Fréttablaðið - 23.01.2006, Side 19
MÁNUDAGUR 23. janúar 2006 3
Settu fagmenn í málið...
Vantar þig rafvirkja?
Ertu að breyta eða byggja?
Við tökum að okkur:
- Raflagnir í nýbyggingum.
- Breytingar og viðhald á hvers kyns raflögnum fyrir einstaklinga, fyrirtæki og húsfélög.
- Sérhæfum okkur í raflögnum skrifstofuhúsnæða.
- Tökum að okkur að leggja loftnetslagnir, símalagnir og tölvulagnir.
- Veitum ráðgjöf við val á raflagnaefni t.d ljósum og innlagnaefni.
Við veitum góða þjónustu á verði sem kemur þægilega á óvart.
Rafvirkjar Reykjavíkur
Sími: 511-2555 • www.rar.is
RAFVIRKJAR.R
3X20
557962
Elías Jón Guðjónsson er for-
maður Stúdentaráðs Háskóla
Íslands. Þegar hann er inntur
eftir uppáhaldsbyggingu sinni
var svarið Sundhöll Reykja-
víkur. Auk þess að gleðja Elías
gegnir hún einnig mjög prakt-
ísku hlutverki í lífi hans þessa
dagana.
„Sundhöllin í Reykjavík er í miklu
uppáhaldi hjá mér. Mér finnst hún
miklu skemmtilegri en þessar nýju
sundlaugar,“ segir Elías. Honum
finnst einnig að stemningin, klef-
arnir og sundhöllin sjálf geri það
að verkum að það sé skemmtilegt
að fara í sund, jafnvel þó að ekki
sé farið nema í sturtu og aðeins í
pottinn.
Baðherbergi Elíasar er í tíma-
bundnu verkfalli og á meðan sér
Sundhöllin um að Elías komi ekki
illa lyktandi í skólann. Af þeim
sökum er hann búinn að vera fasta-
gestur í Sundhöllinni síðan í sept-
ember. „Ég reyni að koma við og
fara í sturtu á hverjum degi, nema
ég sé að fara í aðra líkamsrækt. Svo
fer ég í pottinn eins og tíminn leyf-
ir,“ segir Elías. „Í pottunum í sund-
höllinni er líka svo skemmtilegt
fólk og þar fara fram skemmtilegar
umræður,“ segir Elías enn fremur.
„Það geta allir tekið þátt í umræð-
unum og enginn er útilokaður. Það
eru engar klíkur.“
Það verður nóg að gera hjá
Elíasi á næstu misserum. Eins og
kunnugt er komst Háskólalistinn
í sögulega oddastöðu eftir síðustu
kosningar innan Háskóla Íslands
og þrátt fyrir að vera fámennari
en bæði Röskva og Vaka féll for-
mannsstóllinn honum í skaut. Það
er ekki auðvþelt að sætta og miðla
málum milli Röskvu og Vöku en
hann reynir sitt besta jafnframt
því sem heldur hann áfram námi
sínu í stjórnmálafræði.
tryggvi@frettabladid.is
Sundhöllin heldur
mér hreinum
Elías Jón Guðjónsson á bakkanum í Sundhöll Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM.
Húnar og höldur
Þegar skipta þarf um húna eða höldur á skáp-
um eða hurðum þarf að sýna örlitla fyrirhyggju
áður en ráðist er í verkið.
Viljir þú losna við
miklar framkvæmdir
þegar þú skiptir um
húna er best að hafa nýju húnana
í sömu stærð og þá gömlu og muna
að taka gamla húninn með í búðina svo
að öruggt sé að rétt stærð á nýjum
húni verði valin. Sértu að koma
fyrir höldum eða húnum á nýjum
stað á innréttingunni, eða í annarri
stærð, skaltu alltaf bora í hurðina eða skúff-
urnar að framan. Við borunina getur viðurinn
rótast upp, en það viljum við ekki láta sjást á
framhliðinni. Mældu og mátaðu hvar þú ætlar
að bora áður en þú leggur til atlögu.
Ræsi og þak-
rennur
Nú er vætutíð þar sem
rigning dynur yfir öllu
alla daga með tilheyrandi
vatnselgi. Því er ekki úr
vegi að athuga vel að
ræsi og niðurföll í grennd
við hús séu ekki stífluð
eða að leysingasnjór eða
annað hindri að vatn geti
runnið sína leið. Þegar
skiptist á með frosti og
leysingum geta þakrennur
einnig stíflast og því ágæt
regla að athuga reglulega
hvort ekki streymi eðli-
lega úr þeim.
til umhugsunar }