Fréttablaðið - 22.02.2006, Qupperneq 2
2 22. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
Skráning fer fram á www.landsbanki.is og í Þjónustuveri bankans í síma
410 4000. Allar nánari upplýsingar um dagskrá og fyrirlesara er að finna á
www.landsbanki.is. Í boði er kaffi og veitingar. Fundargestir verða leystir
út með lítilli gjöf.
410 4000 | www.landsbanki.is
Fimmtudagskvöld
eru fjármálakvöld
Fyrirlestur í Árbæjarútibúi, Kletthálsi 1
23. febrúar kl. 20
- Efnahagsmál í upphafi árs
- Hvar liggja fjárfestingatækifærin?
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
12
57
02
/2
00
6
Hraðakstur í Kópavogi SLögregl-
an í Kópavogi stöðvaði sex ökumenn
á Reykjanesbrautinni í fyrrinótt fyrir
hraðakstur. Óku allir á vel yfir hundrað
kílómetra hraða og sá er hraðast ók var
tekinn á 123 kílómetra hraða.
LÖGREGLUFRÉTT
HAMFARIR „Ég á ættingja þar sem
skriðurnar féllu og ég bíð eftir því
að fá fregnir af þeim en ekkert
símasamband hefur verið þangað
síðustu daga,“ segir Filippseying-
urinn Liezel Renegado Christians-
en en hún er búsett hér á landi.
Hún segir þorpin liggja hvert upp
að öðru á þessum slóðum og er hún
ekki viss hvort ættingjar hennar
búi í Guinsaugon þar sem rúm-
lega 1.800 manns týndu lífi þegar
aurskriða fór þar yfir en um 1.900
bjuggu í þorpinu.
„Að sjálfsögðu eru allir harmi
slegnir á Filippseyjum. Margir eru
einnig hræddir og fólk í nálægum
þorpum hefur yfirgefið heimili sín
nú þegar enn rignir svona mikið og
hætta er á fleiri flóðum. Allir vilja
hjálpa til og síðast þegar ég heyrði
í fréttum var búið að safna milljón
dollurum til að styrkja hjálpar-
starfið,“ segir hún.
Liezel hefur ekki sjálf farið
varhluta af hamförum þar í landi.
„Þegar ég var níu ára kom mikið
fárviðri í þorpinu sem ég bjó í og
létust tíu eða tólf manns þar. Húsið
sem ég var í var nærri því komið
á loft en víða varð gríðarmikið
tjón. Svo man ég eftir því að um
tíu þúsund manns létust í flóðum
fyrir sextán árum í borg sem heitir
Ormoc,“ segir hún.
Rúmlega 600 Filippseyingar
eru búsettir hér á landi og eru þeir
fjórða fjölmennasta erlenda þjóðar-
brotið hérlendis. - jse
Liezel Renegado Christiansen óttast um afdrif ættingja á Filippseyjum:
Allir eru harmi slegnir
LIEZEL RENEGADO CHRISTENSEN Liezel
á ættingja þar sem aurskriðurnar féllu
og bíður fregna af þeim þaðan en
símasambandslaust hefur verið þar að
undanförnu.
ALÞINGI Halldór Ásgrímsson for-
sætisráðherra sagði á Alþingi í gær
ekki útilokað að
þeir sem vildu ætt-
leiða börn fengju
styrk. Kæmi til
þess væri einsýnt
að félagsmála-
ráðuneytið sæi um
styrkveitinguna.
Jónína Bjart-
marz, þingmað-
ur Framsóknar-
flokksins, benti í
pontu á að styrkir sem þessir væru
veittir alls staðar annars staðar á
Norðurlöndum: „Við erum að tala
um að jafna aðstöðu þessa fólks
miðað við þá foreldra sem eignast
börn sín á þennan svokallaða eðli-
lega eða venjulega hátt.“ - gag
Forsætisráðherra á þingi:
Ættleiðingar
verði styrktar
JÓNÍNA
BJARTMARZ
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Egils-
stöðum lagði í fyrrakvöld hald á
um fimmtán grömm af hassi sem
komu með innanlandsflugi á Egils-
staðaflugvöll.
Var karlmaður á Reyðarfirði
handtekinn í samvinnu við lög-
regluna á Eskifirði. Viðurkenndi
hann að eiga efnið, sem hann
sagðist ætla bæði til eigin nota
og til sölu. Málið telst upplýst, að
sögn lögreglunnar. ■
Maður tekinn á Reyðarfirði:
Hass með flugi
SPURNING DAGSINS
Steinunn, fá ekki Benedikt og
Hekla systkinaafslátt?
„Nei, og ekki magnafslátt heldur.”
Benedikt Jósepsson á hæstu tilboð í 39 af
40 lóðum sem í boði voru í Úlfarsfelli. Hekla
systir hans átti næsthæstu tilboð í nær allar
lóðirnar. Steinunn Valdís Óskarsdóttir er
borgarstjóri.
VIÐSKIPTI Mikil viðbrögð voru á
fjármálamarkaði eftir að matsfyr-
irtækið Fitch staðfesti lánshæf-
iseinkunn ríkissjóðs en breytti
horfum á lánshæfismati ríkis-
sjóðs úr stöðugum
í neikvæðar.
G a g n r ý n i r
Fitch núverandi
efnahagsstefnu,
meðal annars
skattalækkanir og
óhóflega skulda-
söfnun fyrirtækja
og almennings. Telur matsfyrir-
tækið að vaxandi erlend skulda-
söfnun og mikill viðskiptahalli
séu vísbendingar um aukna
áhættu í þjóðarbúskapnum.
Árni Mathiesen fjármálaráð-
herra segir að lánshæfismat rík-
issjóðs hafi einnig verið staðfest
fyrir stuttu af matsfyrirtækinu
Moody´s, sem jafnframt staðfesti
óbreyttar langtímahorfur. „Í því
ljósi kemur þetta á óvart,“ segir
Árni.
Krónan lækkaði um 4,4 pró-
sent, sem er næstmesta lækkun á
einum degi frá upphafi, og hefur
ekki verið veikari en síðan um
miðjan ágúst á síðasta ári.
Úrvalsvísitalan lækkaði
sömuleiðis um 3,25 prósent eða
222 stig sem er mesta stigalækk-
un frá upphafi. Fjármálafyrir-
tækin leiddu lækkanirnar.
Sterk viðbrögð koma greining-
ardeild KB banka á óvart, enda
hafa margir bent á mikið ójafn-
vægi í þjóðarbúskapnum.
- eþa/ sjá Markaðinn
Næstmesta lækkun krónunnar frá upphafi og hlutabréf lækkuðu talsvert:
Skýrsla Fitch veldur titringi
MENNING Aðgangur að Listasafni
Íslands verður ókeypis næstu þrjú
árin til að auðvelda aðgengi að því
og auka aðsókn. Er það mögu-
legt með stuðningi Samson eign-
arhaldsfélags, sem í gær gerði
samstarfssamning við safnið til
þriggja ára.
„Það er okkur hjá Listasafni
Íslands mikið fagnaðarefni að geta
boðið ókeypis aðgang að safninu
og sýningum og það er von okkar
að þessi ákvörðun verði til þess,
að breikka og stækka þann hóp
sem kemur í safnið,“ segir Ólaf-
ur Kvaran, safnstjóri Listasafns
Íslands.
Á samningstímanum mun
Samson styrkja Listasafnið um 45
milljónir króna sem verður varið
til að efla starfsemi þess og verð-
ur þjónusta við gesti aukin með
ýmsum hætti. - bþs
Samson styrkir Listasafnið:
Ókeypis inn á
safnið í þrjú ár
SKÁLAÐ FYRIR SAMNINGNUM Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra
ásamt Björgólfi Guðmundssyni og Ólafi
Kvaran, safnstjóra LÍ.
KJARAMÁL Kjarasamningur Vél-
stjórafélags Íslands og Lands-
sambands íslenskra útvegsmanna
var felldur af félagsmönnum
vélstjórafélagsins í annað sinn á
dögunum. Þetta kom í ljós eftir
að talin höfðu verið atkvæði um
nýjan kjarasamning sem skrifað
var undir um síðustu áramót. Á
kjörskrá voru 665 og greiddi 301
atkvæði, sem er 45,3 prósent.
Atkvæði féllu þannig að 146, eða
49,7 prósent, sögðu já en 148, eða
50,3 prósent, sögðu nei og var
samningurinn því felldur með
aðeins tveggja atkvæða mun.
Auðir seðlar og ógildir voru sjö.
þegar kosið var um samninginn í
júní í fyrra samþykktu 92 félags-
menn hann en 170 felldu.
Forsaga málsins er sú Sjó-
mannasamband Íslands og Far-
mannasamband Íslands gerðu
samninga um áramótin 2004.
Þeir samningar breyttu bæði
skiptaprósentum og inniveru-
ákvæðum. Vélstjórafélagið
fór síðan í samningaviðræður
við LÍÚ en var tjáð að þessum
tveimur ákvæðum yrði ekki
breytt í nýjum samningum við
vélstjóra.
Helgi Laxdal, formaður Vél-
stjórasambandsins, segir að
vandamálið sé að hans mati að
vélstjórar á íslenskum skip-
um vilji halda gömlu samn-
ingunum óbreyttum, þeir vilji
halda þeim skiptahlutföllum og
inniveruákvæðum sem þar voru.
Það er líka vandamál að hans
mati að verið er að kjósa um
samning sem aðrir voru búnir
að samþykkja. Þessir samning-
ar séu ekki samningar vélstjóra
nema að forminu til.
Helgi segir að málinu verði
nú vísað til ríkissáttasemjara. Ef
engin niðurstaða næst úr viðræð-
um við hann, þá sé ekki nema eitt
að gera, boðað verður verkfall.
Verkfall þýðir að öll skip í íslenska
flotanum mun sigla í land. „Þetta
eru næstu skref en það liggur
fyrir að við erum búnir að fara
með þennan samning tvisvar og
hann hefur verið felldur í bæði
skiptin þó munurinn hafi verið
aðeins tvö atkvæði nú.“
Vélstjórar eru samnings-
lausir frá síðustu áramótum og
Helgi telur að íslenskir vélstjór-
ar séu almennt ósáttir við þá
stöðu og ekki hægt að láta kyrrt
liggja. Aðgerða sé því þörf og ef
að næstu skref ganga snurðu-
laust fyrir sig á Helgi von á því
að verkfallsboðun verði gefin út
um miðjan maí.
svavar@frettabladid.is
Vélstjórar komnir í
verkfallstellingar
Vélstjórar felldu kjarasamning sinn í annað sinn á dögunum með aðeins tveim
atkvæðum. Formaður Vélstjórafélags Íslands sér ekkert annað í stöðunni en
verkfall. Verkfall verður boðað í maí ef samningar nást ekki.
Í VÉLARRÚMINU Gunnar Friðgeirsson, fyrsti vélstjóri á Engey RE 1. Gunnar og félagar hans í
vélstjórastétt horfa fram á verkfall í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÁRNI MATHIESEN
KRÓNAN VEIKIST Hefur ekki verið veikari
síðan í ágúst á síðasta ári.
BRUSSEL, AP Fulltrúum sóttvarna-
yfirvalda Evrópusambandsland-
anna 25 mistókst í gær að komast
að samkomulagi um bólusetningu
fiðurfénaðar gegn fuglaflensu.
Fuglaflensa af hinum hættulega
H5N1-stofni var staðfest í Ung-
verjalandi, sjöunda ESB-ríkinu
fram til þessa.
Sérfræðingar aðildarríkjanna
munu í dag halda áfram í Brussel
viðræðum um hvernig ráðlegast
sé að bregðast við hættunni.
Ágreiningur er um sótt-
varnaleiðir, hvort reyna eigi að
bólusetja alla alifugla eða hvort
nægilegt sé að halda þeim innan-
dyra. ■
Viðbrögð við fuglaflensu:
ESB-ríki grein-
ir á um leiðir