Tíminn - 07.04.1977, Síða 13
Myndir: Hóbert Ágústsson
Fimmtudagur 7. april 1977
Oft er lff og fjör á leiksviöinu I Lindarbæ, þar sem nemendur Leik listarskólans æfa leikrit sln.
,,Við ætlum að sýna
ykkur óréttlætið”
— segja nemendur, sem eru að útskrifast úr
Leiklistarskóla ríkisins
„Viö ætlum aö veröa leikarar.
Viö ætlum aö leika fyrir ykkur
betri heim og sýna ykkur fram á
allt óréttlætiö, sem þiö fram-
kvæmiö og sem þiö veröiö fyrir án
þessaöþiö geriö ykkurþaöljóst,
Viö ætlum aö gera þaö sem leik-
arar, eftir aö hafa hugsaö okkur
mikiö um og komizt aö þvi, aö
leikhúsiö stendur nálægt ykkur,
svo þiö ættuö aö heyra. I leikhúsi
getum viö lika dansaö, sungiö,
hlegiö, grátiö, dregið upp myndir
og margt fleira. Þess vegna ætl-
um við að bæta og breyta heimin-
um, sem leikarar”,—
A þennan hátt hljóðaöi svar niu
ungmenna, sem nú eru aö ljúka
leiklistarnámi frá Leiklistarskóla
rikisins, þegar blaöamaöur
Timans leit inn á æfingu f Lindar-
bæ á dögunum og spuröi hvers
vegna þau heföu hafiö leiklistar-
nám.
Raunar eru þessi orö hluti úr
þætti, sem nemendurnir sömdu á
jólagleði skólans i vetur. Og sá
þáttur ereinn af fjölmörgum leik-
þáttum, sem hópurinn hefur
samiö þau fjögur ár, sem þau
hafa numið leiklist. M.a. sömdu
þau leikþátt fyrir Sumargjöf á
ööru ári sinu i skólanum. Ólafur
Haukur Simonarson samdi lög og
texta i þann leikþátt, sem siðan
hafa orðið mjög fræg og erum.a.
flest komin á plötu Olgu
Guörúnar, Eniga meniga.
Nemendurnir voru samrúála
um aö kennslan væri mjög frá-
brugöin þvi, sem geröist i öörum
skólum. Áherzla væri lögö' á aö
þau læröu aö þekkja sjálfa sig, til
þess aö þau gætu túlkaö þær per-
sónur, sem þau eiga að færa fram
á sviöiö.
Einnig er lögö mjög mikil
áherzla á likamsþjálfun, enda er
þaö nauösynlegt til þess aö vera
vel 1 stakk búinn til aö túlka þau
margbreytilegu hlutverk, sem
leikaranum eru fengin i hendur.
— Viö þekktum flest eitthvaö
til leiklistar, áöur en viö hófum
nám I skólanum, en samt hefur
fjölmargt komiö okkur á óvart.
Viö erum farin aö lita á leiklist
alltöörum augum en viö geröum i
upphafi, og þegar viö förum i
leikhús förum viö meö allt ööru
hugarfari, en viö geröum áöur en
viö hófum nám hér.
Viö förum oft á hverja leiksýn-
ingu. Fátt er betra til þess aö ná
Ltsa Pálsdóttir les kafia úr leikritinu fyrir Guörúnu Snæfriöi Gisia-
dóttur, sem fylgist agndofa meö.
Mæöginin Guöný Helgadóttir og
Kormákur Geirharösson ræöa
málin yfir hatti og hamri.
Sonurinn fylgist af áhuga meö
leiklistarnámi móöur sinnar og
einnig leikur hann undir á trumb-
ur i leikritinu.
Bjarni Ingvarsson blaöar I rullu
sinni.
árangri en fylgjast meö æföum
leikurum og læra af þeim.
■ —Leikstjórinn, hann Micka,
sem nú hefur leiöbeint okkur I tvo
mánuöi er mjög haröur. Mun
haröari en viö eigum aö venjast
af islenzkum leikstjórum. Honum
hefur tekizt aö fá okkur til þess aö
gera eitthvaö, sem viö heföum
ekki gerthjá neinum öörum, enda
telur hann megingallann viö is-
lenzk leikhús vera agaleysi.
— Við vitum ekki hvaö tekur
viö þegar námi okkar hér likur.
Auðvitaö viljum viö öll halda
áfram i leiklistinni og vonandi
fáum viö tækifæri til þess.
Fyrst og fremst viljum viö aö
sjálfsögöu komast inn i eitthvert
leikhús og fá þar tækifæri til þess
aö stunda listgrein okkar. En ef
það tekst ekki eru ýmsir aörir
möguleikar.
T.d.ernútalaöum aötaka nám
I leiklist inn I grunnskólana, og þá
þarf fjölmarga kennara þangaö.
Þvi má vel vera aö sum okkar fái
störf þar. Einnig ættum viö aö
vera vel undir þaö búin aö taka aö
okkur ýmiss konar starfsemi á
sviöi æskulýösmála,
— Einnig gæti komiö til greina,
og viö höfum rætt um þaö, aö
halda hópinn áfram og setja upp
einhvers konar leikhóp. Vanda-
máliö er bara á hvern hátt unnt er
aö fjármagna slikt. En viö teljum
aö rikisvaldiö veröi aö stuðla
betur aö leiklistinni, en þaö nú
gerir, t.d. meö þvi aö styrkja leik-
hópa. Viö teljum alveg fráleitt, aö
Alþýðuleikhúsinu skuli gert svona
erfitt fyrir og raun hefur veriö á.
Meö Alþýöuleikhúsinu var þaö
sýnt og sannað, aö mikil þörf er
fyrir starfsemi af þessu tagi, þótt
ljóst sé aö slik menningarstarf-
semi geti alls ekki lifaö án riflegs
styrks frá opinberum aöilum.
M.ó.
Guöbrandur Valdimarsson
Guölaug Maria Bjarnadóttir
Steinunn Gunnlaugsdóttir