Tíminn - 07.04.1977, Page 6
6
Fimmtudagur 7. april 1977
Langar,
léttar
slæður
Nú keppast tízkuteiknarar við að uppf inna not '"
fyrir hinar löngu, léttu slæður sem eru notað
ar með öllum vorfatnaði. Slæðu er vafið um
hálsinn, og síðan er öðrum endanum slegið
aftur á bak eins eru mikið notaðar minni
slæður í hálsmál á kjólum eða drögtum, eða
við blússur og peysur. Stórar slæður eru
einkum notaðar við kvöldklæðnað, og er þeim
ýmist brugðið yfir höfuð i líkingu við ind-
verskan sari-klæðnað, eða jafnvel eru slæð-
urnar bundnar um mittið, eða þá notaðar upp
á gamla móðinn yf ir axlirnar við f legna kjóla.
Við sjáum hér myndir af fyrirsætunni
Marinku, sem notar stóru slæðurnar á sér-
stæðan hátt, en hún notar þær fyrir „alklæðn-
að", a.m.k. stillir hún sér þannig upp fyrir
Ijósmyndarann, en líklega fer hún ekki á
skemmtistaði í þessum klæðnaði, — jaf nvel er
vafamál að hún fengi inngöngu í „náttfata-
partí"! En hvað um það, þessar slæður klæða
hana Marinku Ijómandi vel. Fyrirsætustarfið
er aðeins aukastarf hjá henni, en raunveru-
lega er hún afgreiðslu-stúlka á vínbar, — og
hef ur próf upp á það. Þessar slæður, sem hún
klæðist hér eru eftir frægan teiknara sem
heitir Celia Birtwell og teiknar mynstur fyrir
silkiframleiðanda. Einkum hafa þessar stóru
slæður hennar, sem fyrirtæki er heitir
Quorum framleiðir, aukið hróður Celiu.