Fréttablaðið - 30.01.2006, Side 4
4 30. janúar 2006 MÁNUDAGUR
Skeifan 4
S. 588 1818
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 27.01.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 61,52 61,82
Sterlingspund 109,47 110,01
Evra 75,02 75,44
Dönsk króna 10,05 10,108
Norsk króna 9,274 9,328
Sænsk króna 8,103 8,151
Japanskt jen 0,5275 0,5305
SDR 89,37 89,91
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
104,8025
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Kefla-
víkurflugvelli stöðvaði ungan
ökumann á 169 kílómetra hraða á
Reykjanesbraut aðfaranótt sunnu-
dags. Að sögn lögreglu var maður-
inn nýkominn með bráðabirgða-
ökuskírteini og var sviptur því á
staðnum.
Þá voru níu aðrir stöðvaðir
fyrir of hraðan akstur á Reykja-
nesbrautinni. Allir héldu þeir þó
ökuleyfinu, en fá að greiða í ríkis-
sjóð fyrir hraðaksturinn. Lögregl-
an segir skeytingarleysi bílstjór-
anna alvarlegt þar sem aðstæður
hafi verið slæmar sökum rigning-
ar, þoku og myrkurs og mildi að
ekki fór verr. -bs
Nýkominn með bílpróf:
Á 169 kíló-
metra hraða
PÓLLAND, AP Pólsk yfirvöld greindu
frá því í gær að ólíklegt væri að
fleiri fyndust á lífi í rústum kaup-
stefnuhallar sem hrundi síðla
laugardags í útjaðri suður-pólsku
borgarinnar Katowice. Staðfest
dauðsföll voru orðin 66 í gærkvöld.
160 manns slösuðust, misalvarlega.
Talið er að um 500 manns hafi verið
í húsinu er þakið brast, en innan-
dyra stóð yfir fjölþjóðlegt mót bréf-
dúfuræktenda.
Slökkviliðsstjórinn í Katowice,
Kazimierz Krzowski, sagði litlar
líkur á að fleira fólk væri enn fast
undir brakinu, er björgunaraðgerð-
ir höfðu staðið yfir í sólarhring.
Nær útilokað þótti hins vegar að
nokkur væri þar enn á lífi, enda um
15 gráðu gaddur. Lögreglustjórinn
útilokaði ekki að fleiri lík ættu eftir
að finnast.
Sýningarhöllin var mjög nýlegt
stálgrindarhús. Rannsókn stendur
yfir á orsökum slyssins, en talsvert
magn af snjó hafði safnast fyrir á
flötu þakinu.
Skammt er síðan fimmtán manns
fórust, þar af meirihlutinn börn, er
þak brast undan snjóþunga á skauta-
höll í bænum Bad Reichenhall syðst
í Þýskalandi. - aa
FÓRNARLAMBA LEITAÐ Björgunarliðsmenn leita að fólki í rústum sýningarhallarinnar við
erfið skilyrði í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Harmleikur er sýningarhöll hrundi í Suður-Póllandi:
Hátt í sjötíu manns fórust
SAMFÉLAGSVERÐLAUN Samfélags-
verðlaun Fréttablaðisins verða
veitt í fyrsta sinn í lok febrúar.
Steinunn Stefánsdóttir, rit-
stjórnarfulltrúi Fréttablaðsins
og formaður dómnefndar, segir
markmið verðlaunanna vera að
draga fram það sem vel er gert í
samfélaginu en jafnvel fáir vita
af.
„Verðlaunin verða veitt núna
í fyrsta sinn en verða svo árleg-
ur viðburður,“ segir Steinunn.
„Fréttablaðið er stærsti fjölmiðill
landsins, efni blaðisins höfðar til
margra og fjallar um alla anga
þjóðfélagsins. Við viljum miðla
góðum verkum sem unnin eru
mjög víða í samfélaginu, litlum og
stórum, sem koma öðru fólki til
góða. Með því að draga þessi góðu
verk fram í dagsljósið vonumst
við til að verðlaunin verði hvatn-
ing fyrir aðra til að bæta samfé-
lagið í kringum sig.“
Steinunn verður formaður
dómnefndar og aðrir fulltrúar
í nefndinni munu koma víða að
úr þjóðfélaginu. Steinunn segist
hlakka til að sjá þær tilnefningar
sem munu berast.
„Með þessum verðlaunum
erum að leitast við að styrkja enn
frekar samband okkar við lesend-
ur. Því vonumst við til að fá sem
flestar og fjölbreyttastar tilnefn-
ingar. Hægt er að tilnefna alla þá
sem hafa með athöfnum sínum og
framgöngu gert eitthvað umfram
borgaralegar skyldur sínar eða
unnið starf sitt af meiri natni og
alúð en gera má ráð fyrir,“ segir
Steinunn. Allir koma til greina,
hvort sem það eru óþekktir ein-
staklingar, félagasamtök, þjóð-
þekktir karlar eða konur.
Veitt verða verðlaun í sex
flokkum. Í fimm flokkum verða
veitt fartölvu- og ferðavinning-
ar en sjálf Samfélagsverðlaunin
nema einni milljón króna. Lesend-
ur Fréttablaðsins geta sent inn til-
nefningar á www.visir.is eða með
því að fylla út og senda sérstakt
form sem mun birtast í Frétta-
blaðinu. Lokadagur tilnefninga er
16. febrúar og verða verðlaunin
svo afhent við hátíðlega athöfn
þann 23. febrúar.
johannas@frettabladid.is
Góð verk verða verðlaunuð
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins verða veitt í fyrsta sinn þann 23. febrúar næstkomandi. Verðlaunaðir
verða einstaklingar eða félagasamtök sem hafa lagt sitt af mörkum við að bæta íslenskt samfélag.
STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR RITSTJÓRNARFULLTRÚI Steinunn er formaður
dómnefndar um samfélagsverðlaun Fréttablaðisins sem veitt verða í
fyrsta seinni hluta febrúar. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Hvunndagshetja
Einstaklingur sem hefur sýnt einstaka óeigin-
girni eða hugrekki við einn atburð eða vinnu
að ákveðnum málaflokki í lengri tíma.
Ung hetja
Barn eða unglingur yngri en 16 ára sem vann
sérstakt afrek við krefjandi aðstæður, hvort
sem það var öðrum eða barninu sjálfu til
hagsbóta.
Uppfræðari ársins
Um er að ræða kennara, leiðbeinendur,
þjálfara eða aðra uppfræðara sem hafa látið
gott af sér leiða.
Framlag í æskulýðsmálum
Félagasamtök sem hafa sinnt börnum af sér-
stökum metnaði og alúð.
Til atlögu gegn fordómum
Einstaklingur eða félagasamtök sem hafa
unnið ötullega að því að brjóta á bak aftur
fordóma í samfélaginu.
Samfélagsverðlaunin
Félagasamtök sem hafa unnið framúrskar-
andi mannúðar- eða náttúruverndarstarf og
lagt sitt af mörkum við að gera íslenskt sam-
félag að betra samfélagi.
SAMFÉLAGSVERÐLAUN FRÉTTABLAÐSINS
Hægt verður að tilnefna í eftirfarandi flokkum
ÍTALÍA, AP Silvio Berlusconi, forsæt-
isráðherra Ítalíu, hefur heitið því
að stunda ekki kynlíf fram að þing-
kosningum 9. apríl næstkomandi.
Berlusconi var á kosningafundi á
Sardiníu þegar hann sór skírlífs-
heitið í kjölfar þess að sjónvarps-
predikari þakkaði honum fyrir að
vera á móti því að samkynhneigðir
væru gefnir saman.
Hinn 69 ára gamli Berlusconi
er tvígiftur og hefur ítrekað stært
sig af hreysti sinni og fegurð. Fyrir
skemmstu fór hann í andlitslyft-
ingu og hárígræðslu og er senni-
lega unglegri núna en þegar hann
komst til valda árið 2001. ■
Berlusconi í kosningaham:
Heitir skírlífi
SILVIO BERLUSCONI Fór í andlitslyftingu og
hárígræðslu fyrir skömmu. FRÉTTABLAÐIÐ/ AP
SVEITARSTJÓRNARMÁL Hafnarsam-
lag Eyjafjarðar og Hafnarsamlag
Norðurlands skoða nú kosti þess
að sameinast. Siglufjarðarhöfn
hefur staðið utan hafnarsamlaga
en fjallað var um í skýrslu Rann-
sóknarstofnunnar Háskólans á
Akureyri hvernig skyldi fara með
hafnirnar vegna sameiningar
Siglufjarðar og Ólafsfjarðar.
Bæjarráð Akureyrar hefur
samþykkt að stjórnir hafnarsam-
laganna taki upp viðræður um
hagkvæmni þess að sameina þessi
tvö hafnarsamlög. Hafnarsamlag.
Eyjafjarðar óskaði eftir viðræð-
unum.
- jóa
Hafnarsamlög á Norðurlandi:
Kostir samein-
ingar skoðaðir