Fréttablaðið - 01.03.2006, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 1. mars 2006
Allir Passat-bílar með dráttar-
beisli frá verksmiðju hafa nú
ESP-stöðugleikastýringu vegna
aftanívagns sem staðalbúnað.
Meðal nýjunga í staðalbúnaði á
nýjum Volkswagen-Passat er
bættur öryggisbúnaður fyrir
dráttarbeisli. Búnaðurinn felst í
svokallaðri ESP-stöguleikastýr-
ingu. ESP-kerfið skynjar yfirvof-
andi sveiflur á aftanívagni og
bregst við með aðstoð markvissr-
ar hemlunar til þess að koma í veg
fyrir sveiflurnar. Ef hættuástand
kemur upp hægir ESP-kerfið ferð
bílsins með því að hemla með
öllum hjólum dráttarbílsins og
með að draga úr snúningsátaki
vélarinnar þar til stjórn hefur
náðst á skjálftanum.
Volkswagen Passat er fáanleg-
ur framhjóladrifinn eða með
4MOTION-aldrifi og Haldex-
kúplingu. Hægt er að fá 4MOT-
ION-útgáfuna í þremur mismun-
andi gerðum, frá 150 hestöflum og
upp í 3,2 lítra V6 vél sem skilar
hátt í 250 hestöflum. ■
Aukið öryggi í
dráttarbeislum
Aukinn öryggisbúnaður fylgir nýjum Volks-
wagen Passat vegna aftanívagns.
Í Ameríku náðist sá merki áfangi árið
2005 að loftpúðar urðu ekki valdir
að dauða neins fullorðins einstakl-
ings. Þetta kann að virðast undarlegt
við fyrstu sýn en þegar málið er
skoðað nánar kemur í ljós að áverkar
af völdum loftpúða urðu 53 að ald-
urtila árið 1997. Af þessum 53 var 31
barn en í fyrra dóu „aðeins“ tvö börn
af áverkum af völdum loftpúða.
Loftpúðar blásast upp á sekúndu-
broti ef bíll verður fyrir miklu höggi.
Í raun má líkja því við að fá risastóra
og mjúka byssukúlu í andlitið.
Lækkandi dánartíðni er rakin fyrst og
fremst til bættrar hönnunar loftpúða
en einnig til þess að bílbeltanotkun
hefur aukist á undanförnum árum.
Bandarísk yfirvöld áætla að loftpúðar
bjargi um 20.000 lífum á ári.
loftpúðar }
Öruggari loftpúðar
AUKIN SÆTISBELTANOTKUN TALIN
HLUTI ÁSTÆÐUNNAR.
Alþjóðlega bílasýningin í Genf
hefst á morgun. Þar verða
ýmsar skemmtilegar nýjungar í
hönnun bíla kynntar.
Bílaframleiðendur og aðrir sem
tengjast hinum risavaxna bílaiðn-
aði keppast við að koma öllum
sínum trompum á framfæri á sýn-
ingunni. Mikið er um nýjungar og
á sýningunni gefur að líta mikið af
tækninýjungum framtíðarinnar,
allt frá raddstýrðu hljóðkerfi til
nýrra bremsuljósa.
Bílaframleiðandinn Fiat er eitt
af fyrirtækjunum sem ætlar að
kynna tækninýjung. Fiat-bílar
munu í framtíðinni verða net-
tengdir og ef einhver vandamál
koma upp verður hægt að senda
fyrirspurn úr bílnum til verk-
smiðju þeirra og þeir senda aftur
greiningu á vandamálinu um hæl.
Fiat ætlar líka að kynna kerfi sem
gerir fólki kleift að tengja tónlist-
arspilara, til dæmis iPod, og
stjórna þeim með einföldum radd-
skipunum.
Bílaframleiðendur munu einnig
kynna ýmsar nýjungar varðandi
kröfur nútímans um minni bensín-
eyðslu og mengun véla. Mazda
mun sem dæmi kynna þróunar-
vinnu sína á nýrri tvinnvél sem
meðal annars byggir á notkun
vetnis.
Bandarískir bílaframleiðendur
verða einnig áberandi á sýning-
unni. Bandarískir bílaframleið-
endur hafa nefnilega ekki riðið
feitum hesti á eigin heimavelli en
hafa verið að ná aukinni markaðs-
hlutdeild í Evrópu. Þeir líta því
hýru auga til Evrópu og munu á
hátíðinni kynna mikið af nýjung-
um fyrir Evrópumarkað.
Eins og áður segir hefst sýning-
in á morgun og stendur hún fram
til 12. mars. Nánar verður fjallað
um sýninguna hér á bílasíðum
Fréttablaðsins á næstu vikum.
Bílasýningin í Genf að hefjast
Frá einni frumsýningu fyrir bílasýninguna í Genf þar sem nýr Saab Aero X sportbíll var
frumsýndur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Þó sýningin í Genf hefjist ekki fyrr en á morgun hafa alls kyns forkynningar og blaða-
mannafundir verið alla vikuna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP