Tíminn - 07.04.1977, Blaðsíða 4

Tíminn - 07.04.1977, Blaðsíða 4
4 Fimmtudagur 7. april 1977 — segir hinn bráðefnilegi skákmaður Jón L. Arnason, sem er aðeins 16 ára Gsal-Reykjavik. „Ég fékk fyrst verulegan áhuga á skák, þegar Fischer og Spassky kepptu i Laugar- dalshöll um heimsmeistaratitilinn árið 1972”, sagði hinn ungi skákmaður, Jón L. Árnason, i samtali við Timann i gær. Skákþing íslands stendur yfir um þessar mundir, sem kunnugt er, og hefur Jón staðið sig frábærlega vel i landsliðsflokknum það sem af er. Hefur hann hlotið fimm vinninga úr fimm skák- um. Jón L. Arnason hefur stabib sig frábærlega vel á Skákþinginu og sigrab alla keppinauta sina i fyrstu fimm umfcrbunum. Timamynd: Gunnar Þetta er i fyrsta sinn, sem Jón tef lir i landsliðsflokki á Skákþingi íslands, en hann er ekki eini fjöl- sky ldum eðlimurinn þar, þvi bróðirhans, Asgeir Þ., teflir einn- igilandsliðsflokki. —Ég kunni að visu mannganginn löngu áður en heimsmeistaraeinvigið var háð héma, sagði Jón i' gær, en ég stundáði ekkert skák fyrr en eftir einvigið. Þá gekk ég i Taflfélag Reykjavikur, en Asgeir var áður genginn i félagið — og siðan hef ég „stúderað” skák nokkuð. Jón hóf nám við Menntaskólann i Hamrahlið siðastliðið haust, og hann er i hinni frægu skáksveit skölans. A siðasta ári tefldi Jón i áskpr- endaflokki á Skákþingi Islands, en stóð sig ekki nema rétt i meðallagi, vann 3 skákir, gerði 7 jafntefli og tapaði 1 skák. En frá þeim tima hefur hann heldur betur sótt i sig veörið. Landsliösflokkur 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 l.Omar Jónssón (2220) 0 0 0 2.Gunnar Gunnarsson (2225) A 0 % \ 3.Hilmar Karlsson (2210) Vx Vx 'k L\. Jón L. Arnason (2330) 1 1 \ 5.Gunnar Finnlaugsson (2225! 0 A 0 é.Kargeir Pétursson (2325) 1 A 7.Asgeir Þ. Arnason (2220) i 0 1 1 ix S.Helgi Olafsson (2380) A i m 1 9.Þórir Olafsson (2275) 0 0 0 0 lO.Björn Þorsteinsson (2370' % 0 1 Ö ll.Þröstur Bergmann (2185) Vx y* 0 0 12.Júlíus Friöjónsson (2320] 1 0 Á 0 Hann tefldi i fyrsta sinn i A-flokki á haustmóti Taflfélags Reykja- vikur og bar þar sigur úr býtum. Er hann yngsti skákmeistari Taflfélags Reykjavikur i þau fjöl- mörgu ár sem keppt hefur verið um þann titil, en Jón var 15 ára þegar hann sigraði á mótinu. A Skákþingi Reykjavikur á s.l. ári varð Jón i öðru sæti, á eftir Helga Ólafssyni. Með þessari glæsilegu frammi- stöðu hækkaði Jón heilmikið i stigum. Fyrir þessa keppni var hann með 2195 stig, en núna hefur hann 2385 stig, eða 190 ELO stig- um meira. Jón hefur nokkrum sinnum teflt erlendis, um siðustu áramót fór hann ásamt Helga ólafssyni á mót i Sviþjóð, svo- nefnt Rilton-Cup — og hlaut hann þar 5,5vinninga af 9 mögulegum, en Helgi hálfum vinningi meira. Jón L. Arnason er mjög vax- andi skákmaður, sem á örugg- lega eftir að láta mikið að sér kveða i framtiðinni, og þessi góða byrjun hans i landsliðsflokki núna vekur óskipta athygli. Sjálfur vill Jón heldur litið gera úr frammi- stöðu sinni, enda hæverskur, og bendirá að hann eigi eftirað tefla við mjög sterka skákmenn i siðari hluta mótsins. Til gamans skulum við Uta á tvær vinningsskákir • Jóns frá Frh. á bls. 39 Jón L. Árnason: Hefur sigrad i öllum skákunum fram til þessa — hefur hlotið 5 vinninga og hefur forystu i landsliðsflokki Gsal-Reykjavik — Jón L. Arnason sigraði Gunnar Gunnarsson i fimmtu umferb i landsliðsflokki á Skákþingi tsiands i fyrrakvöld og heldur þvi sinu striki: ab sigra andstæbinga sfna hvern af öbrum. Skák þeirra þótti mjög skcmmti- leg og er hún birt hér fyrir ofan. önnur úrslit f landslibsflokki urbu þau ab Margeir Pétursson vann Þröst Bergmann og Asgeir Þ. Arnason, bróbir Jóns L. vann Björn Þorsteinsson. Staðan i landsliðsflokki er nokkuö óljós vegna ótefldra bið- skáka og frestaöra skáka, en staðan aö loknum fimm umferð- um er þessi: 1. Jón L. Arnason 5 vinningar 2. Asgeir Þ. Arnason 3.5 vinn- ingar 3. Helgi ólafsson 3 vinningar (2 ótefldar) 4. Gunnar Gunnarsson 2,5 vinn- ingar (+ biöskák) 5. Margeir Pétursson 2 vinningar (+ biðskák og 1 ótefld) 6. -8. Július Friðjónsson, Hilmar Karlsson og Björn Þorsteinsson I, 5 vinningar (J: 1 ótefld) (H: + biöskák og 1 ótefld) (B: + bið- skák) 9.-10. Þröstur Bergmann og Gunnar Finnlaugsson 1 vinningur (Þ: +1 ótefld) (G: + biðskák og 1 ótefld) II. Ómar Jónsson 0,5 vinningur (+ biðskák) 12. Þórir ólafsson 0 vinningur (1 ótefld) N HEumn *rrni,i' Vandaðar vélar borga bezt HEUmR HEYÞYRLUR 2ja og 4ra stjörnu •• HFHAMAR véladeild sími 2-21-23 Tryggvagötu Reykjavík.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.