Fréttablaðið - 30.01.2006, Síða 55
MÁNUDAGUR 30. janúar 2006 19
Kjör formanns
Neytendasamtakanna
Samkvæmt lögum Neytendasamtakanna skal kjör formanns fara fram
það ár sem reglulegt þing Neytendasamtakanna er haldið. Í 12. grein
laga Neytendasamtakanna segir svo um kjör formanns: “Framboð til
formanns skulu berast stjórn Neytendasamtakanna eigi síðar en fyrir
lok febrúar þess árs sem reglulegt þing er haldið. Framboði til for-
manns skulu fylgja meðmæli 25 skuldlausra félagsmanna hið fæsta
en 50 skuldlausra félagsmanna hið flesta.”
Í samræmi við þetta auglýsir stjórn Neytendasamtakanna eftir fram-
boðum til formanns Neytendasamtakanna vegna næsta kjörtímabils
(2006-2008) og sem hefst frá og með þingi Neytendasamtakanna í
haust. Framboðum ásamt lista yfir meðmælendur skal skilað á skrif-
stofur Neytendasamtakanna í Reykjavík eða á Akureyri, eigi síðar en
kl. 16:00 þann 28. febrúar 2006. Einnig er hægt að senda framboð
ásamt lista yfir meðmælendur í pósti og má dagsetning póststimpils
ekki fara fram yfir 28. febrúar 2006.
Reykjavík 30. janúar 2005
F.h. stjórnar Neytendasamtakanna
Jóhannes Gunnarsson formaður
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
Sögurnar, tölurnar, fólki›.
Hugsum okkur að þessi frétt birt-
ist á forsíðu dagblaðanna á morg-
un: „Slökkvilið höfuðborgarsvæð-
isins var kallað út vegna bruna í
stjórnarráðshúsinu um miðjan
dag í gær. Allt tiltækt slökkvilið
var sent á staðinn með leka vatns-
fötu. Erfiðlega gekk að ráða nið-
urlögum eldsins og er stjórnar-
ráðshúsið nú brunnið til grunna.“
Daginn eftir yrði slökkviliðs-
stjórinn líklega rekinn og tækja-
búnaður slökkviliðsins endur-
nýjaður. En hvernig stendur þá
á því að stjórnmálamenn komast
upp með að nota jafngildi lekrar
vatnsfötu við að ráða niðurlögum
loftslagshlýnunar af manna völd-
um? Almenningur krefst þess
ekki að tækjabúnaðurinn verði
endurnýjaður og enginn neyðist
til að segja af sér.
Allt tiltækt slökkvilið 189
ríkja, þar á meðal Íslands, var
sent til Montreal undir lok lið-
ins árs þar sem rædd var fram-
tíð Kýótó-sáttmálans, en honum
er ætlað að draga úr losun þjóða
heims á gróðurhúsalofttegundum
sem valda hlýnun loftslagsins.
Árangur slökkvistarfsins var
enginn. Á hverju ári bætast við
niðurstöður rannsókna sem sýna
fram á að vandamálið getur haft
hörmulegar afleiðingar fyrir
heimsbyggðina. Vísindamenn
segja að draga þurfi úr losun iðn-
ríkjanna á gróðurhúsalofttegund-
um um 70 prósent fyrir árið 2050
ef koma eigi í veg fyrir gríðar-
legar náttúruhamfarir og hung-
ursneyð. Stjórnmálamenn hafa
komið sér saman um að draga
úr losuninni um 5,2 prósent. Að
auki geta ríkin komið sér undan
því að standa við skuldbindingar
sínar með allskyns undanleiðum.
Árangurinn verður því kannski
um 1 til 2 prósent. Í Montreal
var engin ákvörðun tekin um að
endurnýja tækjabúnaðinn en það
varð sátt um að halda áfram að
ræða það án nokkurra skuldbind-
inga.
Hins vegar eru sum ríki sem
ganga á undan með góðu for-
dæmi. Nokkur Evrópuríki hafa
ákveðið að draga meira úr losun
gróðurhúsalofttegunda en kveð-
ur á um í Kýótó-sáttmálanum, t.d.
Bretar um 60 prósent á fimmtíu
árum, Hollendingar um 80 pró-
sent a fjörutíu árum og Þjóðverj-
ar um helming á fimmtíu árum.
Á meðan stefna Íslendingar í
þveröfuga átt. Samkvæmt Kýótó-
sáttmálanum eru Íslendingar í
algjörum sérflokki og fá að auka
losun gróðurhúsalofttegunda um
10 prósent. Ef við höldum áfram
að byggja álver eða aðra stóriðju
neyðumst við til að fara með betl-
istaf á komandi samningafundi
til að fá frekari undanþágur
þegar þessu samningstímabili
lýkur og það næsta tekur við árið
2013. Með því væru stjórnvöld
að ganga þvert á vilja 80 prósent
þjóðarinnar sem telur að stjórn-
völd geri of lítið til að draga úr
útstreymi gróðurhúsaloftteg-
unda.
Það hefur verið sagt að lofts-
lagið sé eins og sofandi dreki sem
mannkynið potar í með priki. Einn
daginn vaknar hann og þá er víst
betra að vera hvergi nærri. Von-
andi eiga Íslendingar framsýna
leiðtoga sem geta orðið öðrum
fyrirmynd með því að leggja frá
sér betlistafinn og prikið áður en
það verður um seinan.
Höfundur er meistaranemi í
umhverfisfræðum við Edinborg-
arháskóla.
Kýótó-sáttmálinn
er lek vatnsfata
Það hefur verið sagt að lofts-
lagið sé eins og sofandi dreki
sem mannkynið potar í með
priki. Einn daginn vaknar
hann og þá er víst betra að
vera hvergi nærri.
UMRÆÐAN
LOFTSLAGS-
HLÝNUN
GUÐMUNDUR HÖRÐUR GUÐMUNDSSON
��������������
�������
����������
����
������������
����������
��� �