Fréttablaðið - 22.02.2006, Blaðsíða 20
[ ]Rúðuþurrkur eru mikilvægar og verða að vera góðar til þess að koma að gagni. Það er nauðsynlegt að skipta reglulega um rúðuþurrkur, um leið og þær fara að verða lélegar.
Samkvæmt nýlegri rannsókn
í Bandaríkjunum hefur líftími
bíla þar í landi aldrei verið
lengri. Á Íslandi virðist þróun-
in hins vegar vera önnur.
Bílar eru alltaf að verða betri
og betri, í það minnsta þróaðri
og þróaðri. Gífurlegu fjármagni
hefur verið varið í þróunarkostnað
nýrra bíla og hefur það skilað sér í
bættu öryggi, sparneytnari vélum
og meiri þægindum. Hefur þessi
þróun hins vegar haft einhver
áhrif á endingu þessa bíla? Hér
áður fyrr þótti afar eðlilegt að eiga
tíu ára gamlan bíl og margir eiga í
dag jafnvel enn eldri bíl. Á tímum
góðæris í landinu virðist þessi
þróun hafa snúist við. Fólk á bíla
sína í örfá ár og er alltaf að endur-
nýja. Tölur frá Vöku sýna að aldrei
fyrr hefur jafn mörgum bílum
verið fargað og nú, jafnvel bílum
sem virðast vera í toppstandi en
eigendur hafa ekki þörf fyrir.
Á vef fréttastofunnur CNN var
nýlega sagt frá því að samkvæmt
gögnum frá R.L. Polk and Company
hefur meðallíftími bíla í Banda-
ríkjunum aldrei verið hærri. Ólíkt
Íslendingum hafa Bandaríkjamenn
heldur aldrei látið farga eins fáum
bílum og á seinasta ári. Aðeins 4,3
prósentum af öllum fólksbílaflota
Bandaríkjamanna var þá eytt en
það er met í landinu.
Meðalaldur bíla í Bandaríkjun-
um mældist í fyrra níu ár en fyrir
tíu árum síðan mældist hann sjö
og hálft ár. Bílar eldri en ellefu
ára mældust 34,8 prósent af öllum
fólksbílum í Bandaríkjunum en
þessi prósentutala var rúmum
fimm stigum lægri fyrir tíu árum
síðan.
,,Hér á landi er fólk að láta frá
sér bílana fyrr en var. Hér áður
fyrr voru bílarnir gerðir upp eins
og hægt var enda var þá hafta-
stefna sem kom í veg fyrir að fólk
gæti keypt sér nýja bíla. Ég mundi
því álíta að þessari þróun væri
öfugt farið hér á landi miðað við
hvernig hún er í Bandaríkjunum.
Bílum er hent mikið yngri í dag
en var gert hér áður fyrr,“ segir
Kjartan Friðgeirsson, annar eig-
andi bifreiðaverkstæðis Kjartans
& Þorgeirs, en hann hefur verið
bifvélavirki í um fjörutíu ár.
Kjartan er ekki viss um að nýir
bílar gætu enst jafn lengi og bílar
gerðu forðum sökum þess að þeir
séu minni, léttari og ekki eins
sterkbyggðir. Skúli Sigurðsson,
þjónustustjóri Ingvars Helgason-
ar, er hins vegar andvígur þeirri
staðreynd. ,,Það sem er að gerast
í dag er markaðurinn er orðinn
allt öðruvísi. Fólk leitast eftir svo
mörgu öðru en bara að bíllinn sé
í lagi,“ segir Skúli og bætir við að
hann sé á því að endingartími bíla
hafi lengst. ,,Það er alveg ljóst að
fólk getur alveg látið nýja bíla end-
ast mjög lengi ef það sækist eftir
því,“ skýtur Skúli inn að lokum.
steinthor@frettabladid.is
Er líftími bíla að lengjast?
Aldrei fyrr hefur jafn mörgum bílum verið fargað hér á landi og nú en í Bandaríkjunum er þróunin einmitt í hina áttina.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Árlega gerir þýska bílablaðið
AutoBild úttekt á heildargæð-
um bíla. Mazda sigraði, rétt
eins og í fyrra, en aldrei áður
hefur sami framleiðandi sigrað
tvö ár í röð.
Í könnuninni eru 24 mest seldu
bílamerki Evrópu skoðuð. Gæðin
eru metin út frá sjö þáttum en þeir
eru: skýrslur frá þýska bifreiðaeft-
irlitinu (TUV), viðhorf almennings,
verkstæðisprófanir, ábyrgð, aftur-
kallanir, skoðanakönnun sem náði
til 24.583 bíleigenda og langtíma-
prófanir Auto Bild á nýjum bílum.
Mazda kom vel út í öllum flokk-
um en Toyota fylgdi fast á eftir í
öðru sæti. Athygli vekur árangur
Mazda 6 í langtímaprófunum en í
100.000 km prófum fannst engin
bilun og er þetta í fyrsta sinn sem
það gerist. ■
Mazda sigrar annað árið í röð
Gæðin eru mest, samkvæmt AutoBild, þegar keypt er Mazda.
Húðum felgur og dráttarbeisli
Felguhúðun á 4.500kr stk
S: 544 5700 * www.polyhudun.is
Smiðjuvegi 1 * 200 Kópavogur
E igum á l ager 350 R A L l i t i
Pólýhúðun ehf
Daewoo lyftarar
Partur-Spyrnan-Lyftarar • Eldshöfða 10 • 110 Reykjavík • Sími: 585-2500 • Fax: 567-9557
Gæði á góðu verði