Tíminn - 23.03.1977, Side 2
2
Miðvikudagur 23. marz 1977
Norræna
félagið
Bratteli
flytur
ræðu i
kvöld
JB-Rvik. 1 dag,, 23. marz, er
dagur Noröurlandanna. I til-
efni af þvi hefur Trygve
Bratteli, fyrrverandi forsætis-
ráöherra og konu hans verið
boöiö til tslands og mun
Bratteli flytja ræöu á hátiöar-
samkomu, sem Norræna
félagiö og Islandsdeild
Noröurlandaráös gangast fyr-
ir i Norræna húsinu i kvöld.
Bratteli hjónin komu til lands-
ins í gær og halda aftur heim-
leiöis á morgun. Þau munu
m.a. sitja hádegisveröarboö
Geirs Hallgrimssonar, for-
sætisráöherra i dag.
Hátiöarsamkoman i Nor-
ræna húsinu hefst kl. 20.30, og
mun Hjálmar Ólafsson for-
maöur Norræna félagsins
setja hana, þá flytur Trygve
Bratteli ræöu sina og siöan
leikur Guöný Guömundsdóttir
konsertmeistari, sónötu eftir
Grieg. Aö loknu hléi flytur Jón
Skaftason, formaöur tslands-
deildar Noröurlandaráös
ávarp, og þvi næst veröur
frumflutt tónverk eftir Atla
Heimi Sveinsson viö ljóö eftir
Ólaf Jóhann Sigurðsson, en
eins og menn rekur eflaust
minni til voru þeir báöir verö-
launahafar Norðurlandaráös
1976. Söngflokkurinn Hljóm-
eyki mun flytja tónverkiö.
Þá veröur i anddyri Nor-
ræna hússins komiö fyrir sýn-
ingunni Kvinnen i Norden,
sem g’erö var á vegum
Noröurlandaráös i tilefni
kvennaársins. Einnig veröur
komiö upp sýningarspjöldum
um Island og Noröurlandaráö,
svo og litilli bókasýningu.
Hátiðasamkoman er öllum
opin.
Tryggve Bratteli og eiginkona hans, viö kornuna til Reykjavlkur
i gær. Meö þeim eru á myndinni Hjálmar Ólafsson, og Ragnhild-
ur Heigadóttir.
Olaf svíkingar eignast
skuttogara
SJ-Reykjavik. Um eöa fyrir
mánaöamótin er væntanlegur til
landsins skuttogari, sem Ólafs-
vikingar hafa keypt i Frakklandi.
Togarinn er keyptur notaður, 340
tn aö stærö og eigandi er Lón-
drangar h.f. Skipstjóri á nýja
togaranum veröur Guömundur
Kristjánsson, sem veriö hefur
formaöur á ólafsvikurbátum i
mörg ár, siöast á Lárusi Sveins-
syni, sem seldur var til Vest-
mannaeyja 1 fyrra.
Aö sögn Alexanders Stefáns-
sonar, oddvita i Ólafsvik, hafa
þessi kaup tekiö langan tima
vegna þeirra hamla sem nú eru á
togarakaupum. Hann kvað mjög
mikla bjartsýni rikjandi i ólafs-
vik vegna tilkomu togarans.
Brööir Lárusar, sem veröur skip-
stjóri á 'nýja skipinu er Siguröur
Kristjánsson skipstjóri á Skarös-
vikinni, sem gerö er út frá Rifi.
Gott veöur hefur veriö i Ólafs-
vik aö undanförnu og sæmilegur
afli. A mánudag var aflinn 175 tn
á 20 báta og aflinn frá áramótum
er oröinn um 4000 tonn. Nær allir
bátar Ólafsvikinga eru á neta-
veiöum og veröa það fram i mai.
Mikil vinna er i ólafsvik, en
nokkur brögö eru aö þvi aö menn
vanti á bátana.
Þaö var vel mætt á aöalfundi Fuiltrúaráösins I fyrrakvöld. Timamyndir Gunnar.
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna i Reykjavik
KRISTINN FINNBOGASON
ENDURKJÖRINN FORMAÐUR
Kristinn Finnbogason, fram-
kvæmdastjóri, var endurkjörinn
formaöur Fulltrúaráös Fram-
sóknarfélaganna i Reykjavik á
aöalfundi samtakanna sem hald-
inn var i fyrrakvöld. I Fulltrúa-
ráöinu eiga 173 fulltrúar sæti. A
aöalfundinum greiddu 162 at-
kvæöi.
I kosningu um formann féllu at-
kvæöi þannig að Kristinn Finn-
bogason hlaut 98 atkvæöi, en Þor-
steinn Ólafsson, yfirkennari, 58
atkvæöi. Auk Kristins voru kjörin
i stjórnina Jón A. Jónasson, Björk
Jónsdóttir, Pétur Sturluson og
Sigurveig Erlingsdóttir.
Varamenn i stjórn voru kjörnir
Jón Snæbjörnsson, Hrólfur Hall-
dórsson, Siguröur Haraldsson,
Garöar Helgason og Þóra Þor-
leifsdóttir.
Aðalmenn i miöstjórn Fram-
sóknarflokksins voru kjörnir Al-
freö Þorsteinsson, Daniel
Þórarinsson, Hannes Pálsson,
Jón Abraham ólafsson, Markús
Stefánsson, Sveinn Grétar Jóns-
son, Sverrir Bergmann og Þóra
Þorleifsdóttir.
Þá var Hannes Pálsson endur-
kjörinn i fjárhagsnefnd.
1 stjórn húsbyggingasjóös voru
kjörin Kristinn Finnbogason og
Guöný Laxdal.
Framhaldsaðalfundur veröur
brátt haldinn og verða þar rædd-
ar lagabreytingar og væntanlegt
starf hverfasamtaka Fram-
sóknarflokksins I Reykjavík.
Kristinn Finnbogason flytur skýrslu stjórnar Fulitrúaráösins.
Þessa mynd tók Stefán Petersen ljósmyndari á Sauöárkrók af frumsýningu leikfélags Sauöár-
króks á leikritinu Er á meöan er. Húsfyllir var á sýningunni og leiknum frábærlega vel tekiö. A
myndinnieru frá vinstri: Arna Arnardóttir, Björn Rúnar, Elsa Jónsdóttir, Hilmir Jóhannesson,
Jón Ormar og Hafsteinn Hannesson. Sæluvikan hefur veriö fjöisótt, en hún hófst á sunnudaginn
var og stendur þar til næsta sunnudagskvöld. Leikiö er alla daga vikunnar auk fjölmargra ann-
arra skemmtiatriða og aö sjálfsögöu dunardansinn hvertkvöld.
Sæluvika Skagfirðinga
Húsfyllir á
kirkjukvöldi
GO-Sauöárkróki — Mikil aö-
sókn var aö kirkjukvöldi i
Sauöárkrókskirkju sl. mánu-
dagskvöld. Kirkjan fylltist af
fólki á stuttri stundu og nokkr-
ir uröu frá aö hverfa. A söng-
skrá kórsins var m.a.nýtt lag
eftir söngstjórann Jón Björns-
son viö teksta úr hátiöarljóö-
um Daviös Stefánssonar, Þú
mikli eilifi andi. Einsöng i lag-
inu söng Þórunn Olafsdóttir.
Vakti þetta nýja lag Jóns og
flutningur Þórunnar mikla
hrifningu.
Kirkjutónleikarnir þóttu
takast meö ágætum vel. Varö
kórinn og einsöngvarinn Þór-
unn ólafsdóttir aö endurtaka
mörg lögin. Sr. Pétur Þ.
Ingjaldsson prófastur á
Skagaströnd flutti erindi á
kirkjukvöldinu. Aö lokum
þakkaöi sóknarpresturinn sr.
Sigfús Jónsson söngfólkinu og
ræöumanninum ágæta
skemmtun.
\
J