Fréttablaðið - 14.02.2006, Blaðsíða 20
[ ]
Ei
n
n
t
v
ei
r
o
g
þ
r
ír
3
60
.0
4
1
STÆRSTA
HEILSUVÖRUVERSLUN
Á LANDSBYGGÐINNI
Póstsendum um land allt
Glerártorg Akureyri S: 462-1889
heilsuhorn@simnet.is
www.simnet.is/heilsuhorn
��������������
����������� ������
��������������
������������������
����������� ������������������
Jóga er gott fyrir líkama og sál. Ýmsar heilsuræktarstöðvar bjóða
upp á jógatíma fyrir þá sem það vilja, en svo er auðveldlega hægt
að iðka jóga heima hjá sér.
Nýtt námskeið um uppeldi
ungra barna hefst á morgun
í Heilsuverndarstöðinni við
Barónsstíg.
Miðstöð heilsuverndar barna stend-
ur fyrir sérstökum uppeldisnám-
skeiðum fyrir foreldra unga barna.
Uppeldi sem virkar – færni
til framtíðar nefnast fjögurra
kvölda námskeið á vegum Mið-
stöðvar heilsuverndar barna. Eitt
slíkt hefst á morgun, 15. febrúar
í fundarsal á 2. hæð Heilsuvernd-
arstöðvarinnar við Barónsstíg og
stendur frá 17-19. Námskeiðið er
ætlað foreldrum barna á aldrin-
um 0-18 mánaða og þar er áhersla
lögð á að kenna þeim aðferðir til
að skapa æskileg uppeldisskil-
yrði sem líklegust eru til að skila
árangri í lífi barnsins. Verðið er
6000 krónur fyrir einstakling og
9000 krónur fyrir par.
Skráning er í síma 585-1350.
Leggja grunn að lífinu
Gott er að fá leiðbeiningar um hvernig best
sé að meðhöndla litlu krílin.
Gréta Jónsdóttir fjölskyld-
uráðgjafi notar Multimodal
Therapy og PICT-meðferð í
ráðgjöf sinni. Hvoru tveggja
eru meðferðarform sem miða
að því að komast að orskök
þeirrar vanlíðunar sem hrjáir
fólk á fullorðinsaldri.
Gréta Jónsdóttir útskrifaðist sem
fjölskylduráðgjafi frá Newbold
College á Englandi síðastliðið vor.
Gréta lærði fjölskylduráðgjöf
sem kallast Multimodal Therapy,
eða margþætt meðferð, og er nú
að ljúka námi í meðferð sem kall-
ast Parks Inner Child Therapy,
eða PICT.
Gréta aðstoðar fjölskyldur,
hjón eða einstaklinga með ýmis
vandamál eins og þunglyndi,
kvíða, stress, sorg, átraskanir
eða ýmis áföll. „Þessar meðferð-
ir, PICT og margþætt meðferð,
eru algjörlega byggðar á ein-
staklingsgrunni. Þegar fólk leit-
ar til mín þá fyllir það út hjá mér
spurningalista og út frá þeim lista
er valin viðeigandi meðferð,“
segir Gréta og bætir við að PICT-
meðferðin sé mjög árangursrík
og gott meðferðarform fyrir fólk
sem hefur lent í kynferðislegri
misnotkun eða öðru ofbeldi og
áföllum á barnsaldri.
„Til dæmis er orsaka átrask-
ana oft að leita í barnæskunni.
Yfirleitt veit fólk ekki nákvæm-
lega hvað olli því að það fékk
átröskun og það sem ég geri er að
vinna með undirmeðvitundina og
reyni að komast að því hver orsök
vandamálsins er,“ segir Gréta.
„Þetta er gert í samráði við geð-
lækni og um leið og búið er að
finna orsökina er það sem eftir
kemur oftast leikur einn.“
Einnig þykir mörgum það
kostur að meðferðin krefst þess
ekki að viðkomandi ræði um
einstaka atburði. „Margir leita
sér ekki meðferðar því þeir vilja
ekki segja frá ýmsum atburð-
um. Þetta á til dæmis við fólk
sem hefur lent í kynferðislegu
ofbeldi. Í PICT-meðferðinni þá
þarf fólk ekki að deila reynslu
sinni frekar en það vill. Oft kýs
fólk að tala um atburðina eftir
að meðferðin er komin af stað en
á meðan er notast við stikkorð
sem einstaklingurinn tengir þá
atburðina við.“
Gréta segir þessi meðferðar-
form vera um margt ólík þeim sem
eru í boði annars staðar. Meðferð
með PICT tekur til dæmis aðeins
fjóra til fimm mánuði, jafnvel
skemur, en hefðbundin meðferð
getur tekið allt að tvö ár. „Marg-
ir meðferðaraðilar vinna einnig
að mestu með líðan fólks eins og
hún er í dag og á fullorðinsárum.
Ég reyni aftur á móti að finna
út vandmál sem fólk hefur orðið
fyrir í barnæsku,“ segir Gréta.
„Ég vinn með barnæskuna beint
í gegnum undirmeðvitundina þar
sem leitað er að áföllum sem fólk
hefur lent í sem skýra líðan þess
í dag,“ segir Gréta. „Með því má
losa fólk endanlega undan vanlíð-
an sem það glímir við á fullorð-
insaldri.“
johannas@frettabladid.is
Orsök vandans fundin
Gréta Jónsdóttir, fjölskylduráðgjafi, vinnur með fólki að ýmsum vandmálum sem hrjáir það á fullorðinsaldri. Í meðferðum sínum styðst
hún við Multimodal Therapy og PICT-meðferðir sem eru um margt frábrugðnar öðrum meðferðarformum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fræðslusdagskrá hjá Maður lifandi
14. febrúar Hvað er Austurlensk læknisfræði?
Verð 1.300 Þórunn Birna Guðmundsdóttir
15. febrúar Heilbrigði og hamingja
Verð 2.900 Benedikta Jónsdóttir kl. 18:30-22:00
21. febrúar Sjálfstyrking lífstíll til framtíðar
Verð 1.000 Bergþóra Reynisdóttir kl. 17:30-18:30
22. febrúar10 grunnreglur Framhaldsnámskeið
Verð 5.900 Þorbjörg Hafsteinsdóttir kl. 19:00-23:00
23. febrúar 10 grunnreglur kl. 19:00-23:00
Verð 6.900 Þorbjörg Hafsteinsdóttir kl. 19:00-23:00
01. mars Að vinna með regnbogafæði.
Lausn sem hentar öllum kl 18:30 - 20:00
Verð 1.000 Hildur Hákonardóttir