Tíminn - 16.01.1977, Page 35
Sunnudagur 16. janúar 1977
35
Akranes:
352 hús í
byggingu
árið 1976
F.I. Reykjavik.AUs voru I bygg-
ingu á Akranesi árið 1976 352
hús, ibúðarhús, opinberar bygg-
ingar og fl., og fer heildarrúm-
metrafjöldi þessara bygginga
upp I 218.347 rúmm. Af 352
húsum var fulllokið við 71 hús á
árinu, og er samanlagður rúm-
metrafjöldi þeirra 46.367 rúmm.
Auk þessa var i byggingu alls
261 ibúö, og voru 54 þeirra full-
geröar á árinu, en til saman-
burðar má geta þess, að full-
gerðar ibúðir á árinu 1975 voru
19 talsins. Þessar tölur voru
fengnar i byggingaskýrsiu
Akraneskaupstaðar fyrir áriö
1976.
Þessi þrjú hundruö fimmtiu
og tvö hús i byggingu á Akranesi
á siðastliönu ári skiptast sam-
kvæmt áöurnefndri skýrslu
þannig: 150 ibúðarhús, 179 bil-
geymslur, 13 iðnaðarhús, 2
verzlanir og 8 opinberar bygg-
ingar.
Þau 71 hús, sem lokið var viö,
felaaftur á mótii sér, 21 ibúðar-
hús, 42 bilgeymslur, 4 iðnaöar-
hús, 1 verzlun og 5 opinberar
byggingar. Iþróttahús var tekið
i notkun i febrúar 1976, bama-
bókasafn i marz og ný heilsu-
gæzlustöð i april.
Af öðrum verklegum fram-
kvæmdum má nefna það, að
varanlegt slitlag var borið á
2428 m vegakafla. Holræsa- og
vatnsveituframkvæmdir voru
einnig mikið á döfinni, og unniö
var á vegum hitaveitunnar á
jarðvegsrannsóknum að Leirá.
Lögfræðingur óskast
Staða löglærðs fulltrúa við sýslumanns-
embættið i Barðastrandarsýslu er laus til
umsóknar.
Umsóknir með upplýsingum um fyrri
störf sendist undirrituðum, sem gefur
allar nánari upplýsingar fyrir 1. febrúar
n.k.
Sýslumaðurinn i Barðastrandarsýslu
14. janúar 1977
Jóhannes Árnason.
BÆNDUR
varanleg
álklædning, á þök, loft og veggi-úti og inni.
Álplötur með innbrenndum litum sem þarf aldrei að mála, gott er að þrifa og auövelt i uppsetningu.
Hentar vel á ibúðarhús, gripahús, skemmur, hlöður og þá staði, sem þörf er á góðri varanlegri
klæðningu. Framleiddar af Nordisk Aluminium A/S, Noregi í mismunandi gerðum.
Reynist vel við islenskar aðstæður. Hafið samband við okkur og við gefum þér verðtilboð og
ráðleggingar ef óskað er.
INNKAUP HF
/IXilSCiÖ l lI 7 ItliYKI AVÍK. SÍMI 22000-l’ÓSTHÓI.F 1012 TEI.F.X 2025 SÖLUSTfÓRI:
IIEIMASlMI 71400.
söffnun A77
A þingi Alþýöuflokksins siðastliðið haust var gerð ftarleg úttekt á eignum, skuldum og
fjárhagslegum rekstri flokksins. Var þetta gert á opnum fundi, og fengu fjölmiölar öll
gögn um máliö. Hefur enginn stjórnmálaflokkur gert fjárhagslega hreint fyrir sinum
dyrum á þann hátt, sem þarna var gert.
Það kom i Ijós, að Alþýðuflokkurinn ber allþunga byrði gamalla skulda vegna Alþýðu-
blaðsins. Nú um áramótin námu þær 8,4 milljónum króna að meötöldum vangreiddum
vöxtum.
liappdrætti flokksins hefur varið mestu af ágóða sinum til að greiða af iánunum. Þaö
hefur hinsvegar valdið þvi, aö mjög hefur skort fé til aö standa undir eölilegri starfsemi
flokksins, skrifstofu meö þrjá starfsmenn, skipulags- og fræðslustarfi.
Kramkvæmdastjórn Alþýðuflokksins hefur samþykkt að hefja söfnun fjár til aö greiöa
þessar gömlu skuldir að svo miklu leyti sem framast er unnt. Verður þetta átak nefnt
..Söfnun A 77” og er ætlunin að leita til sem flestra aðila um land allt. Stjórn söfnunar-
innar annast Garöar Sveinn Arnason frarakvæmdastjóri flokksins. Má senda framlög
til hans á skrifstofu flokksins i Alþýöuhúsinu, en framlög má einnig senda til gjaldkera
flokksins, Kristinar Guðmundsdóttur eða formanns flokksins, Benedikts Gröndal.
Þaö er von framkvæmdastjórnarinnar, að sem flcstir vinir og stuðningsmenn Alþýðu-
flokksins og jafnaöarstefnunnar leggi sinn skerf I þessa söfnun, svo aö starfsemi flokks-
ins komist sém fyrst i eðlilegt horf.
Alþýöuflokkurinn