Tíminn - 16.01.1977, Blaðsíða 28

Tíminn - 16.01.1977, Blaðsíða 28
MEÐ UNGU FOLKI I SKAGAFIRÐI 28 4<♦ Sunnudagur 16. janúar 1977 MÓ-Reykjavik. — Guðmundur Guðmundsson heitir ungur maður, sem vinnur að tóm- stunda- og æskulýðsmálum I Skagafiröi. Hann er að hálfu ráðinn hjá Sauðárkróksbæ, en að öðru leyti starfar hann hjá Ungmennasámbandi Skaga- fjarðar og Ungmennafélaginu Tindastóli á Sauöárkróki. Hann kom til starfa i byrjun ágúst sl., og vist er, að siðan hefur i mörg ho_rn verið að lita hjá honum, þvi þegar áhugasamir menn hefja störf við félags- og æsku- lýðsmál, eru verkefnin næg. A ferð um Skagafjörð nýlega tókum við Guðmund tali og spurðum fyrst um starfsemi ungmennasambandsins. Hjá þvi er i gangi spurningakeppni milli sveitarstjórna i héraðinu og sitthvað er aö gerast á i- þróttasviðinu og áherzla er lögð á félagsmálafræðslu. Nýtt ungmennafélag í Fljótum — Við leggjum áherzlu á að koma á nokkrum félagsmála- námskeiðum i vetur þar sem ræðumennska veröur þjálfuð, innsýn gefin i félagsstörf og leiðbeint um fundarsköp. Einnig verður leitazt viö að þjálfa ör- yggiskennd hvers einstaklings, sem námskeiðin sækja. begar höfum við haldið eitt slikt námskeið i Fljótum, en þar hefur ekki verið starfandi ung Guömundur Gunnarsson framkvæmdastjóri. mennafélag um árabil. Arang- ur af þessu námskeiði sem var mjög vel sótt, varð sá að nú hef- ur ungmennafélagið þar verið endurvakið. Skiðafélag hefur verið starfandi i Fljótum, enda eru þar landsþekktir skiða- menn. Þaö mun nú sameinast ungmennafélaginu, og vonandi verður þetta til þess að örva alla iþrótta-og félagsstarfsemi I Fljótum. Hvert verður framhald á þessum félagsmálanámskeið- um er enn ekki alveg ljóst, en við höfum mikinn hug á að fara með félagsmálafræðslu inn i skólana og vekja áhuga ungl- inganna á hollri og góöri tóm- SIVAXANDI ÞC ÆSKULÝÐSSTAI — rætt við Guðmund Gunnarsson framkv tómstundafulltrúa Sauðórkróks stundaiðju, jafnframt þvi sem við leiðbeinum þeim til þess að verða hæfari til að starfa i félög- unum. Sveitastjórnirnar svara Þá settum við af stað spurn- ingakeppni milli sveitastjórn- anna i héraðinu nokkru fyrir jól. Markmið með þessari spurn- ingakeppni er að kynna starf- semi ungmennasambandsins og vekja athygli á sivaxandi þörf fyrir æskulýðsstarfsemi, um leið og þessi keppni á bæði að vera til fróðleiks og skemmt- unar fyrir þátttakendur og á- horfendur. Ekki er alveg ljóst, hvort allar sveitastjórnir muni taka þátt i keppninni, en viö vonum, aö svo verði. Keppnin er útsláttar- keppni, en alls mun hún standa 7-8 kvöld . Að lokinni spurninga- keppni er dansað hvert kvöld. Óhætt er að segja, að keppnin hafi byrjað vel, og margir komu til þess að fylgjast meö enda var áhugi á keppninni strax mikill og virðist fara vax- andi. Tvö skagfirzk lið í islandsmótið i knattspyrnu Iþróttaáhugi hér I Skagafiröi er mikill, sagði Guðmundur og iþróttaviðburðir frá ári til árs nokkuð svipaðir. Mestur er áhuginn á knattspyrnunni, og viö hana hefur mest rækt verið lögð. Nú hefur veriö ákveðið aö tvö lið úr Skagafiröi taki þátt i þriðju deild tslandsmótsins i knattspyrnu. Er annað liðið frá Sauðárkróki, en hitt frá Hofsósi. Áöur hefur aðeins eitt lið úr ,Skagafirði tekið þátt i mótinu og keppt undir nafni ungmenna- sambandsins. Af öðrum iþróttaviðburðum, má nefna sagði Guðmundur að nýlokiö er hraðmóti i körfu- bolta, og ætið er mikið um sund- iðkun i héraðinu. Þá eiga Skag- firðingar góöum frjálsiþrótta- mönnum á aö skipa, og s.l. sumar vann sambandið bikar- Sundáhugi er mikill i Skagafiröi. Lárus Friöfinnsson, ólafur Viöar Hauksson og A keppni FRI I þriðju deild. Nú erum við að vinna að þvi að auka samskipti milli skól- anna i héraöinu á sviði iþrótta, enda erum við þess fullvisssir, að bezta ráðið til þess að auka i- þróttaáhuga unglinganna, sé að koma á keppni milli þeirra. Einnig stefnum við aö þvi aö komast i keppnisferöir til fjar- lægari staða i auknum mæli, og væntum við þess að geta fariö með sundfólk okkar i keppnis- ferð innan tiðar. Tvö ungmennafélög 70 ára A árinu verða tvö ungmenna- félög iSkagafirði 70ára. Það er ungmennafélagið Tindastóll og ungmennafélagið Fram i Þórarinn Magnússon bóndi og varaform. Ungmennasambands- Ingibjörg Guöjónsdóttir, Sigurlina Gfsladóttir og Guörföur ólafsdóttir i keppni á héraösmótinu ins. Hann setti héraösmet i 1500 m hlaupi Isumar. i sumar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.