, hvað það tákn- ar. Ær og kýr eru orð, sem mörg- um verður hált á, þegar þau skulu beygð, og hefur það til dæmis komið átakanlega fram i fyrir- sögn I Timanum ekki alls fyrir löngu. Dæmi um ofnotkun nafnorða á kauðskan hátt er fyrirsögn i öðru blaði: „Carillo er fylgjandi veru herstöðva á Spáni og veru lands- ins i EBE”. Og i öðru slðdegis- blaðanna: „Hvað ræður gangi hraða mála i dómstólakerfinu?” Blaðamenn afsaka sig oft með þvi, að það sé „gangur hraða”, sem veldur villum þeirra og an- kannalegu málfari. Þar er þó þvi til að svara, að það er ekkert f jót- legra að skrifa rangt mál og klaufalegt en rétt og lipurt, ef menn vita hið rétta, kunna nokk- um veginn að haga oröum sinum, svo að vel fari, og skilja sina gagnsæju tungu að þvi marki, að þeir haldi ekki, að brenna sé sama og bálköstur og kind merki endilega lambær, svo að nefnd séu dæmi um þaö, sem menn glæpast oft á. Börnin urðu „spæld”, var ný- lega sagt i barnatima sjónvarps- ins. Það er slæmt verk að „spæla” tungutak ungu kynslóö-' arinnar. Menn ættu ekki að leggja það i vana sinn. Þeir, sem hafa atvinnu af þvi að skrifa og tala i þágu fjölmiðla, ættu að taka sjálf- um sér tak, svo að þeir geri sig ekki seka um þess konar spell- Skipulagssýning Reykjavikurborgar á Kjarvaisstöðum. bráðum verða þeir að fara að ráða sér túlka, ef þeir vilja ekki einangrast i filabeinsturnum sin- um. Við vitum, hvaðan Magnús Stephensen hafði kanselllstilinn. Hitt er ráögáta, hvaðan hrönguls- stlllinn nýi er kominn inn I landið. Miðaldamenn héldu, að mýs kviknuðu af sjálfu sér i tunnu, ef látið væri I hana nóg af rusli. Ef til vill á hröngulsstillinn sér þess konar upphaf. En hann er ekki heppilegur, ef til þess er ætlazt, að almenningur fylgist eitthvað með málum, sem þeim höndum er farið um, þvi að þeirhljóta að vera býsna margir, sem gefast upp við lesturinn. Svo mjög er hægt að vefja og flækja alla hluti i frásögn, aö fáir leggi á sig aö þræða ganga völundar- hússins. Að fela í sér útstreymi Hér á borði liggja gögn úr tveim áttum, fréttatilkynning frá fjármálaráðuneytinu og pési vegna skipulagssýningar að Kjarvalsstöðum. Ekki skal full- yrt, hvortþessi gögn eru betri eða verri en margt annað, sem út er látið ganga og á aö vera almenn- ingi til skilningsauka. En hvort tveggja ber þaö með sér, að enn er rist torf af kappi, og ekki svo mjög til þess hugsað, hvemig þaö nýtist þeim, sem það er ætlað. Fréttatilkynningin hefst á þess- um orðum: „Bráðabirgöatölur liggja nú fyrir um greiösluafkomu A-hluta rikissjóös á árinu 1976.” Látum það liggja á milli hluta, að flest „liggur fyrir” nú á dög- um. En hvað er „greiösluafkoma A-hluta rikissjóðs”? Tæpast geta aðrir gert sér það I hugarlund en alþingismenn og aðrir þeir, sem um fjárlög fjalla. óútskýrt á þetta atriði litið erindi I blöð og útvarp. Þeir, sem þetta semja, eru lokaðir inni i einhverjum hring, sem þeir sjá ekki út fyrir. Og áfram er haldið: „Jöfnuður lánahreyfinga utan Seðlabanka sýndi 1,2 milljarða innstreyni fjár”. Ekki er þetta tungumál, sem talað er á fiskiskipum eða sveita- bæjum eða i verksmiðjum. „Greiðsluáætlanirgjalda gerðu ráð fyrir 68,0 milljarða króna út- streymi og eru þvi greidd gjöld um 400 milljónir króna umfram þær áætlanir... A árinu 1975 var mismunur greiddra gjalda og innheimtra tekna, ásamt jöfnuði lánahreyfinga utan Seðlabanka neikvæður um 6,4 milljarða króna I samanburði við jákvæða hreyf- ingu nú um 1,1 milljarð króna... Greiðsluhreyfingar við Seðla- banka sýna skuldaaukningu að fjárhæð 800 milljónir króna... Greiðsluhreyfingar ríkissjóðs gagnvart öðrum viðskiptaaðilum fólu i sér útstreymi úr rikissjóði.” Já, fólu i sér útstreymi. Manni dettur i hug miðilsfundur. Og haglega er nafnorðunum raðað saman eins og titt er I slikum plöggum. ,,Guð hinna ýmsu aðstæðna" Þá er það pésinn, sem réttur var að gestum á skipulagssýning- unni á Kjarvalsstöðum. Hann er um það, hvernig á aö „mæta byggðaþróun”: „Árangur af þvi starfi, sem unnið hefur verið við endurskoð- un aðalskipulags Reykjavikur, liggur nú fyrir og hefur hlotið um- fjöllun i skipulagsnefnd”. Þessi fyrirliggjandi árangur starfs, sem bæði hefur verið unnið og hlotið umfjöllun, er siðan rakinn. Beitt var nýrri aðferð við könnun svæða, þar sem hugsanlegt er að býggja, og er hún kölluð „nei- kvæðis- og jákvæðisathugun”. „Aðferö þessi mótast af því, aö hin ýmsu einkenni og' aðstæöur á svæðinu eru flokkaðar niður”. Sum svæði reynast óhentug, þeg- ar þau eru „flokkuð niöur” „Einkenni jákvæðisathugunar- innar eru aftur á móti þau, að gæði hinna ýmsu aðstæðna, svo sem hitafars, úrkomumagns og skjólgæða, eru flokkuð og túlk- uð”. „Akveðið varaðhafa hlutföll i svæöanotkun álika og eru i Reykjavik innan Elliöaáa,” en einnig lagt til, „að tekið verM upp mun fullkomnara kerfi viðvikj- andi stjórnun á landnotkun” i gömlu hverfunum. Mikið er rætt um „aöstöðu” eins og nú er titt: „Könnun á þörf- um atvinnulifsins fyrir hafnarað- stööu”, „enn er óleyst hafnarað- staða oliuflutninga, svo og að- staða fyrir aðra starfsemi, er krefst sérhæfðrar hafnarað- stöðu” og „áherzla lögð á aðstöðu fyrir gangandi fólk”. Gert er ráð fyrir markaðstorgi, og „i sam- bandi við markaðinn er alls konar aðstaða til félagslegra athafna”. Og þó það nú lika væri. „Skipulag og hönnun miðbæjar er ekki ein- göngu að skapa hagkvæman og notadrjúgan ramma fyrir nauð- synlegar og markvissar athafnir verzlunar, viðskipta og menning- armiðlunar, heldur einnig að hlúa að og verja fjölþætt samlíf I mið- bænum, sem frjálsar, tilviljana- kenndar athafnir eru stór þáttur I”. I fylgd með aðstöðunni góð- kunnu er svo aðkoma: „Vöruað- koma”, „aðkomumöguleikar svæðis”. Mælt er með „áframhaldandi uppbyggingu”. trjágróðurs i Reykjavik, og með breytingunum á Lækjartorgi og Austurstræti „var hafin gerð á nýrri tegund útivistarrýmis fyrir gangandi fólk”. Við sögu kemur einnig reikni- likan. Það er „safn stærö- fræðilegra falla, sem tjá sam- bandið milli landnotkunar, bif- reiðafjölda, gatnakerfis og um- ferðarálags á einstakar götur”. „Reiknilikanið reiknar siðan út umferðarstraum milli reitanna”, og „f reiknilikaninu má rannsaka umferðarlegar afleiðingar mis- munandi landnotkunartillagna og gatnakerfa”. Hér er bezt að láta staðar numið. Sjálfsagt er margt gott og gagnlegtihinu nýja skipulagi. En óneitanlega er málfar skipulags- fræðinganna fjári þvælið. Við skulum samt vona, að „aðstaöan til félagslegra athafna”, „hinar frjáisu, tilviljanakenndu athafn- ir” I miðbænum og „umferöar- legu afleiðingar” skipulagsins dragi ekki dám af þvi. Skömm í hattinn Að loknum þessum pistli um málfar sérfræðinga og stjórn sýslumanna er ekki nema rétt- mætt, að blöðin fái sinn skammt. Bágborið málfar á siðum þeirra kemur fyrir margra sjónir. Þvi, sem þar ber fyrir augu er likt far- ið og fræi sem getur^piraö og upp af þvi sprottið illgresi á akri tung- unnar, ef til þess er sáð. Nokkrar fyrirsagnir úr ýmsum blöðum nú siöustu vikur veita bendingu um, hvers vænta má i sjálfu lesmálinu: „Búvörudeild SIS fær hrós I hattinn”, var prent- að væpu fyrirsagnalegri I einu blaðanna. „Italarnir tóku aðgerð-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.