Tíminn - 14.06.1977, Blaðsíða 24
1&
Þriðjudagur 14. júni 1977
r ^ i
28644 B'MJ-jll 28645 HREVFILL
fasteignasala öldugötu 8 Fasteignasalan sem sparar hvorki tima né tyrirhöf n til að veita yður sem bezta þjonustu Sölumadur: Finnur Karlsson Valgardur Sigurðsson
«/ Sími 8 55 22
I
áburðardreifqri
góð vtnnslubreidd
nákvæmar stillingar
einnig fyrir sáningu
Guðbjörn Guðjónsson
Heildvenlun SiðumúJa 72
Simar 85694 & 85295
Framtak Skagfiröinga:
Friðaðar öræfa-
urðir græddar
Bændur i frambyggðum
Skagafjarðar, sem upprekstur
eiga á Hofsafrétt fram af
Skagafjarðardölum, hafa
myndað sjóð, sem notaður er til
þess að bera kostnað við
áburðargjöf og landgræðslu á
afréttinum, sem viða er mjög
gróðurvana.
1 þessu skyni er um jiað bil
100-150 þúsundum króna varið
annað hvort ár.
Merkilegast viö þetta er, aö
bæöi er boriö á girt og friöaö
land og óvarinn afrétt, svo aö
samanburöur fæst um árangur,
eftir þvi hvort landiö er beitt aö
sumrinu eöa nýtur verndar. Er
skemmst af þvi aö segja, aö á
friöaöa landinu, sem þó er
hærra yfir sjó, hefur gróöur tek-
iö miklu meiri framförum.
Sumsstaöar þar, sem áöur voru
naktar og blásnar uröir, er nú
kominn mikill gróöur, jafnvel
samfelldur, á milli steinanna.
Af þessu er ótvirætt, hversu
stórmiklu munar um árangur af
landgræöslu, ef friöun fylgir
meö, sagöi Haukur Hafstaö, er
Tlminn átti tal viö hann.
Landgræðsla og takmarkalaus beit samrýmist ekki
DEILT UM BANN VIÐ
HROSSAUPPREKSTRI
Nauðsyn, ef græða á landið, segir landgræðslustjóri
Kippir grundvellinum undan hrossarækt, segir annar
Jón Gunnarsson, forstöðumaður Sædýrasafnsins, með einn kópanna
ellefu, sem eiga að fara til Frakklands.
ELLEFU KÓPAR
úr ósum Pjórsár til Ítalíu
Jón Gunnarsson, forstööumaö-
ur Sædýrasafnsins, sagöi I sam-
taii viö blaöiö I gær, aö litlu
kóparnir ættu aö dveljast I Sæ-
dýrasafninu um stund, en slöan
vröu þeir seldir I dýragarö I
Tórinó á N-ttaliu. Þeir væru ekki
nema tveggja til þriggja vikna
gamlir og ætti hann eftir aö sjá,
hvort þeir tækju viö sfldinni eöa
loðnunni. Ef ekki, veröa þeir sett-
ir á pela fyrst i staö. Úr Sædýra
safninu fara þeir ekki fyrr en þeir
geta étiö úr hendi manns. Jón
Gunnarsson sagöi, aö Italski
dýragaröurinn heföi fengiö hjá
sér þrjá útseli fyrir um hálfum
mánuöi, en nú væru þaö sem sagt
landselir, sem hleyptu heim-
draganum.
F.I. Reykjavik. — Ég segi nú ekki
að það hafi kostað okkur mikla
fyrirhöfn að ná kópunum, en það
skapar auðvitað vissa örðug-
leika, þegar lltiö er I Þjórsá
eins og núna. Kóparnir eru 11
talsins og hinir sprækustu, sagði
Jón Sturluson, bóndi að Fljótshól-
um I Gaulverjabæjarhreppi I
samtali við Timann I gær, en Jón
Jangaöi 11 selkópa I gær og
fyrrakvöld ásamt félaga slnum,
Jóni bónda Tómassyni á Fljóts-
hólum II. Bezt var veiðin á milli
kl. 10 og 15 I gær, en þá náðist I 8
kópa.
Betur má ef duga skal og
verða þeir nafnarnir að ná I fjóra
I viöbót. Kaupandi selkópanna
vill fá 15 stykki I allt.
JB - Reykjavlk. — 1 tilefni af
ellefu alda afmæli tslandsbyggð-
ar samþykkti Alþingi að veita
1000 millj. króna til landgræðslu
og greiða með þeim hætti hluta af
skuld okkar við landið. Fram-
kvæmd verksins er einkum á'
vegum Landgræöslunnar, og er
nú i ráði að hefja uppgræöslu á
afrétti Skagfirðinga á Eyvindar-
staðaheiði. Þcssari uppgræðslu
fylgja þær kvaðir, að tekiö skuli
fyrir hrossaupprekstur á heiðina,
svo að ekki mæði um of á hinum
unga gróðri.
Þetta bann viö upprekstri
hrossa er á hinn bóginn viökvæmt
mál I Skagafiröi. Annars vegar
eru þeir, sem fallast á viöhorf
Landgræöslunnar, aö sllkt bann
sé nauösynlegt, ef leitazt eigi viö
aö græöa landiö, en aörir eru svo
þeir, sem eiga fjölda hrossa, og
telja, aö meö þessu sé veriö aö
kippa grundvellinum undan
hrossabúskapnum, auk þess sem
gert sé up_p á milli manna eftir
þvl, hvort þeir vilja reka sauöfé
eöa stóö á afréttinn.
Viö bárum máliö undir Svein
Runólfsson landgræöslustjóra, og
haföi hann þetta um þaö aö segja:
„Þaö hefur allnokkur upp-
blástur og gróöureyöing veriö á
Eyvindarstaöaheiöi og hefur
Landgræöslan fylgzt meö þvl. A
sl. hausti var svæöiö skoöaö og
kom I ljós, aö mikilvægt er aö
hefja þar landgræöslu til aö hefta
uppblástur. Eins og er gengur
mikill fjöldi stóöhrossa á þessu
afrettarsvæöi og meöan svo er
telur Landgræöslan sér ekki fært
aö fara út I kostnaöarsamar aö-
geröir þar. Sveitarstjórnir hafa
ákveöiö samkvæmt tillögu Land-
græöslunnar aö seinka upprekstri
stóöhrossa á afréttarsvæöi þetta I
ár og veröa hross ekki rekin á
Eyvindarstaöaheiöi á næsta ári.
Þegar svo er komiö, teiur Land-
græöslan sér fært aö hefja þarna
aögeröir. Þaö er mat land-
græöslumanna, aö stóöhross geri
meiri skaöa á viökvæmum beiti-
löndum en fé, auk þess sem þau
eru mikiö aröminni búskapar-
grein en sauöfjárrækt. Fyrir
nokkrum árum var gerö gróöur-
farsrannsókn á vegum Rann-
sóknarstofnunar land-
búnaöarins, og I ár er ráögert að
endurmeta heiöina til aö sjá
hvernig ástandiö er nú. Viö
teljum.aöþaöaökoma I veg fyrir
aö hross veröi rekin á afrétt,
muni stórkostlega létta beitar-
álagiö. Út frá fóöurfræöilegum
ágizkunum höfum viö dregiö þá
Niðjamót í Biskupstungxun
SJ-ReykjavIk. A sunnudag var
haldið ættarmót I Skálholti og
Aratungu og komu þar saman
nær þrjú hundruð niðjar Helga
Ólafssonar, og unnustu hans
Þórunnar Eyjólfsdóttur og
eiginkonu hans Valgerðar
Eyjólfsdóttur. Niðjamótið hófst
með guðsþjónustu I Skálholts-
kirkju en slðan var samsæti I
Aratungu og var hvert sæti
skipað á báðum stöðum og
meira en það. Slikt ættarmót
hefur ekki áður verið haldið I
Skálholti.
Helgi ólafsson fæddist I Skál-
holti 1834. Móöir hans var Ingi-
rlöur Einarsdóttir, sem kom I
Skálholt 1823 og átti þar heima I
rúmlega 50 ár. Fyrri maöur
hennar var Ketill Þorgeirsson I
Vaönesi, sem drukknaöi 1826.
Slöari maöur hennar var Ólafur
Helgason. Hann drukknaöi 1
Hraunsá 1862.
Unnusta Helga Ólafssonar,
Þórunn Eyjólfsdóttir, drukkn-
aöi IHvitá 7. april 1863. Þau áttu
eina dóttur, Sigrlöi, sem eignaö-
ist ellefu börn, sem upp komust.
Síöar, 13. júnl 1871, kvæntist
Helgi systur Þórunnar, Valgeröi
Eyjólfsdóttur. Þau áttu sex börn
sem upp komust. Eitt þeirra er
enn á lifi, Helga Helgadóttir,
sem nú er á sjúkrahúsi I
Reykjavlk, 102 ára gömul.
Þær systur, Þórunn og Val-
geröur, voru frá Vælugeröi I
Flóa, sem nú heitir Þingdalur.
Helgi ólafsson og Valgeröur
fluttust I Drangshliö undir
Eyjafjöllum áriö 1877 og Helgi
andaöist 16. mal 1883.
Valgeröur fluttist siöan 1886
meö börnum slnum I Laxárdal I
Gnúpver jahreppi.
Kirkjan I Skálholti var full-
skipuö á sunnudag, en þar
predikaöi sr. Guömundir óli
Ólafsson sóknarprestur. Skál-
holtskórinn söng, en organisti
var Ólafur Sigurjónsson frá
Forsæti. Ingibjörg Guömunds-
dóttir frá Hellnatúni flutti ávarp
og þakkir fyrir hönd niöja Helga
Ólafssonar.
Erlendir gestir I Skálholti,
sem þar eru á námskeiöi, voru
og viöstaddir athöfnina I kirkj-
unni og þótti áhrifamikiö aö sjá
sllkt fjölmenni samankomiö á
staönum.
I félagsheimilinu Aratungu
var siðan kaffisamsæti, og var
húsiö fullt út úr dyrum eöa um
300 manns. Veizlustjóri var
Sigurbjörn Ketilsson fyrrum
skólastjóri. Ættarkynning fór
fram. Avörp fluttu Soffla Eygló
Jónsdóttir úr Kópavogi, Helgi
Ólafsson fasteignasaii og ólafur
Ketilsson bifreiöarstjóri. Aage
Lorange lék undir almennan
söng.
Ættarmótiö þótti takast meö
mestu ágætum.
ályktun aö þrjú þúsund hross á
Eyvindarstaöaheiöi jafngildi
fimmtán til tuttugu þús. fjár
þar.... Ég tel, þetta komi ekki til
meö aö gera út af viö hrossa-
búskapinn. Þaö leiöir til þess aö
bændur veröa aö slátra ein-
hverjum hrossum, en ég tel þaö
komi ekki aö sök, þar sem hross
eru mun fleiri en markaöur
viröist fyrir, og meö þvi aö grisja
stofninn sjá hrossabændur sjálfir
betur hvar þeir standa.”
Framhald á bls. 17
Karpov
Fischer.
Reykjavíkurskákmót ákveðið:
Karpov og Fisch-
er á óskalista
Gsal-Reykjavik — Skáksamband
islands hefur ákveöiö aö efna til
alþjóölegs Reykjavikurskákmóts
I febrúarmánuði á næsta ári og
bjóða til þess mjög sterkum skák-
meisturum. Meðal þeirra sem eru
á óskalista Skáksambandsins eru
heimsmeistarinn I skák, Anatoly
Karpov, og Robert Fischer fyrr-
um heimsmeistari en hann hefur
svo sem alkunna er ekki teflt
opinberlega siöan hann bar sigur-
orð af Boris Spassky I Laugar-
dalshöll i heimsmeistaraeinvig-
inu áriö 1972.
Skáksambandiö hefur aö sögn
Einars S. Einarssonar forseta
þess veriö I sambandi viö Fischer
og itrekaö viö hann boö Skáksam-
bandsins frá þvl I vetur, aö hann
væri velkominn hingaö til lands
sér aö kostnaöarlausu. Skáksam-
bandiö sendi Fischer, svo sem
menn rekur eflaust minni til, boö
um Islandsferö I vetur, þar sem
hann mátti velja á milli þess aö
koma á meöan Spassky og Hort
tefldu hér ellegar nú I sumar.
Hefur Skáksambandiö ftrekaö
þetta boö viö Fischer.
— Þaö er bara almenn kurteisi
aö bjóöa honum llka á
Reykjavlkurskákmótiö, sagöi
Einar, og óneitanlega er gaman
aö gæla viö þá hugmynd, aö fá
bæöi Fischer og Karpov á sama
skákmót. Hafi Fischer löngun til
þess aö koma aftur fram á sjón-
arsviöiö og tefla, tel ég Island
ákjósanlegastan keppnisstaö, þar
sem hann hvarf af sjónarsviöinu
einmitt eftir einvígiö hér 1972.
Hvaö Karpov áhrærir er rétt aö
geta þess, aö hann hefur nokkrum
sinnum lýst áhuga slnum á þvl aö
tefla á Islandi. Þetta
Reykjavlkurskákmót ætti aö sögn
Einars ekki aö stangast á viö
undirbúning Karpovs fyrir
heimsmeistaraeinvlgiö, sem
haldiö veröur slöari hluta ársins
1978, — og þvl ætti Karpov vart aö
hafa dregiö sig I hlé til undirbún-
ings um þetta leyti.
Aörir skákmeistarar á óska-
listanum eru Hort, Spassky,
Larsen, Lubojevic og Miles .
Ennfremur má nefna Anderson,
Browne, Kuraijca, aö ógleymd-
um íslenzku stórmeisturunum,
Friöriki og Guömundi.
Einar S. sagöi, aö Skáksam-
bandiö heföi I hyggju aö hafa
þetta skákmót meö talsvert ný-
stárlegu sniöi, en vildi ekki aö
ööru leyti tjá sig um þaö. Hann
sagöi þó, aö Hort heföi hvatt
Skáksambandiö til þess aö leita
nýrra leiöa varöandi skákmót og
kvaöst myndu tefla ef slikt mót
yröi útfært á sérstakan hátt, sem
jafnframt myndi þá lokka skák-
menn á mótiö. Ef Hort kemst ekki
frh. á bls. 23
PALLI OG PESI