Fréttablaðið - 30.01.2006, Qupperneq 12
12 30. janúar 2006 MÁNUDAGUR
MENNING Um 90 prósent gesta
menningarstofnana Reykjavík-
urborgar eru ánægðir með starf-
semina samkvæmt viðhorfskönn-
unum, og heimsóknir eru um
milljón á ári.
Stefán Jón Hafstein, formaður
menningar- og ferðamálaráðs
Reykjavíkurborgar, segir menn-
ingarstofnanirnar hafa slegið
aðsóknarmet Laugardalsvallar.
Signý Pálsdóttir, skrifstofu-
stjóri menningarmála, telur þenn-
an góða árangur vera afrakstur
skýrrar stefnumótunar, því und-
anfarin ár hefur verið markvisst
unnið að því að ná til breiðari ald-
urshóps og jafna hlutföll kynja í
aðsókn, og mikil áhersla er lögð á
barnastarf auk sérverkefna.
Gengið hefur verið frá rúm-
lega 220 vaxtalausum lánum sem
standa til boða við kaup á lista-
verkum. Gegnum tilraunaverk-
efnið Artótek hafa um 130 verk
verið leigð út og tæplega 100 hafa
selst.
Erlendir ferðamenn gefa
Reykjavík góða einkunn eins og
kemur fram í könnun sem Höfuð-
borgarstofa lét vinna. Sundlaug-
arnar fá hæstu einkunnina en
greinileg stígandi er í aðsókn á
söfn milli ára. -sdg
STEFÁN JÓN HAFSTEIN Innan um lista-
verk í Artótekinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Níutíu prósent gesta menningarstofnana Reykjavíkurborgar ánægðir:
Meiri aðsókn í menningu
KJARAMÁL Íslendingar eru eftirbát-
ar annarra norrænna þjóða þegar
kemur að almennum lífskjörum
samkvæmt nýrri úttekt sem hag-
deild Alþýðusambands Ísland hefur
gert.
Samkvæmt skýrslunni stand-
ast Íslendingar ágætlega saman-
burð hvað heildarlaun varðar en
að teknu tilliti til verðlags auk mun
lengri vinnutíma breytist myndin
verulega til hins verra.
Heildarlaunin breytast þannig
úr því að vera vel samanburðarhæf
við að vera þau allra lægstu miðað
við hin löndin þrjú sem um ræðir,
Danmörku, Svíþjóð og Noreg. Helg-
ast langur vinnutími Íslendinga
fyrst og fremst af lítill framleiðni
en hún er mun lægri en í saman-
burðarlöndunum.
Ólafur Darri Andrason, deild-
arstjóri hagdeildar ASÍ, segir að
hátt verðlag þýði að minna verði
úr þeim krónum sem launafólk hér
vinnur sér inn. „Þegar við bætist að
við erum mun lengur að vinna fyrir
þessum sömu launum hallar veru-
lega undan fæti. Með örfáum und-
antekningum erum við eftirbátar
þessara þriggja þjóða sem úttektin
tekur til.“
Hann bendir á að einhleypir
á Íslandi komi betur út en aðrar
fjölskyldugerðir í samanburðin-
um. „Í Danmörku og Svíþjóð eru
skattar mun hærri en hér á landi
en það á líka við um framlög til
velferðarmála. Stærsta breytan er
sú hvað barnabætur hérlendis eru
miklu lakari en hjá hinum þremur
löndunum.“ -aöe
MINNI FRAMLEIÐNI Íslendingar eru talsverð-
ir eftirbátar Dana, Svía og Norðmanna, sér-
staklega þegar kemur að framleiðni á hverja
klukkustund. Við framleiðum sem svarar til
tæplega 34 dollara hverja klukkustund en
framleiðni Norðmanna eru tæpir 57 dollarar
fyrir sama tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Samanburður ASÍ á lífskjörum á Norðurlöndum:
Lífskjör launafólks lakari hér á landi
HÁSKÓLAPÓLITÍK Formannsefni
Vöku, félags lýðræðissinnaðra
stúdenta við Háskóla Íslands, er
að þessu sinni laganeminn Sig-
urður Örn Hilmarsson. Þetta er
í fyrsta skipti sem sérstakt for-
mannsefni félagsins er kynnt
fyrir kosningar til Stúdentaráðs.
Það þýðir að Sigurður Örn verður
formaður ráðsins ef Vaka vinnur
meirihluta í ráðinu. „Við ákváðum
að breyta til svo að kjósendur viti
betur að hverju þeir ganga þegar
kosið verður í febrúar.“
Kosningar til Stúdenta- og
Háskólaráðs fara fram áttunda og
níunda febrúar.
- mh
Kosningar til Stúdentaráðs:
Vaka kynnir
formannsefni
MANNRÉTTINDI Internetfyrirtækið
Google hefur sætt mikilli gagnrýni
fyrir að hafa gert samning við kín-
versk stjórnvöld um ritskoðun á
leitarniðurstöðum í leitarvél sinni.
Meðal leitarorða sem stjórnvöld
vilja ekki að skili niðurstöðum um
eru Taívan, mannréttindi, Tíbet
og Falun Gong. Forsvarsmenn
Google réttlæta þetta með því að
kínverskir notendur verði upplýst-
ir um hvaða leitarniðurstöður eru
ritskoðaðar. Einnig telja þeir aukið
aðgengi að internetinu hafi góð
áhrif til langs tíma. -sdg
Leitarsíðan Google:
Þóknast stjórn-
völdum í Kína
NÝÁRS-HUNDASÝNING Frá hundasýningu í
Quezon-borg norður af Manila, höfuðborg
Filippseyja, í gær. Sýningin var haldin í
tilefni af kínverska nýárinu. Samkvæmt kín-
verska tímatalinu hófst ár hundsins í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Kærð fyrir skjalafals Kona á fer-
tugsaldri hefur verið kærð fyrir skjalafals
eftir að hún reyndi að framvísa fölsuð-
um lyfseðli í verslun Lyfju við Smáratorg
í Kópavogi. Henni tókst ekki ætlunarverk
sitt en mál hennar var tekið til aðalmeð-
ferðar á föstudag.
DÓMSMÁL