Fréttablaðið - 30.01.2006, Side 61

Fréttablaðið - 30.01.2006, Side 61
SAMFÉLAGSVERÐLAUN VIÐ ÓSKUM EFTIR TILNEFNINGUM FYRIR SAMFÉLAGSVERÐLAUN FRÉTTABLAÐSINS SEM VERÐA VEITT Í FYRSTA SKIPTI 23. FEBRÚAR. Verðlaunin eru til heiðurs þeim sem hafa lagt sitt af mörkum til að gera íslenskt samfélag betra fyrir okkur öll. Lesendur eru beðnir að senda inn tilnefningar um fólk sem þeir telja falla í þann flokk. Allir koma til greina, allt frá óþekktum einstaklingum til félagssamtaka eða þjóðþekktra manna og kvenna sem hafa með athöfnum sínum og framgöngu verið öðrum til fyrirmyndar. Verðlaun eru veitt í sex flokkum: 1) Hvunndagshetjan Einstaklingur sem sýndi einstaka óeigingirni eða hugrekki, hvort sem það var við einn atburð eða með vinnu að ákveðnum málaflokki í lengri tíma. 2) Ung hetja Barn eða unglingur yngri en 16 ára sem vann sérstakt afrek við krefjandi aðstæður, hvort sem það var öðrum eða því sjálfu til hagsbóta, til dæmis að berjast aftur til heilsu eftir alvarlegt slys eða veikindi. 3) Uppfræðari ársins Hér koma til greina kennarar, leiðbeinendur, þjálfarar og aðrir uppfræðarar sem hafa skarað fram úr og látið gott af sér leiða. 4) Framlag í æskulýðsmálum Félagsamtök sem hafa sinnt börnum af sérstökum metnaði og alúð. 5) Til atlögu gegn fordómum Einstaklingur eða félagssamtök sem hafa unnið ötullega að því að brjóta á bak aftur fordóma í samfélaginu. 6) Samfélagsverðlaunin Félagssamtök sem hafa unnið framúrskarandi mannúðar- eða náttúruverndarstarf og lagt sitt af mörkum til að gera íslenskt samfélag betra fyrir okkur öll. Hægt er að tilnefna á visir.is/samfelagsverdlaun. Sérstök dómnefnd mun taka allar tillögur til skoðunar. Sigurvegarar ársins verða kynntir við hátíðlega athöfn 23. febrúar. HEFUR ÞÚ ORÐIÐ VITNI AÐ GÓÐVERKI?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.