Fréttablaðið - 30.01.2006, Síða 1

Fréttablaðið - 30.01.2006, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI VEÐRIÐ Í DAG Sími: 550 5000 MÁNUDAGUR 30. janúar 2006 — 29. tölublað — 6. árgangur FYLGSTU MEÐ! KALLAR NIR GILLZE NEGGER – PAR TÝ-HAN Z BYRJA Í KVÖLD KL. 20:30 HREINN HJARTARSON Þekkir Breiðholtið vel fasteignir hús Í MIÐJU BLAÐSINS UNIFEM í þrjátíu ár Afmælisári UNIFEM var hleypt af stokkunum með því að tilnefna leikkonuna og óskars- verðlaunahafann Nicole Kidman velgjörð- arsendiherra samtakanna. TÍMAMÓT 56 16% 31% F ré tt a b la › i› F ré tt a b la › i› M b l. M b l. *Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallup í október 2005. Fasteignablað Morgunblaðsins Allt-fasteignir. á mánudegi LESTUR MEÐAL 25-45 ÁRA Húsnæðisleitin hefst í Fréttablaðinu ROFAR TIL Í dag verður suðvestlæg átt. Yfirleitt fremur hæg. Rigning í fyrstu suðaustan til en úrkomuminna síðdegis. Hætt við smáskúrum vestan til en rofar til á Norðaustur- og Austurlandi. Hlýtt í veðri. VEÐUR 4 7 5 7 8 6 ÍRAK, AP Réttarhaldið yfir Saddam Hussein snerist enn og aftur upp í hálfgerðan skrípaleik er ný til- raun var gerð í gær að hefja það aftur eftir nokkurt hlé. Sakborn- ingurinn og verjendalið hans fór í fússi úr dómsal, hrópaði „niður með landráðamenn“ og neitaði að þiggja nýja dómskipaða verjend- ur. Nýr yfirdómari réttarins, Raouf Abdel-Rahman, reyndi að sýna festu við stjórn réttarhalds- ins og hélt dagskránni áfram þótt sakborningurinn væri farinn og hlýddi á vitnisburð þriggja vitna sem ákæruvaldið kvaddi til. Að því loknu var réttarhaldinu frestað fram á miðvikudag. ■ Réttarhaldið yfir Saddam: Fór í fússi úr réttarsalnum Að gúgla Merkilegt er að sjá þegar lærðir málfræðingar nota ekki fágæt tækifæri til að taka þátt í eilífri sköpun íslenskrar tungu, heldur láta sem búið sé að loka málinu fyrir nýjum orðum, skrifar Guðmundur Andri Thorsson. Í DAG 18 Dropi í hafið Kýótó-sáttmálinn er álíka gagnlegur í baráttunni gegn loftslagshlýnun og lek vatnsfata gegn skógareldi, að mati Guðmundar Harðar Guðmundssonar, meistaranema í umhverfisfræðum. UMRÆÐAN 19 NYLON HÓPURINN Tekur rolling stones upp á sína arma Hyggja á útrás til Bretlands FÓLK 34 DEILT VIÐ DÓMARANN Saddam Hussein deilir við nýja yfirdómarann í gær. FRÉTTABLAÐIÐ / AP Tap gegn Ungverjum Íslenska landsliðið í handbolta tapaði gegn Ungverjum í lokaleik C-riðils á Evrópu- mótinu í Sviss í gær. Úrslit leiksins skipta þó ekki máli og liðið fer áfram í milliriðil með þrjú stig. ÍÞRÓTTIR 30 FINNLAND, AP Jafnaðarmaðurinn Tarja Halonen var í gær endur- kjörin forseti Finnlands í tvísýnni úrslitaumferð kosninga til embætt- isins. Halonen fékk 51,8 prósent atkvæða en keppinautur hennar, íhaldsmaðurinn Sauli Niinistö, 48,2 prósent. Kjörsókn var allgóð, eða 77 prósent. „Karlmaðurinn tapaði,“ sagði Niinistö er hann játaði sig sigraðan og smellti kossi á hönd Halonen. Halonen lýsti sigri sínum sem sögulegum, þar sem hún er fyrsti forsetinn í sögu finnska lýðveldis- ins sem nær endurkjöri í beinum kosningum. Þess er einnig minnst í Finnlandi um þessar mundir að nærri öld er liðin síðan konur fengu kosningarétt og kjörgengi og urðu þar með fyrstar kvenna í heimin- um til að hljóta slík réttindi. Frá því Halonen var fyrst kjör- in forseti árið 2000 hefur hún notið mikillar lýðhylli og í fyrri umferð kosninganna fékk hún 46 prósent atkvæða. Niinistö, sem er fyrrverandi fjármálaráðherra og bankastjóri, fékk aðeins 24 prósent þá og því þótti Halonen það viðurkenningar vert hversu nálægt hann var að slá henni við nú í seinni umferðinni. Tapani Vaahtoranta, forstöðu- maður Alþjóðamálastofnunar Finnlands, sagði að sigur Halonen þýddi að öllum líkindum að Finn- ar gengju ekki til liðs við NATO á kjörtímabili hennar, það er næstu sex árin. - aa Tarja Halonen endurkjörin forseti Finnlands: Sigur Halonen var naumur SÁTT OG SAMLYNDI Keppinautarnir Niinistö og Halonen fylgjast með fyrstu tölum í Helsinki í gærkvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LAUNAMÁL Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambands- ins, á von á því að viðræður um endurskoðun launasamninga við Samtök atvinnulífsins muni fara fram á næstunni í ljósi þess að sveitarfélögin telja sig geta hækk- að lægstu laun um tólf prósent. „Í ljósi þess að launanefnd sveitarfé- laga er að boða þessar breytingar nú á miðju samningstímabili, og í raun á upphafstíma samningstím- ans hjá mörgum, þá myndast rými til þess að ræða það hvort það sé tímabært að hækka lægstu laun.“ Hannes G. Sigurðsson, aðstoð- arframkvæmdarstjóri Samtaka atvinnulífsins, segir það ekki vera tímabært að ræða um endurskoð- un launasamninga. „Það er ekki komin upp staða sem gefur tilefni til þess að ræða um þessi mál. En samningar Reykjavíkurborgar um launahækkanir hafa nú keðjuverk- andi áhrif á launamyndun í land- inu, eins og við bentum á þegar þeir samningar voru undirritaðir. Það er ekki tilefni til þess að hefja viðræður um viðbætur á samning- um sem eru bundnir og lokaðir.“ Einar Oddur Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að hækkanir eins og launa- nefnd sveitarfélaganna hefur lagt til, muni ganga upp allan launa- stigann sem muni leiða af sér að þeir sem hæstu launin hafa hækki mest í krónum talið. „Reynslan er einhlít að því leyti að þegar launahækkanir eru með þeim hætti sem gerst hefur að undanförnu, þá mun alltaf enda með því að þeir sem hæstu laun- in hafa hækka mest þegar upp er staðið. Ég ber þó virðingu fyrir starfi launanefndarinnar og hún er svo sannarlega að gera sitt besta, í afar slæmri stöðu,“ segir Einar Oddur. Launanefnd sveitarfélaganna samþykkti að veita heimild til þess að hækka laun þeirra sem eru með 140 þúsund krónur á mánuði eða minna, um tólf prósent. Þeir sem eru með meira en 140 þúsund fá laun sín ekki hækkuð. Einar Oddur segir samninga Reykvíkurborgar við Eflingu og Starfsmannafélag Reykjavíkur- borgar hafa komið launaskriðu af stað sem sér ekki fyrir endann á ennþá. „Ég benti á það þegar samningarnir voru gerðir að þeir sem hæstu launin hafa muni hækka mest. Ég fékk nú bágt fyrir þessa skoðun frá mörgum, en ég er sannfærður um að þetta verður raunin þegar upp er stað- ið.“ - mh Ótímabært að ræða um hækkun launa Formaður Starfsgreinasambandsins telur rými vera að skapast fyrir umræð- ur um endurskoðun kjarasamninga. Aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir umræðu um endurskoðun kjarasamninga ótímabæra. SAMFÉLAGSVERÐLAUN Samfélags- verðlaun Fréttablaðsins verða veitt í fyrsta sinn þann 23. febrúar næstkomandi. Lesendur Fréttablaðsins geta tilnefnt einstaklinga eða félaga- samtök sem hafa með einum eða öðrum hætti lagt sitt af mörkum til að bæta íslenskt samfélag. Veitt verða verðlaun í sex flokkum. Aðalverðlaunin verða ein milljón króna. - jóa/ sjá síðu 6 Ný verðlaun Fréttablaðsins: Veitir samfél- agsverðlaun SPRENGT VIÐ KIRKJUR Íraskir slökkviliðsmenn sprauta vatni yfir vettvang bílsprengjutilræðis við kirkju ensku biskupakirkjunnar í Bagdad í gær. Slík tilræði voru gerð samtímis í gær gegn fjórum kirkjum í Bagdad og norður-írösku borginni Kirkuk. Auk þess var sprengt við sendi- skrifstofu Páfagarðs. Þrír Írakar létu lífið í tilræðunum og níu særðust, að sögn lögreglu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.