Fréttablaðið - 30.01.2006, Side 21
MÁNUDAGUR 30. janúar 2006
PGV ehf. ı Bæjarhrauni 6 ı 220 Hafnafjörður ı Sími: 564 6080 ı Fax: 564 6081 ı www.pgv.is
534 1300
w w w . g l u g g a l a u s n i r . i s
Útsýni með stíl
Vandað, einfalt og ódýrt
Hafðu samband og við
komum heim til þín
Húsverndarsjóður Reykjavíkur
auglýsir eftir umsóknum um
styrki til viðhalds gamalla
húsa.
Hægt er að sækja um styrki úr
Húsverndarsjóði Reykjavíkur
til viðgerða og endurbygginga á
húsum sem hafa sérstakt varð-
veislugildi. Umsóknir verða að
berast til skipulagsfulltrúa á
Skipulags- og byggingarsviði
Reykjavíkur fyrir 7. febrúar. Í
umsóknum verður að koma fram
lýsing á fyrirhuguðum breyting-
um, tímaáætlun, kostnaðaráætlun
og nýjar og gamlar ljósmyndir
af húsunum. Allar ytri viðgerðir
eins og viðgerðir á klæðningum,
steyptum þakrennum og garð-
veggjum sem hafa áhrif á heild-
arsvip ákveðinna svæða hafa
forgang þegar kemur að styrkveit-
ingu. Hægt er að nálgast umsókn-
areyðublöð á Árbæjarsafni og
hjá Skipulags- og byggingarsviði
Reykjavíkur, Borgartúni 3. Einn-
ig er hægt að sækja um styrki á
heimasíðu Skipulags- og bygging-
arsviðs Reykjavíkur, www.skip-
bygg.is.
Styrkir til
viðhalds
Í Þingholtunum er mikið af fallegum göml-
um húsum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
RÁÐ frá Rakel
RAKEL ÁRNADÓTTIR FJALLAR UM FYRIRMYNDARELDHÚS
Til eru nokkrar þumalputtaregl-
ur sem hafa verður í huga þegar
eldhús er skipulagt með tilliti til
vinnuhagræðingar. Uppröðun
fastra innréttinga í eldhúsi geta
verið með ýmsum hætti. Má þar
nefna U-laga eldhús, vinkileldhús,
eins- og tveggja hliða eldhús. Oft
er talað um vinnuþríhyrning við
skipulag á eldhúsum, en hann
er lína sem má draga milli vasks,
eldavélar og ísskáps. Ráðlegt er að
hafa ekki meira en tvær armlengdir
milli einhvers af þessu þrennu, en
þó ekki svo þröngt að það hefti
athafnarýmið.
Almenna reglan er að hafa
minnst 40 cm vinnupláss hægra
megin við eldavél og helst 100
cm vinstra megin. Bakarofn og
eldavél mega ekki vera nær borð-
horni eða hliðarvegg en 20 cm til
að vinnuaðstaðan sé ekki óþægi-
leg. Ef ofn er á vegg þarf að gera
ráð fyrir borðplássi rétt hjá til að
leggja frá sér. Þar sem rýmið er
stórt og opið getur verið gott að
hafa eldunareyju. Þetta fyrirkomu-
lag hentar einnig vel í einnar hlið-
ar eldhúsi þar sem eyjan er sett
þannig að vaskur og eldavél standi
andspænis hvort öðru. Eldunareyj-
an þyrfti að vera 120 cm á breidd
því gera verður ráð fyrir borðplássi
til beggja hliða. Ef það næst ekki er
ráð að hafa dýptina um 90 cm. Ef
dýptin er einungis 60 cm þarf að
hafa einhverja upphækkun aftan
við hana, meðal annars til að varna
slysum. Örbylgjuofn skal aldrei
vera staðsettur hærra en 120 cm
frá gólfi þar sem meiri hæð eykur
líkur á að missa heitt innihaldið yfir
sig.
Í kringum vask þarf að vera
borðpláss fyrir óhreint leirtau
hægra megin og hreint vinstra
megin, því þvegið er upp frá hægri
til vinstri. Ef uppþvottavél er í eld-
húsinu er best að hafa hana vinstra
megin við vask. Borðkrókur í eld-
húsi verður að vera minnst 200 cm
svo pláss sé fyrir frístandandi borð
og stóla. Þegar raðað er eldhús-
áhöldum í skápa er gott að hafa í
huga að það sem notað er oft þarf
að vera aðgengilegt. Hentug hæð
er á bilinu 40-180 cm frá gólfi.
Mælt er með að hægt sé að draga
út neðri skápa í stað þess að hafa
hillur. Þannig nýtist plássið betur
og fæst betri yfirsýn yfir innihaldið.
Skipulag eldhúsa