Fréttablaðið - 01.03.2006, Qupperneq 2
2 1. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR
Sjálfskipt
og allt allt öðruvísi
1.750.000,-
Sjálfskipt, 1.8 l. vél og hlaðin aukabúnaði
���������������� �����������������
Nýr, fallegri og miklu
betri Opel.
Leitað á bændabýli Breska lög-
reglan gerði í gær húsleit á bændabýli
í grennd við Tonbridge í Kent, þar sem
53 milljónum sterlingspunda var rænt í
síðustu viku. Sky-sjónvarpsstöðin greindi
frá þessu en lögreglan vildi ekki veita
nánari upplýsingar að svo stöddu.
BRETLAND
SPURNING DAGSINS
Alfreð, voru gufuböðin í morg-
unsárið auglýsingabrella?
Nei, en þetta minnir okkur hins vegar
á hversu þýðingarmikið heita vatnið er
fyrir Reykvíkinga og aðra höfuðborgar-
búa.
Mikla gufu lagði yfir Reykjanesbraut í
gærmorgun eftir að fjörutíu sentimetra gat
kom á aðflutningsæð Orkuveitu Reykjavíkur.
Alfreð Þorsteinsson er stjórnarformaður
Orkuveitunnar og berst nú um viðskiptavin-
ina við aðrar veitur, þar sem samkeppni á
raforkumarkaði hefur verið gefin frjáls.
LÖGREGLA Nítján ára stúlka lést í
bílslysi á Sæbraut rétt eftir mið-
nætti í fyrrinótt. Stúlkan missti
stjórn á bifreið sem hún ók og
keyrði niður tvo ljósastaura og
hafnaði á götuvita. Vitni að slys-
inu fengu áfallahjálp sérfræðinga
á Landspítalanum. Þau sögðu að
svo virtist sem stúlkan hafi verið
í kappakstri við annan bíl á
Sæbrautinni.
Lögregla rannsakar slysið og
segir að stúlkan hafi ekki verið í
belti, en hún kastaðist út úr bíln-
um við áreksturinn. Lögregla
segir erfitt að sannreyna að stúlk-
an hafi verið í kappakstri en segir
ljóst að jeppabifreið hafi verið
ekið greitt samsíða bíl hennar.
Ungur piltur ók jeppanum og
þekkti stúlkuna ekki.
Stúlkan var fædd árið 1987.
Hún var ein í bílnum. Ekki er
hægt að greina frá nafni hinnar
látnu að svo stöddu. - gag
Banaslys á Sæbraut:
Nítján ára
stúlka lét lífið
LÖGREGLUMÁL Fíkniefnin sem
fundust í jörðu úti á víðavangi
fyrir utan borgina í síðustu viku
reyndust vera amfetamín, sam-
kvæmt niðurstöðum rannsóknar
lögreglu. Um var að ræða 3,2 kíló
amfetamíns í einni pakkningu.
Efnið var grafið í holu á afvikn-
um stað rétt austan við borgina.
Ábending kom frá vegfaranda
sem taldi óeðlilegar mannaferðir
vera á þessu svæði. Hann lét lög-
regluna í Reykjavík vita sem fann
efnið.
Samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins hefur enginn verið
handtekinn né yfirheyrður vegna
amfetamínfundarins. Fíkniefna-
deild lögreglunnar heldur rann-
sókn málsins áfram.
Deildin rannsakar jafnframt
ennþá mál tveggja Litháa sem
reyndu að smygla amfetamínbasa
hingað til lands. Annar þeirra
kærði úrskurð Héraðsdóms um
framlengingu gæsluvarðhalds
fyrr í vikunni. Hæstiréttur stað-
festi úrskurðinn í gær. Þetta er í
annað sinn sem sami maður kærir
úrskurð um framlengingu gæslu-
varðhalds en hann hefur ekki haft
erindi sem erfiði.
Gæsluvarðhald yfir honum
rennur út á morgun, en hinn Lit-
háinn, sem tekinn var með amfet-
amínbasann í fórum sínum, var
úrskurðaður í gæsluvarðhald til 7.
apríl. - jss
AMFETAMÍN Lögreglan hefur tekið gríðar-
legt magn af amfetamíni það sem af er
þessu ári.
Fíkniefnin sem fundust á víðavangi utan við borgina:
Þrjú kíló í einni pakkningu
VINNUMARKAÐUR Grunur leikur á
að sjö Litháar, fjórir karlar og
þrjár konur, séu ólöglega að störf-
um við framkvæmdir á efri hæð-
inni í Dugguvogi 10 í Reykjavík.
Tveir fulltrúar verkalýðshreyf-
ingarinnar stormuðu inn í fram-
kvæmdastaðinn í gær, ræddu við
fólkið og reyndu að ná í eiganda
hússins til að kynna sér hvort allt
væri lögum samkvæmt.
Ákveðið var að kalla lögreglu
og starfsmenn byggingafulltrúa á
staðinn en ekki náðist í þá. Búist
er við að rannsókn hefjist í dag og
svæðinu lokað með innsigli.
Björn Einarsson innanhúss-
arkitekt stendur fyrir fram-
kvæmdunum ásamt félaga sínum í
fyrirtækinu B og G en fyrirtækið
Efrihlíð á húsnæðið. Björn segir
að fjórir til fimm Litháar starfi
löglega við framkvæmdirnar.
Útlendingaeftirlitinu hafi verið
tilkynnt um það.
Litháarnir eru að hans sögn frá
starfsmannaleigunni Salivir í Lit-
háen. Björn segir að Litháarnir
fari úr landi síðar í vikunni þegar
fólkið sé búið að vera hér í þrjá
mánuði. Sjálft sagðist fólkið hafa
verið hér frá því í desember, fá 80
þúsund krónur á mánuði og búa á
tveimur stöðum í miðborginni.
Í Dugguvogi 10 er verið að
breyta iðnaðarhúsnæði á efri hæð
í skrifstofu, lager og íbúðarhús-
næði, en á neðri hæðinni er meðal
annars dekkjaverkstæði. Björn
segir að ekki sé gert ráð fyrir
íbúðum. Samkvæmt upplýsingum
hjá byggingafulltrúaembættinu í
Reykjavík hafði verið sótt um
leyfi til að innrétta íbúð og vinnu-
stofu í stað skrifstofuhúsnæðis í
norðurhluta og fjölga eignum í
suðurhluta. Málinu hefur verið
frestað.
Halldór Jónasson, fulltrúi hjá
Trésmiðafélagi Reykjavíkur, segir
að verkalýðshreyfingin hafi verið
að eltast við Björn í nokkurn tíma.
Hann sé grunaður um að fá fólk til
landsins sem ferðamenn. ASÍ hafi
áður komið á framkvæmdastað
hjá Birni og einu sinni hafi tveir
Litháar og Tékki „látið sig fljúga
fjóra metra fram af palli og stung-
ið af út í bláinn“ þegar þeir hafi
gert sér grein fyrir því að lögregla
væri á leiðinni. ghs@frettabladid.is
DUGGUVOGUR 10 Verið er að breyta efri
hæðinni úr iðnaðarhúsnæði í skrifstofur,
lager og íbúðarhúsnæði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
IÐNAÐARHÚSNÆÐI BREYTT Litháar vinna við breytingar innanhúss í Dugguvogi 10 en þar
á að vera búið að breyta iðnaðarhúsnæði í skrifstofur og íbúðarhúsnæði um miðjan mars.
Talið er að Björn Einarsson innanhússarkitekt hafi fengið þá til starfa án þess að hafa
tilskilin leyfi. Björn segir allt lögum samkvæmt.FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Rassía í Dugguvogi
Hópur Litháa er talinn ólöglegur við störf í Dugguvogi. Fulltrúar ASÍ stormuðu
á staðinn í gær og reyndu að kalla til lögreglu og fulltrúa byggingareftirlits en
gekk ekki. Eigandinn segir allt löglegt við framkvæmdirnar.
VIÐ MÁLNINGARVINNU Þrjár konur vinna
við breytingarnar í Dugguvogi. Fólkið segist
fá 80 þúsund á mánuði og frítt húsnæði.
Eigandinn segir að kjör þeirra séu í sam-
ræmi við kjarasamninga. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGREGLA Kona á vakt í þjónustu-
íbúðum aldraðra á Selfossi kom
aldraðri konu til bjargar, eftir að
eldur kviknaði í íbúð hennar laust
fyrir miðnætti í fyrradag. Báðar
voru fluttar á sjúkrahúsið á Sel-
fossi vegna snerts af reykeitrun
og dvöldu þar um nóttina en voru
útskrifaðar í gær.
Um klukkustund tók að slökkva
eldinn og reykræsta íbúðina sem
er ein af átta þjónustuíbúðum
fyrir aldraða. Slökkviliðið á höfuð-
borgarsvæðinu var í viðbragðs-
töðu en þurfti ekki að fara á vett-
vang. Eldsupptök eru ókunn og
rannsakar lögregla málið.
- gag
Þjónustuíbúðir á Selfossi:
Aldraðri konu
bjargað úr eldi
SVEITARSTJÓRNARMÁL Samfylkingin,
Framsóknarflokkurinn og óflokks-
bundnir í Reykjanesbæ hafa ákveð-
ið að bjóða fram sameiginlegan
lista fyrir bæjarstjórnarkosning-
arnar í vor. Að óbreyttu stefnir í
framboð og átök aðeins tveggja
lista, D-lista Sjálfstæðisflokksins
og nýja framboðslistans sem fer
fram undir merki A-listans.
Kjartan Már Kjartansson, bæj-
arfulltrúi Framsóknarflokksins
og Jóhann Geirdal, bæjarfulltrúi
Samfylkingarinnar í Reykjanes-
bæ, fagna sameiginlegu framboði
mjög, en báðir hafa þeir ákveðið
að víkja fyrir nýju fólki.
Fram kom á blaðamannafundi í
Reykjanesbæ í gær að uppstilling-
arnefnd hefur þegar lagt fram til-
lögu um listann, og verður hann
borinn undir viðkomandi flokksfé-
lög á næstunni.
Sjálfstæðisflokkurinn myndar
einn meirihluta í Reykjanesbæ á
yfirstandandi kjörtímabili með
sex bæjarfulltrúa af ellefu. Tals-
menn A-listans líta svo á að með
sameiginlegu framboði megi
mynda breiðfylkingu fólksins
gegn ríkjandi meirihluta. „Hér má
vænta stórátaka milli A- og D-lista
í sveitarstjórnarkosningunum í
vor,“ sagði Eysteinn Jónsson tals-
maður kosningastjórnar A-listans,
á fundinum í gær.
Bæjarfulltrúar Samfylkingar-
innar og Framsóknarflokksins í
Reykjanesbæ telja að staða bæj-
arsjóðs sé orðin háalvarleg og
Reykjanesbær skuldi mest af
öllum bæjarfélögum landsins á
hvern íbúa.
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut
nærri 53 prósent atkvæða í
Reykjanesbæ í síðustu kosningum
en aðrir flokkar um 47 prósent.
- jh
KJARTAN MÁR KJARTANSSON OG JÓHANN GEIRDAL Tákn A-listans var afhjúpað í gær.
Tveggja turna átök blasa við í Reykjanesbæ.
Allt bendir til þess að aðeins tveir listar bjóði fram í Reykjanesbæ í vor:
Átök A- og D-lista um völdin
Grunur um kúariðu Verið er að
rannsaka hvort veik kýr í Svíþjóð hafi
sýkst af kúariðu, að sögn sænskra
heilbrigðisyfirvalda í gær. Bráðabirgða-
rannsóknir úr 12 ára gamalli kú frá
Vastmanland í miðhluta Svíþjóðar
reyndust jákvæðar og hafa verið sendar
til frekari rannsóknar. Kúariða hefur ekki
fyrr fundist í Svíþjóð.
SVÍÞJÓÐ
BRUSSEL, AP Samkomulag hefur
náðst um þátttöku Sviss í að fjár-
magna þróunarverkefni í ríkjun-
um tíu sem gengu í Evrópusam-
bandið vorið 2004. Á næstu fimm
árum mun Sviss leggja um einn
milljarð svissneskra franka, and-
virði um 50 milljarða króna, í þar
til gerðan þróunarsjóð.
Sjóður þessi verður hliðstæður
Þróunarsjóði EFTA, sem EES-
ríkin í EFTA, Ísland, Noregur og
Liechtenstein, greiða alls um 90
milljarða króna í á sama tímabili.
Nú þegar liggur fyrir að um
helmingur fjárins úr svissneska
sjóðnum muni renna til verkefna í
Póllandi. - aa
ESB semur við Svisslendinga:
Sviss greiðir í
þróunarsjóð
SAMNINGAR INNSIGLAÐIR Svissneski
utanríkisráðherrann Micheline Calmy-Rey
og fulltrúar ESB, Ursula Plassnik og Benita
Ferrero-Waldner, skála í Brussel.
Verkfall líklegt Fundi í kjaradeilu
slökkviliðsmanna lauk í gær án teljandi
árangurs. Atkvæðagreiðsla 280 slökkvi-
liðsmanna um hvort boðað verður til
verkfalls stendur yfir.
KJARAMÁL
SKIPULAGSMÁL Framkvæmdasvið
Reykjavíkurborgar hefur haft
samband við þá sem áttu hæstu til-
boð í byggingarrétt í Úlfarsárdal.
Þeir þurfa nú að ákveða við hvaða
tilboð þeir ætla sér að standa.
Einn maður átti hæsta tilboð í
allar lóðirnar nema eina en þær
voru 40 alls. Borgarráð Reykja-
víkur samþykkti tillögu borgar-
stjóra um að hver einstaklingur
fengi aðeins að kaupa eina einbýl-
is- eða parhúsalóð. - shá
Lóðaútboðið í Úlfarsárdal:
Hæstbjóðend-
ur fá eina lóð