Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.02.2006, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 14.02.2006, Qupperneq 20
[ ] Ei n n t v ei r o g þ r ír 3 60 .0 4 1 STÆRSTA HEILSUVÖRUVERSLUN Á LANDSBYGGÐINNI Póstsendum um land allt Glerártorg Akureyri S: 462-1889 heilsuhorn@simnet.is www.simnet.is/heilsuhorn �������������� ����������� ������ �������������� ������������������ ����������� ������������������ Jóga er gott fyrir líkama og sál. Ýmsar heilsuræktarstöðvar bjóða upp á jógatíma fyrir þá sem það vilja, en svo er auðveldlega hægt að iðka jóga heima hjá sér. Nýtt námskeið um uppeldi ungra barna hefst á morgun í Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg. Miðstöð heilsuverndar barna stend- ur fyrir sérstökum uppeldisnám- skeiðum fyrir foreldra unga barna. Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar nefnast fjögurra kvölda námskeið á vegum Mið- stöðvar heilsuverndar barna. Eitt slíkt hefst á morgun, 15. febrúar í fundarsal á 2. hæð Heilsuvernd- arstöðvarinnar við Barónsstíg og stendur frá 17-19. Námskeiðið er ætlað foreldrum barna á aldrin- um 0-18 mánaða og þar er áhersla lögð á að kenna þeim aðferðir til að skapa æskileg uppeldisskil- yrði sem líklegust eru til að skila árangri í lífi barnsins. Verðið er 6000 krónur fyrir einstakling og 9000 krónur fyrir par. Skráning er í síma 585-1350. Leggja grunn að lífinu Gott er að fá leiðbeiningar um hvernig best sé að meðhöndla litlu krílin. Gréta Jónsdóttir fjölskyld- uráðgjafi notar Multimodal Therapy og PICT-meðferð í ráðgjöf sinni. Hvoru tveggja eru meðferðarform sem miða að því að komast að orskök þeirrar vanlíðunar sem hrjáir fólk á fullorðinsaldri. Gréta Jónsdóttir útskrifaðist sem fjölskylduráðgjafi frá Newbold College á Englandi síðastliðið vor. Gréta lærði fjölskylduráðgjöf sem kallast Multimodal Therapy, eða margþætt meðferð, og er nú að ljúka námi í meðferð sem kall- ast Parks Inner Child Therapy, eða PICT. Gréta aðstoðar fjölskyldur, hjón eða einstaklinga með ýmis vandamál eins og þunglyndi, kvíða, stress, sorg, átraskanir eða ýmis áföll. „Þessar meðferð- ir, PICT og margþætt meðferð, eru algjörlega byggðar á ein- staklingsgrunni. Þegar fólk leit- ar til mín þá fyllir það út hjá mér spurningalista og út frá þeim lista er valin viðeigandi meðferð,“ segir Gréta og bætir við að PICT- meðferðin sé mjög árangursrík og gott meðferðarform fyrir fólk sem hefur lent í kynferðislegri misnotkun eða öðru ofbeldi og áföllum á barnsaldri. „Til dæmis er orsaka átrask- ana oft að leita í barnæskunni. Yfirleitt veit fólk ekki nákvæm- lega hvað olli því að það fékk átröskun og það sem ég geri er að vinna með undirmeðvitundina og reyni að komast að því hver orsök vandamálsins er,“ segir Gréta. „Þetta er gert í samráði við geð- lækni og um leið og búið er að finna orsökina er það sem eftir kemur oftast leikur einn.“ Einnig þykir mörgum það kostur að meðferðin krefst þess ekki að viðkomandi ræði um einstaka atburði. „Margir leita sér ekki meðferðar því þeir vilja ekki segja frá ýmsum atburð- um. Þetta á til dæmis við fólk sem hefur lent í kynferðislegu ofbeldi. Í PICT-meðferðinni þá þarf fólk ekki að deila reynslu sinni frekar en það vill. Oft kýs fólk að tala um atburðina eftir að meðferðin er komin af stað en á meðan er notast við stikkorð sem einstaklingurinn tengir þá atburðina við.“ Gréta segir þessi meðferðar- form vera um margt ólík þeim sem eru í boði annars staðar. Meðferð með PICT tekur til dæmis aðeins fjóra til fimm mánuði, jafnvel skemur, en hefðbundin meðferð getur tekið allt að tvö ár. „Marg- ir meðferðaraðilar vinna einnig að mestu með líðan fólks eins og hún er í dag og á fullorðinsárum. Ég reyni aftur á móti að finna út vandmál sem fólk hefur orðið fyrir í barnæsku,“ segir Gréta. „Ég vinn með barnæskuna beint í gegnum undirmeðvitundina þar sem leitað er að áföllum sem fólk hefur lent í sem skýra líðan þess í dag,“ segir Gréta. „Með því má losa fólk endanlega undan vanlíð- an sem það glímir við á fullorð- insaldri.“ johannas@frettabladid.is Orsök vandans fundin Gréta Jónsdóttir, fjölskylduráðgjafi, vinnur með fólki að ýmsum vandmálum sem hrjáir það á fullorðinsaldri. Í meðferðum sínum styðst hún við Multimodal Therapy og PICT-meðferðir sem eru um margt frábrugðnar öðrum meðferðarformum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Fræðslusdagskrá hjá Maður lifandi 14. febrúar Hvað er Austurlensk læknisfræði? Verð 1.300 Þórunn Birna Guðmundsdóttir 15. febrúar Heilbrigði og hamingja Verð 2.900 Benedikta Jónsdóttir kl. 18:30-22:00 21. febrúar Sjálfstyrking lífstíll til framtíðar Verð 1.000 Bergþóra Reynisdóttir kl. 17:30-18:30 22. febrúar10 grunnreglur Framhaldsnámskeið Verð 5.900 Þorbjörg Hafsteinsdóttir kl. 19:00-23:00 23. febrúar 10 grunnreglur kl. 19:00-23:00 Verð 6.900 Þorbjörg Hafsteinsdóttir kl. 19:00-23:00 01. mars Að vinna með regnbogafæði. Lausn sem hentar öllum kl 18:30 - 20:00 Verð 1.000 Hildur Hákonardóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.