Fréttablaðið - 23.01.2006, Side 22
23. janúar 2006 MÁNUDAGUR6
Magnús Þórðarson, bygginga-
meistari og matsmaður að
mennt, ráðleggur kaupendum
fasteigna að leita sér hjálpar
við fasteignaskoðun. Margir
gefa sér ekki tíma til að skoða
ástand fasteignar nægilega og
sitja svo í reikningasúpunni.
Magnús Þórðarson starfar sem
matsmaður fasteigna og segir
hann marga kaupendur flaska á því
að kaupa eign sem ekki sé í góðu
ástandi. „Kaupendur í dag eru ekki
þjálfaðir til að skoða hús,“ segir
Magnús. „Í dag þarf sérþjálfun í
þetta. Stundum sé ég hreinlega á
útidyrahurðinni hvort allt sé í kaosi
inni. Kaupandi getur heldur ekki
búist við því að seljandi láti honum
í té allar þær upplýsingar sem hann
þarf að vita. Seljandinn reynir að fá
það sem hann getur fyrir eignina.“
Í lögum er tilgreint hvað telst
til leyndra galla í fasteignum. Hins
vegar verða kaupendur að gera sér
grein fyrir því að það er á þeirra
ábyrgð að kanna ástand eignar.
Allir gallar eða viðgerðir sem þarf
að sinna sem ekki teljast til leyndra
galla lendir á kaupenda. „Þegar
fólki finnst það sjá góða eign þá
slökknar á öllum viðvörunarkerf-
um,“ segir Magnús. „Fólk vill bara
þessa tilteknu eign og situr svo í
súpunni. Margir lenda í því að fá
stóra skelli og háa bakreikninga.“
Magnús segir það fara eftir
aldri húsa hverju nauðsynlegt sé að
huga að áður en eignin er keypt. Í
eldri húsum sem byggð eru upp úr
1960 er nauðsynlegt að athuga vel
skólplagnir og dren. „Fólk á að láta
mynda skólplagnir. Það er bráð-
nauðsynlegt, sérstaklega í eldri
húsum. Gömul hverfi eru oft með
mjög slæmar skólplagnir,“ segir
Magnús. Einnig ráðleggur Magnús
fólki að skoða vel hús að utanverðu,
sérstaklega þau sem byggð eru á
alkalí-tímanum frá 1960 til 1980.
Alkalískemmdir eru mjög algengar
í þessum húsum. „Í mörgum tilfell-
um er búið að klæða þetta af en ef
ekki þá þarf að gæta vel að öllum
útveggjum,“ segir Magnús. „Eldri
hús sem eru byggð í kringum
1920 eru mörg hver í mjög slæmu
ástandi. Ég vil kalla þau dúfnakofa
því þetta eru varla mannabústaðir
en þetta er selt fyrir morðfjár. Í
þeim tilfellum ráðlegg ég kaupend-
um að leita sér hjálpar. Alls ekki
gera tilboð í svo gamla eign án þess
að láta skoða hana áður.“
Magnús segir nauðsynlegt fyrir
kaupendur að fá greinargóðar upp-
lýsingar frá matsmanni sem getur
leitt þá í sannleikann um stöðu
eignarinnar. Auðvitað fylgir því
kostnaður að fá matsmann, en sá
kostnaður er smávægilegur miðað
við þau verðmæti sem eru í húfi.
Nánari upplýsingar má finna á
www.mat.is.
johannas@frettabladid.is
Ekki kaupa dúfnakofa
Áður en tilboð er gert í fasteign er nauðsynlegt að láta meta húsið bæði að utan sem
innan. Sérstaklega eldri hús og hús sem byggð eru á alkalítímanum.
Með því að láta fagmenn skoða eign getur
kaupandi verið viss um að fá allar þær
upplýsingar sem hann þarf um ástand
eignarinnar. Að auki hefur matskoðun í
sumum tilfellum leitt til þess að kaupendur
hafa getað lækkað söluverðið.
Magnús Þórðarson, byggingameistari og matsmaður, telur fólk ofmeta hæfileika sína til að
skoða ástand íbúða. Í mörgum tilfellum getur það haft fjárhagslega slæmar afleiðingar að
kaupa fasteign án þess að láta fagmann meta hana áður.
VALSHEIÐI - GLÆSIHÚS - HVERAG.
Glæsilegt einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bíl-
skúr. Sjónvarpsherbergi og fjögur svefnherbergi eitt með
fataherbergi og baðherbergi inn af. Björt stofa og borð-
stofa með mikilli lofthæð. Húsið er til afhendingar í vor til-
búið undir tréverk að innan og fullbúið að utan með
grófjafnaðri lóð. Verð 37 millj.
BIRTINGAKVÍSL - ENDAHÚS
Mjög vandað endaraðhús á tveim hæðum með innbyggð-
um bílskúr. Þrjú svefnh. með skáp, flísalagt baðh., for-
stofa með skáp, hol og þvottherbergi með útgang á lóð á
neðri hæð. Rúmgott herbergi með skáp, salerni, eldhús,
björt og góð stofa og borðstofa á efri hæð. Náttúrustein,
flísar og parket á gólfum. Hiti í stéttum. Verð 36,7 millj.
SKÁLAGERÐI - ENDA ÍBÚÐ
Vorum að fá í sölu mjög góða 3ja herbergja íbúð á 1. hæð
í litlu fjölbýlishúsi á tveim hæðum. Gott eldhús með
snyrtilegri innréttingu og baðherbergi með kari. Tvö góð
herbergi með skápum og stofa með útgang á baklóð.
KEILUGRANDI - BÍLSKÝLI
Mjög góða 2ja herbergja íbúð á 3. hæð með sér stæði
bílageymslu. Fallegt eldhúsa og björt stofa með útgang á
suðvestur svalir. Rúmgott baðherbergi og gott svefnher-
bergi með skáp. Flísar og parket á gólfum. Verð 14,9 millj.
Vallarhús - Raðhús
Mjög gott enda raðhús á tveim hæðum innst í botnlanga. Neðri hæð skiptist í forstofa, hol, salerni, eldhús þvottaherbergi
og stofa með útgang á lóð. Efri hæð skiptist í gang, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Yfir efri hæð er innréttað þakher-
bergi. Ákv. 18 mill. í lífsj.lán með 4,15% föstum vöxtum. 29,8 millj.
Fr
u
m
Logafold - Glæsieign
Glæsilegt 325 fm einbýlishús á tveimur hæðum. Á efri hæð er stofur og borðstofa með mikilli lofthæð, eldhús með stóru búri
innaf, flísalagt baðherb. og stórt svefnherbergi. Á neðri hæð eru þrjú stór herbergi, flísalagt baðherb., geymsla og 70 fm bíl-
skúr. Svalir út af borðstofu og suður garðsvalir. Innréttingar og innihurðir eru sérsmíðaðar úr eik. Massíft eikarparket og
náttúrusteinn á gólfi. Útihurðir og þakkantur úr harðviði. Glæsileg útsýnislóð innst í botnlanga sem liggur að óbyggðu
svæði. Verð Tilboð