Fréttablaðið - 01.03.2006, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 1. mars 2006 13
UTANRÍKISMÁL Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, staðgengill utan-
ríkisráðherra í opinberri heim-
sókn til Indlands, fundaði með for-
seta landsins í fyrradag.
Á fundinum voru rædd tvíhliða
samskipti ríkjanna á fjölmörgum
sviðum, en þó einkum hvað varðar
vísindi og tækni. Forsetinn er
ánægður með stofnun íslensks
sendiráðs í Indlandi og áréttaði
vilja sinn til að stofnað verði sendi-
ráð Indlands á Íslandi.
Ráðherra hitti jafnframt við-
skiptaráðherra Indlands í gær og
ræddu þau möguleika á vaxandi
viðskiptum á milli landanna. - shá
Þorgerður í Indlandi:
Viðskipti land-
anna aukin
A.P.J. ABDUL KALAM, FORSETI INDLANDS
Þorgerður Katrín fundaði með forsetanum í
gær. Hann lýsti mikilli ánægju með opnun
sendiráðs Íslands í Indlandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
KJÖTIÐ KVATT Íbúi þýska bæjarins Rott-
weil stekkur að fornum sið um götur
gamla bæjarins íklæddur hefðbundnum
kjötkveðjuhátíðarbúningi, svonefndum
„Federahansel“. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÖLDRUNARMÁL Mikil reiði kom
fram á nýafstöðnum aðalfundi
Félags eldri borgara í Reykjavík
og nágrenni vegna þeirra gríðar-
legu tekjutenginga og aukinnar
skattbyrði sem lífeyrisþegar
Tryggingastofnunar verða fyrir,
að því er fram kemur hjá formanni
félagsins, Margréti Margeirs-
dóttur.
Á fundinum voru samþykktar
fjölmargar áskoranir. Má þar
nefna áskorun til borgarstjórnar
um fjölgun þjónustuíbúða, dag-
vistarplássa og eflingu heima-
þjónustu, svo og hækkun á tekju-
viðmiðun vegna afsláttar á
fasteignagjöldum.
Þá beindi fundurinn þeirri
áskorun til ríkisstjórnarinnar að
fram fari endurskoðun á lögum
um málefni aldraðra og jafnframt
að málaflokkurinn verði færður í
heild til sveitarfélaga. Þá skora
eldri borgarar á stjórnvöld að
hækka skattleysismörk, hækka
lífeyri frá Tryggingastofnun, tvö-
falda ráðstöfunarfé íbúa á dvalar-
og hjúkrunarheimilum og að gera
bindandi samning við Tannlækna-
félag Íslands um gjaldskrá fyrir
tannlæknaþjónustu.
Að síðustu var samþykkt álykt-
un til ríkisstjórnar þar sem fund-
urinn mótmælir harðlega hve ríki-
stjórnin hefur dregið á langinn
viðræður við fulltrúa eldri borg-
ara um hækkun á lífeyri. - jss
MARGRÉT MARGEIRSDÓTTIR Formaður-
inn segir mikla reiði hafa komið fram á
aðalfundinum.
Aðalfundur félags eldri borgara í Reykjavík:
Óánægja með tekjutengingu
Sálfræðingar semja Samninga-
nefndir Reykjavíkurborgar og Sálfræð-
ingafélags Íslands hafa undirritað kjara-
samning fyrir sálfræðinga hjá borginni.
Samningurinn er á svipuðum nótum
og þeir sem gerðir hafa verið við aðrar
háskólastéttir. Í honum er gert mögulegt
að starfsmat á störfum sálfræðinga verði
tekið upp á samningstímanum.
KJARAMÁL
SKÍÐI Snjóleysi aftraði því að hægt
væri að opna skíðasvæðið í Blá-
fjöllum fyrir almenningi í febrú-
armánuði. Bláfjöll voru opin í tólf
daga í janúar.
Grétar Hallur Þórisson, for-
stöðumaður Bláfjalla, segir afar
óvenjulegt að ekki sé hægt að opna
skíðasvæðið í febrúar. „Ég held ég
geti sagt að þetta hafi aldrei gerst
áður. Stundum hefur verið nægur
snjór en lokað vegna illviðra en nú
hefur alveg vantað snjóinn.“ Hann
segir að með tilfæringum á snjó
hafi verið hægt að halda skíðaæf-
ingar í fjóra til fimm daga í febrú-
ar en það hafi ekki verið mögulegt
síðustu daga. - bþs
Skíðasvæðið í Bláfjöllum:
Ekkert skíðað í
febrúarmánuði
BLÁFJÖLL Lyfturnar voru lokaðar almenn-
ingi í febrúar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HEILBRIGÐISMÁL Meðallegutími
sjúklinga á Landspítalanum er
lengri eftir því sem þeir verða
eldri. Sem dæmi er meðallegutími
þeirra sem fara í gerviliðaaðgerð
um 12 dagar hjá sjúklingum sem
eru 80 ára eða eldri, tæplega átta
dagar ef þeir eru á aldrinum 70-79
ára og um sjö dagar hjá þeim sem
eru 60-69 ára.
Þetta kemur fram í stjórnunar-
upplýsingum LSH fyrir janúar-
mánuð. Þar segir einnig að skurð-
aðgerðum hafi fjölgað um 7,3
prósent frá sama tíma í fyrra.
Komum á slysa- og bráðamóttökur
spítalans fjölgaði um 4,7 prósent
frá sama mánuði í fyrra. - jss
Landspítali háskólasjúkrahús:
Aldraðir liggja
mun lengur