Fréttablaðið - 02.03.2006, Síða 6
6 2. mars 2006 FIMMTUDAGUR
Ný námskeið
að hefjast.
STÓRIÐJA Valgerður Sverrisdóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
fagnar viljayfirlýsingu Alcoa um
að hefja ítarlega könnun á hag-
kvæmni þess að reisa álver á
Bakka. Hún segir að verði álverið
reist sé það gríðarlegt tækifæri
fyrir Norðlendinga þó að efnahags-
leg áhrif verði mest á Húsavík.
Valgerður segir að reiknað sé
með að mörg afleidd störf verði á
Akureyri. „Auðvitað þarf að bæta
samgöngur á milli þessara staða
þannig að þetta mun hafa gríðar-
lega þýðingu fyrir búsetuskilyrði
og lífskjör á Norðurlandi,“ segir
hún.
Göng undir Vaðlaheiði eru til
athugunar enda styttist þá leiðin
milli Húsavíkur og Eyjafjarðar um
16 kílómetra. Einnig kemur til
greina að stytta leiðina enn frekar,
til dæmis með veg og brú yfir
Skjálfandafljót. Hún vill þó ekki
tjá sig neitt meira um það.
„Þetta er svo sem ekkert nýtt.
Það hefur verið talað um göng
undir Vaðlaheiði alllengi og má
reikna með að það verði allavega
að hluta til í einkaframkvæmd,“
segir hún.
Valgerður telur mikilvægt að
raða framkvæmdum þannig að
„áhrifin verði jákvæð en ekki nei-
kvæð. Þar hafa stjórnvöld mikla
ábyrgð þar sem þau fara náttúru-
lega með efnahagsmál í landinu.
Þess vegna væri best að raða verk-
efnunum upp þannig að ekki verði
alltof mikið í gangi í einu.“ - ghs
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR Iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, Valgerður Sverrisdótt-
ir, segir að áhrif af álveri á Bakka nái til
Eyjafjarðar og því þurfi að bæta samgöngur
milli þessara staða.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra fagnar ítarlegri hagkvæmniskönnun á Bakka:
Bæta þarf samgöngurnar
STÓRIÐJA Reinhard Reynisson, bæj-
arstjóri á Húsavík, segist fagna
niðurstöðu Alcoa en leggur áherslu
á að álver við Húsavík sé enn ekki
í höfn. Hann segir ákvörðun Alcoa
ekki koma á óvart og telur að
nálægð við orkuauðlindirnar í
Þingeyjarsýslum, jákvæð afstaða
heimamanna og hagkvæmur orku-
flutningur að væntanlegu álveri
hafi ráðið úrslitum í hugum stjórn-
enda Alcoa.
„Þetta er mikilvægur áfangi á
langri leið fyrir Húsvíkinga og
Norðlendinga í heild því verði
álverið að veruleika mun áhrifa
framkvæmdanna ekki einungis
gæta á Húsavík. Samgöngur á
svæðinu munu batna, atvinnu-
svæðið stækka og búsetuskilyrði
batna,“ segir Reinhard.
Aukinnar bjartsýni Húsvík-
inga á framtíð byggðarlagsins
mun strax fara að gæta að mati
Reinhards en hann segir húsnæð-
isskort hamla fólksfjölgun. „Ég
vænti þess að byggingarverktak-
ar fari nú þegar að huga að
nýbyggingum. Íbúðaverð hefur
farið hækkandi að undanförnu á
Húsavík og ég á ekki von á öðru
en að ákvörðun Alcoa leiði til frek-
ari hækkunar,“ segir Reinhard.
Aðalsteinn Á. Baldursson, for-
maður Verkalýðsfélags Húsavík-
ur, segir að samkomulag Alcoa og
ríkisins muni fylla Húsvíkinga
bjartsýni og dug og virka sem víta-
mínsprauta á atvinnulífið í bænum
og mannlíf almennt.
„Við eigum að gleðjast og lyfta
glösum en ég vil þó vara við of
mikilli bjartsýni á meðan Alcoa
hefur ekki tekið endanlega
ákvörðun um byggingu álvers á
Bakka. Leiði hagkvæmniathugan-
irnar til þess að ráðist verði í
framkvæmdina þá verða vatna-
skil í byggðaþróun á Húsavík og
fólki mun fjölga hér hraðar en
dæmi eru um á Norðurlandi,“
segir Aðalsteinn.
Um fjögurhundruð manns eru
nú án atvinnu á Norðurlandi
eystra og telur Aðalsteinn að stór
vinnustaður eins og álver muni
skipta sköpum í baráttu Norðlend-
inga gegn atvinnuleysi. „Álver
mun styrkja margvíslega atvinnu-
starfsemi á Norðurlandi og leiða
til þess að laun almennt á svæðinu
munu hækka. Sem baráttumaður
fyrir bættum hag verkalýðsins
get ég því ekki annað en vonað að
Alcoa stígi skrefið til fulls,“ segir
Aðalsteinn. kk@frettabladid.is
Ákvörðun Alcoa fagnað
Bæjarstjórinn á Húsavík fagnar ákvörðun Alcoa um að gera frekari athuganir vegna álvers á Bakka. For-
maður Verkalýðsfélags Húsavíkur segir samkomulag Alcoa og ríkisins fylla Húsvíkinga bjartsýni.
FÁNI DREGINN AÐ HÚNI Þorri Húsvíkinga fagnaði í gær samkomulagi Alcoa og íslenska ríkisins þess efnis að könnuð yrði hagkvæmni
álvers á Bakka við Húsavík. Hreinn Hjartarson, veitustjóri Orkuveitu Húsavíkur, og Örlygur Hnefill Jónsson, varaþingmaður Samfylkingarinn-
ar í Norðausturkjördæmi drógu upp íslenska fánann við Húsavíkurhöfn og fleiri bæjarbúar fóru að ráði þeirra.
FRÉTTABLAÐIÐ/INGÓLFUR SIGFÚSSON
UTANRÍKISMÁL Opinberri Indlands-
heimsókn Þorgerðar Katrínar
Gunnarsdóttur, staðgengils utan-
ríkisráðherra, lýkur í dag.
Í fyrradag átti hún fund með
Manmohan Singh, forsætisráð-
herra Indlands, í Nýju-Delí. Þau
ræddu meðal annars aukin sam-
skipti landanna á sviði vísinda,
menningar og viðskipta.
Samdægurs ávarpaði Þor-
gerður Katrín Alþjóðaviðskipta-
stofnun Indlands. Hún lýsti
ánægju með aukin samskipti
þjóðanna og þá ekki síst aukin
viðskipti indverskra og íslenskra
fyrirtækja. Opinber heimsókn
Abduls Kamal, forseta Indlands,
til Íslands í maí í fyrra hefði
orðið fyrirtækjum hvatning og
það bæri að þakka. Íslendingar
horfðu til Indlands sem vaxandi
markaðar fyrir vörur, þjónustu
og fjárfestingar.
Þorgerður minnti á að Ísland
styddi fasta aðild Indlands að
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna
og myndi gera það áfram. Stuðn-
ingur Indlands við tímabundna
aðild Íslands að öryggisráðinu
árin 2009 og 2010 væri hvetjandi.
„Það er mikilvægt fyrir Samein-
uðu þjóðirnar að gefa smáþjóð-
um, sem eru meirihluti aðildar-
ríkjanna, tækifæri til að láta til
sín taka,“ sagði Þorgerður. - jh
ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR
OG MANMOHAN SINGH Þjóðirnar styðja
hvor aðra til setu í öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna.
Opinberri heimsókn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur til Indlands lýkur í dag:
Styðja aðild að öryggisráðinu
REINHARD REYNIS-
SON Bæjarstjórinn
Á Húsavík segir
ákvörðun Alcoa
mikilvægan áfanga
á langri leið fyrir
Húsvíkinga og Norð-
lendinga í heild.
AÐALSTEINN BALD-
URSSON Formaður
Verkalýðsfélags
Húsavíkur væntir þess
að laun á svæðinu
muni almennt hækka
ef ráðist verður í
álversframkvæmdir á
Bakka.
STÓRIÐJA Hlynur Hallsson, vara-
þingmaður Vinstri grænna í Norð-
austurkjördæmi, segir ákvörðun
Alcoa vonbrigði en fyrirsjáanlega.
Hann segir andstæðinga álvers á
Norðurlandi ekki ætla að leggja
niður baráttu sína.
„Við höfum tapað pínulítilli
orustu en ekki stríðinu í heild. Það
er mikilvægt að haldið verði áfram
að byggja upp ferðaþjónustu og
aðra atvinnustarfsemi á svæðinu
en vissulega er ákvörðun Alcoa
sorgleg fyrir aðra atvinnuuppbygg-
ingu á Húsavík,“ segir Hlynur. - kk
Andstæðingar álvers:
Orustan töpuð
en ekki stríðið
STÓRIÐJA Kristján þór Júlíusson,
bæjarstjóri á Akureyri, segist ágæt-
lega sáttur þó að Alcoa hafi ekki
valið að kanna hagkvæmni álvers á
Dysnesi í Eyjafirði.
Hann segir mestu skipta að álver
rísi á Norðurlandi en bendir á að
ákvörðun þar að lútandi hafi ekki
enn verið tekin. „Menn eiga því að
halda sig á jörðinni enn um sinn en
vissulega er þetta ánægjulegt skref
í átt að álveri á Norðurlandi. Akur-
eyringar munu njóta álversfram-
kvæmda á Bakka því áhrifa slíkra
stórframkvæmda gætir út fyrir
byggingarstaðinn.“ - kk
Bæjarstjórinn á Akureyri:
Sáttur við
ákvörðunina
KJÖRKASSINN
Á að taka upp skólagjöld í Há-
skóla Íslands?
Já 32%
Nei 68%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Er þörf fyrir íslenskt sendiráði á
Indlandi?
Segðu þína skoðun á visir.is
GARÐABÆR Fulltrúaráð Sjálfstæð-
isfélaganna í Garðabæ ákvað í
gærkvöld breytingar á framboðs-
lista flokksins þannig að Ragn-
hildur Inga Guðbjartsdóttir flug-
freyja skipar annað sæti í
sveitarstjórnarkosningunum í
vor.
Uppstillingarnefnd flokksins
bar upp tillögu um óbreyttan lista
í gærkvöld en fjórir efstu menn í
prófkjörinu komu þá fram með
tillögu um að Ragnhildur væri
flutt í þriðja sæti og að þeir Stef-
án Konráðsson og Sturla Þor-
steinsson flyttust niður um eitt
sæti. Þeir skipa því fjórða og
fimmta sætið. - ghs
D-listinn í Garðabæ:
Ragnhildur í
þriðja sæti