Fréttablaðið - 14.02.2006, Síða 10

Fréttablaðið - 14.02.2006, Síða 10
10 14. febrúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR KJARAMÁL Læknar hjá sveitarfé- lögunum hafa vísað kjaradeilu sinni til ríkissáttasemjara. Um er að ræða 700 lækna utan skurð- lækna sem vinna á stofnunum sem launþegar. Samningur þeirra rann út um áramótin. Sigurður E. Sigurðsson, for- maður samninganefndar Lækna- félags Íslands, segir ákvörðun samninganefndanna um að leita til sáttasemjara sameiginlega. Engin harka sé í viðræðunum. Hann getur ekki gefið upp hvern- ig viðræðurnar ganga, því um þær ríki trúnaður. Næsti fundur nefndanna er í dag. - gag Læknar og sveitarfélögin: Sækja aðstoð sáttasemjara Á SJÚKRAHÚSI Læknar semja um kjör sín hjá ríkissáttasemjara. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Ölvaður á ólöglegum hraða Maður á þrítugsaldri er grunaður um ölvun við akstur. Hann var stöðvaður af lögreglunni á Sauðárkróki um helgina á leið út úr bænum á ólöglegum hraða. Hann var færður til blóðtöku. LÖGREGLUFRÉTTIR Sextán aka of hratt Fjórir voru teknir á yfir 130 kílómetra hraða í eftirliti lögreglunnar á Selfossi á Suðurlandsvegi í fyrrakvöld. Sextán voru teknir allt í allt fyrir of hraðan akstur. Lögregla furðar sig á hraðakstri fólks, aðstæður á Hellis- heiðinni séu fjarri því að vera góðar. ÍTALÍA Forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi, olli pólitísku fjaðrafoki er hann líkti sér við Jesú Krist undir kvöldverði með dyggum stuðningsmönnum sínum um helgina. Kemur þessi yfirlýsing í kjöl- far þess að í síðustu viku bar hann sig saman við Napóleón er hann dásamaði afrek sín í embætti síðastliðin fimm ár. Síðar sagðist Berlusconi aðeins hafa verið að grínast. Andstæðingar Berlusconis hafa gagnrýnt yfirlýsingarnar og segja þær bera vott um mikil- mennskubrjálæði. ■ Silvio Berlusconi: Ber sig saman við Jesú Krist OSLO, AP Fjöldi unglinga sem reykja að staðaldri hefur minnkað um helming og nú reykja aðeins fimm prósent norskra táninga. Norska ríkið hefur stundað for- varnarstarf og líkt og á Íslandi er mikil skattlagning á tóbak. Sígar- ettupakkinn kostar um 66 krónur sem er um 640 íslenskar krónur. Auk þess að banna reykingar á vinnustöðum hafa Norðmenn einnig bannað reykingar á öllum skemmtistöðum og veitingahús- um. ■ Unglingar í Noregi: Mun færri reykja en áður REYKINGABANN Skemmtistaðir Noregs eru reyklausir. DÓMSMÁL 67 ára gamall maður í Kópavogi hefur verið kærður fyrir að hafa haft í fimm mánuði portúgalskan starfsmann í vinnu hjá sér, án þess að hann hefði til þess tilskilin atvinnuleyfi. Portúgalinn, sem er á fertugs- aldri, vann við hreingerningar og móttökustörf á hóteli í Kópavogi. Þess er krafist að maðurinn, sem ákærður er fyrir brot á lögum um atvinnuréttindi útlendinga verði dæmdur til refsingar. - mh Erlendur starfsmaður: Vann án leyfis í fimm mánuði KÓLERA Í ZIMBABWE Martin Mhizha sækir vatn úr uppsprettu í Epworth í Zimbabwe, um 30 km suður af höfuðborginni Harare. Í Epworth hafa fimm manns látist úr kóleru á undanförnum dögum, en kólerusmit hefur banað alls 27 manns í Zimbabwe frá því í nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/AP STARFSMANNALEIGUR Lettneska fyrirtækið Vislande, sem hefur stundum verið í fréttum á Íslandi vegna lettneskra starfsmanna, hefur stundað ýmiss konar starf- semi í Lettlandi, meðal annars sem verktaki í byggingageiran- um. Fyrirtækið er ekki lengur s t a r f s m a n n a - leiga og hefur enga starfsmenn á Íslandi. Ilona Milca, eigandi Vislande, segir að Vislande taki að sér alls kyns verkefni. Fyr- irtækið hafi ekki nein stór verkefni í gangi núna en nefnir sem dæmi innanhússvinnu í fimm raðhúsum í Lettlandi. Þá stundar fyrirtækið inn- og útflutning, meðal annars á byggingarefnum. „Þetta er ekkert stórt. Við erum að þróast og læra. Við þjálf- um starfsmenn og sendum þá til útlanda,“ segir hún og undirstrikar að Vislande vinni samkvæmt öllum lögum og reglum en hafi verið gert tortryggilegt í íslenskum fjölmiðl- um að ósekju. Ísland sé lítill mark- aður og skipti ekki miklu máli í starfseminni. Ilona segist reyna að tileinka sér nýjungar og hvernig megi auka framleiðni í lettneskum fyr- irtækjum með nýrri tækni og skila auknum gæðum á styttri tíma. „Við Lettar erum að byggja mikið og þurfum að tileinka okkur aðferðir annars staðar frá. Við getum lært margt af Íslendingum. Húsin á Íslandi eru mjög sterk. Ef það er 40 metra vindhraði í Lettlandi þá hrynja húsin en á Íslandi eru húsin öðruvísi. Við þurfum að læra að byggja svoleiðis hús,“ segir hún. Vislande er til húsa við eina af aðalgötunum í Riga, Barónastræti 79, en Ilona á tvær íbúðir í Sigulda, í klukkustundar akstursfjarlægð frá Riga. Ilona segir að móðir sín hafi búið í annarri þeirra þar til hún lést í fyrra. Sjálf búi hún í hinni íbúðinni með dóttur sinni. „Það er gott að búa í Sigulda,“ segir hún. Vislande hefur fjóra fasta starfs- menn. Fyrirtækið leigir skrifstofu með Nordic Barter, fyrirtæki í eigu Viðskiptanetsins á Íslandi. Ilona er eini starfsmaðurinn sem talar íslensku og hún sinnir meðal ann- ars þýðingum fyrir Nordic Barter. Lettar á vegum Vislande fóru tvisvar fyrir dóm í fyrra. Hér- aðsdómur Austurlands komst að þeirri niðurstöðu að þeir gætu stundað vinnu hér í allt að 90 daga án atvinnuleyfis. Héraðsdómur Suðurlands dæmdi hins vegar aðra Letta fyrir að vinna hér án atvinnuleyfa. VISLANDE OG NORDIC BARTER Við útidyra- hurð Vislande og Nordic Barter í Riga. FRÉTTABLAÐIÐ/KASPARS GOBA VIÐ BARÓNASTRÆTI Vislande og Nordic Barter leigja saman skrifstofuhúsnæði við eina stærstu götuna í Riga, Barónastræti. Fjórir fastir starfsmenn starfa hjá Vislande, sem er í eigu Ilonu Milca. RÉTTABLAÐIÐ/KASPARS GOBA Ísland skiptir litlu máli í starfseminni Ilona Milca, eigandi Vislande í Lettlandi, telur að umfjöllun um fyrirtækið hafi verið ósanngjörn og gert starfsemi þess tortryggilega. Hún segir að Vislande reki ekki lengur starfsmannaleigu á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ Í LETTLANDI GUÐRÚN HELGA SIGURÐARDÓTTIR ghs@frettabladid.is VINNUMARKAÐUR Tólf starfsmanna- leigur hafa skráð sig á vef Vinnu- málastofnunar en Fréttablaðið hefur áður greint frá því að sjö starfsmannaleigur hafi skráð sig frá því lög um skráningu tóku gildi um síðustu mánaðamót. Athygli vekur að rúmlega helmingurinn af starfsmanna- leigunum tólf, eða sjö, er íslensk- ur. Tvær starfsmannaleiganna eru portúgalskar og svo er ein frá Írlandi, ein frá Bretlandi og ein frá Noregi. Nýju starfsmannaleigurnar eru Útrás ehf., sem er íslensk starfsmannaleiga með Sigurð G. Ringsted sem tengilið, Nett frá Portúgal með Fernando Enrique Sineiro Costa sem tengilið, Rais Vinnumiðlun með tengiliðinn Fernando Costa, írska leigan Rimec með Mark Lundgren sem tengilið og Foral Ísland með Eyþór Ragnar Jósepsson sem tengilið. Áður höfðu sjö starfsmanna- leigur skráð sig. Þær eru Holtan Industrier frá Noregi, People Select Aviation Limited frá Bret- landi, Epalmo Europe frá Portú- gal og íslensku leigurnar 2b, Islit, FH Verk og GM Staffing. - ghs STARFSMANNALEIGUR Tvær portúgalskar starfsmannaleigur hafa skráð sig. Tengiliður Rais Vinnumiðlunar er Fernando Costa. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Tólf starfsmannaleigur hafa skráð sig hjá Vinnumálastofnun: Meirihlutinn er íslenskur en tvær þeirra eru portúgalskar

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.