Fréttablaðið - 02.03.2006, Síða 4
4 2. mars 2006 FIMMTUDAGUR
Sjálfskipt
og allt allt öðruvísi
1.750.000,-
Sjálfskipt, 1.8 l. vél og hlaðin aukabúnaði
���������������� �����������������
Nýr, fallegri og miklu
betri Opel.
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 1.3.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 64,56 64,86
Sterlingspund 113,33 113,89
Evra 77,03 77,47
Dönsk króna 10,326 10,386
Norsk króna 9,604 9,66
Sænsk króna 8,155 8,203
Japanskt jen 0,5552 0,5584
SDR 92,98 93,54
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
108,3552
ÍRAK, AP Saddam Hussein, einræð-
isherrann fyrrverandi, viður-
kenndi fyrir dómi í gær að hafa
fyrirskipað réttarhöld yfir sjía-
múslimum sem síðar voru teknir
af lífi. Hann
hélt því jafn-
framt fram að
þetta hefði
ekki verið
glæpur.
Saddam og
sjö aðrir eru
ákærðir fyrir
aftökur 148
sjía-múslima
eftir að Sadd-
am var sýnt
banatilræði
árið 1982.
„Er það
glæpur að vísa
til yfirvalda
máli sakbornings sem skotið hefur
á þjóðarleiðtoga, sama hvert nafn
hans var?“ spurði Saddam, og
bætti við að hann væri einn ábyrg-
ur; hinir hefðu eingöngu fylgt
skipunum.
Réttarhöldunum var frestað til
12. mars. - smk
Réttað yfir Saddam Hussein:
Segist vera
einn ábyrgur
SADDAM Einræðis-
herrann fyrrverandi í
réttarsal í gær.
SKOÐANAKÖNNUN Samfylkingin í
Reykjavík bætir við sig fimm pró-
sentum en fylgi Sjálfstæðisflokks-
ins dalar lítillega samkvæmt nýrri
skoðanakönnun Gallup. Fylgi
Sjálfstæðisflokksins mælist 52
prósent en mældist 55 prósent
fyrir mánuði.
Samfylkingin fær nú 34,5 pró-
sent en Vinstri grænir um sjö pró-
sent og Framsóknarflokkurinn
fimm prósent. Fylgi Frjálslyndra
er tvö prósent. Yrðu þetta úrslit
kosninga fengi Sjálfstæðisflokk-
urinn hreinan meirihluta eða átta
menn kjörna, Samfylking fengi
sex menn og Vinstri grænir einn.
-shá
Ný skoðanakönnun Gallup:
D-listinn með
meirihluta
MÓTMÆLI Um fimmtán ungmenni
mótmæltu í gær stóriðjuáformum
Alcoa á Íslandi á skrifstofum fyr-
irtækisins að Suðurlandsbraut 12.
Mótmælendurnir, sem flestir
voru á grunnskólaaldri, gengu
inn á skrifstofurnar eftir að þeim
var hleypt inn og létu ófriðlega.
Ingi Kristján Sigmarsson, einn
mótmælendanna, sagði lögreglu
hafa beitt ungmennin töluverðu
harðræði þegar hún skipaði ung-
mennunum að fara út af skrif-
stofu Alcoa. „Lögreglan beitti
ekki ofbeldi en hún henti okkur
út af skrifstofunum í bókstaf-
legri merkingu.“ Erna Indriða-
dóttir, upplýsingafulltrúi Alcoa á
Íslandi, sagðist fagna því að
íslensk ungmenni tækju þátt í
þjóðfélagsumræðu. „Það er
ánægjulegt þegar ungmenni láta
skoðanir sínar í ljós og nýta lýð-
ræðislegan rétt sinn til þess að
mótmæla. Í þessu tilfelli var
þeim hleypt inn eftir að þau
spurðu um stefnu Alcoa varðandi
ráðningar fatlaðs fólks í vinnu.
Það er stefna Alcoa að ráða fólk
til vinnu eftir hæfileikum.“
Eftir að ungmennin höfðu verið
inni á skrifstofunum í skamma
stund var lögregla kölluð til vegna
óláta. „Því miður var ekki vinnu-
friður vegna ólátanna og því var
lögreglan kölluð á vettvang.“ - mh
Ungmenni mótmæltu stóriðjuáformum Alcoa á skrifstofum Fjarðaáls og Alcoa:
Stóriðjuáformum mótmælt
UNGMENNI MÓTMÆLA Ungmenni mót-
mæla stóriðjuáformum Alcoa á Íslandi
með plaströri sem tengir saman tvo
einstaklinga. Átti þetta að tákna ofurtrú á
stóriðju. FRÉTTALBLAÐIÐ/HARI
STÓRIÐIJA Áform um að reisa álver
með að minnsta kosti 250 þúsund
tonna framleiðslugetu á ári eru
háð því að áætlanir um orkuöflun
standist.
Bernt Reitan, aðstoðarfor-
stjóri Alcoa, sagði í samtali við
Fréttablaðið eftir að ákvörðun
félagsins var kynnt í New York í
gær að ef vel tækist til og næg
orka yrði fáanleg á verði sem um
semdist stæði vilji Alcoa til þess
að framleiða meira en 250 þúsund
tonn af áli ár hvert. „Þetta gæti
mögulega orðið fyrsta álver í
heimi sem nýtir rafmagn frá jarð-
varmaorkuveri til álframleiðsl-
unnar,“ sagði Reitan og lýsti
ánægju með samstarfið við
íslensk stjórnvöld og viðtökur
almennings hér á landi. Hann
áréttaði að ekki væri búið að taka
ákvörðun um að reisa álver á
Bakka og næst yrði að huga að
orkuöflun og orkuverði.
Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir að næg
orka eigi að vera fyrir hendi, ekki
síst ef ákvörðun yrði tekin um að
taka álver í notkun í tveimur
áföngum. „Við rekum jarðvarma-
orkuver í Kröflu sem ætlunin er
að stækka. Við könnum orkuöflun
auk þess í Gjástykki, Bjarnarflagi og á Þeistareykjum. Við teljum
okkur vita að svæðið geti gefið
400 til 450 megawatta afl eða allt
að 4.000 gígawattstundir á ári,“
segir Friðrik. Meiri óvissa ríki um
jarðvarmann en vatnsaflið sem
unnt sé að mæla og rannsaka með
þekktum aðferðum. „Við leggjum
traust okkar á þá þekkingu sem
við höfum aflað. Auk þess verða
boraðar þrjár tilraunaholur strax
á þessu ári. Til þess að fá glögga
mynd af svæðinu þarf að bora
fyrir um tvo milljarða króna, en
sumar holurnar nýtast væntan-
lega til orkuframleiðslu.
Landsvirkjun hefur ekki átt
aðild að staðarvalsathugun á
Norðurlandi með stjórnvöldum,
sveitarstjórnum og Alcoa. „Næsta
skref Alcoa verður líklega að
ræða orkuþörf og raforkuverð.
Við leggjum ekki í dýrar rann-
sóknir nema fyrir liggi nokkur
vissa fyrir því að haldið verði
áfram. Ef menn verða ásáttir um
verðhugmyndir höldum við áfram
og leggjum verulega fjármuni í
undirbúning.“
Friðrik segir að hraðinn ráðist
mjög af því hvernig ganga muni
að kanna svæðið og með tilliti til
orkuöflunar væri fýsilegra að
taka álver við Húsavík í notkun í
tveimur áföngum fram til ársins
2015. johannh@frettabladid.is
Alcoa vill framleiða meira
en 250 þúsund tonn á ári
Forstjóri Landsvirkjunar segir að meiri vissa verði að fást um álframleiðslu við Húsavík áður en fyrirtækið
stofnar til milljarða útgjalda við undirbúning orkuöflunar. Alcoa vill framleiða meira en 250 þúsund tonn.
IÐNAÐARRÁÐHERRA OG AÐSTOÐARFORSTJORI ALCOA Valgerður Sverrisdóttir og Bernt Reitan sjást hér eftir fundinn í New York. Alcoa telur
jafnvel fýsilegra að framleiða árlega meira en 250 þúsund tonn af áli við Húsavík náist um það samningar.
FRIÐRIK SOPHUS-
SON FORSTJÓRI
LANDSVIRKJUNAR
„Ef menn verða
ásáttir um verðhug-
myndir höldum við
áfram og leggjum
verulega fjármuni í
undirbúning.“
ÁLVER Árni Mathiesen fjármála-
ráðherra segir að með viljayfir-
lýsingu sinni hafi Alcoa ákveðið
að halda áfram með verkefnið og
þá á Bakka. Það sé auðvitað stór
frétt fyrir Húsvíkinga og nágranna
en tíðindunum beri að taka með
vara.
„Við höfum upplifað það áður
að verkefni hafa verið komin langt
og hætt við þau. Álver á Bakka er
ekkert sem við tökum með í okkar
útreikninga eða áætlanir enn sem
komið er,“ segir hann. - ghs
Fjármálaráðherra:
Tíðindunum
tekið með vara