Fréttablaðið - 02.03.2006, Side 20
2. mars 2006 FIMMTUDAGUR20
hagur heimilanna
Sala og neysla á þorramat
nær hámarki á þessum
tíma ársins og er ekki að
merkja neina minnkun í
neyslu síðustu ár. Engu
að síður er hópi fólks alls
ekki vel við þennan mat og telja þessa
varðveisluaðferð gamaldags og óþarfa
með öllu. En er það svo?
Vissulega er það gömul hefð að
súrsa mat. Forfeður okkar brúkuðu
þessa aðferð þar sem ekki var mikið
um aðrar aðferðir til varðveislu mat-
væla. Það var ekki fyrr en undir lok
19. aldar sem salt var flutt til landsins
sem einhverju nemur. Upp frá því fóru
menn einnig að frysta matvæli og
sjóða niður. Þrátt fyrir nýjar varðveislu-
aðferðir höldum við í þann forna
sið að súrsa þannig að segja má að
súrsun sé frekar orðin verkunaraðferð
heldur en varðveisluaðferð. Við verk-
um súrmat til að ná fram ákveðnum
eiginleikum vörunnar sem okkur líkar.
Ólíkt mörgum vinnsluaðferð-
um, þá eykst næringarlegt
gildi súrmatarins við
verkun. Verkunin byggist á
því að soðin mat-
væli eru sett
í skyrmysu
í nokkra
mánuði
en við það
lækkar sýrustigið sem hindrar fjölgun
sjúkdómsvaldandi örvera. Mysan
inniheldur steinefni og vítamín, svo
sem kalk og B-vítamín sem síast inn í
vöruna. Auk þess brýtur mjólkursýran
niður kjöt, fitu og bein sem gerir vör-
una auðmeltanlegri og næringarríkari.
Engu að síður eru sum súrsuð
matvæli frekar feit í eðli sínu eins og
bringukollar og lundabaggar. Erfitt
gæti því reynst að kalla þær vörur
hollar þó svo að þær séu næringar-
ríkar. Blóðmör og lifrarpylsa eru
orðnar mun fituminni vörur
en áður og því hiklaust hægt
að halda því fram að þar sé
um að ræða virkilega hollan
og góðan mat.
Súrmatur er hluti af íslenskri
menningu sem mikilvægt er að halda
við. Það gildir jafnt um þennan mat
og annan að allt er gott í hófi.
www.mni.is
MATUR & NÆRING HÓLMFRÍÐUR ÞORGEIRSDÓTTIR, MATVÆLA- OG NÆRINGARFRÆÐINGUR
Skemmdur matur eða hollustuvara
Dalbraut 3, 105 Reykjavík • Nánari upplýsingar í síma
567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar
MARKISUR
www.markisur.com
VILTU SKJÓL Á
VERÖNDINA?
„Ég held að verstu kaup sem ég hef gert var
veiðileyfi í Hrútafjarðará. Ástæðan var sú að það
rigndi í þrjá daga áður en ég kom. Ég gat ekki vitað
að þetta voru slæm kaup fyrr en ég var mættur á
staðinn og fellur kannski meira undir óheppni.“
Hvernig voru aðstæður? „Kakó! Ekkert hægt
að veiða. Áin var samt lamin í klessu en
það þýddi ekkert. En það má alltaf reyna,“
segir Eggert Skúlason fréttastjóri en eins og
menn vita er hann mikill veiðiáhuga-
maður og hefur á undanförnum
árum gert marga sjónvarpsþætti
um stangveiði.
En Eggert hefur fleiri áhugamál en
að veiða á stöng og þeirra helst er
knattspyrna. Bestu kaup Eggerts
koma þar við sögu. „Bestu kaup
sem ég hef gert var 29 tommu
sjónvarp rétt fyrir heimsmeist-
arakeppnina í fótbolta árið 2002. Ég átti lítið 20
tommu sjónvarp en fjárfesti í þessu sem mér
fannst risaskjár og það var það gott að ég náði að
horfa á leik að morgni. Svo fór ég út og þóttist
vera að slá og gat horft á leik tvö inn um
gluggann og fékk svo að horfa á leik þrjú
um kvöldið, þannig að allir voru sáttir.
Þetta eru bestu kaup sem ég hef gert,
án alls efa.“
Eggert horfði á alla leikina í heims-
meistarakeppninni árið 2002 sem
er persónulegt met, en hann stefn-
ir á að slá það í sumar með því
að horfa á endursýningarnar líka.
Draumur hans er að komast út og
sjá einn leik með eigin augum en
honum finnst það ólíklegt. Hann
efast um að hægt sé að fá miða
núna.
NEYTANDINN: EGGERT SKÚLASON FRÉTTASTJÓRI
29 tommu risaskjár eru bestu kaupin
■ Gyða Árnadóttir,
dagmóðir á Akureyri,
er ráðagóð húsmóðir
og öfugt við marga er
hún órög við að reyna
ný ráð. Ef allt um
þrýtur hringir hún í
móður sína og eys úr
viskubrunni hennar.
Gyða segir að mamma hennar hafi
bent henni á að setja slettu af kóki út í
sósuna ef ekki væri til rjómi í ísskápn-
um. „Með þeim hætti verður sósan
léttari, án þess að kókbragðið finnist í
sósunni. Ef kókið er ekki búið er grá-
upplagt að hella afganginum í salernið
og láta það vinna á óhreinindunum,“
segir Gyða.
GÓÐ HÚSRÁÐ
KÓK Í SÓSUNA EF EKKI ER
TIL RJÓMI Í ÍSSKÁPNUM
GYÐA ÁRNA-
DÓTTIR
Nýja bílastæðahúsið við Laugaveg 86 til 94 hefur hlotið nafnið
Stjörnuport. Samkvæmt tilkynningu frá borgaryfirvöldum hefur nýting
hússins verið góð frá því það opnaði í nóvember síðastliðnum. Gjald
hefur ekki verið tekið fyrir stæðin til þessa en verðskrá hefur nú verið
ákveðin. Í skammtímastæði kostar fyrsti klukkutíminn 80 krónur en
síðan 10 krónur fyrir hverjar byrjaðar 12 mínútur. Langtímastæði verða
leigð í neðsta kjallaranum og kosta þau 5.600 krónur á mánuði.
■ Verslun og þjónusta
Ný gjaldskrá Stjörnuports
Útgjöldin
Verð á einu kílói af frystri rækju. Miðað við verðlag á öllu
landinu í febrúar hvers árs.
Heimild: Hagstofa Íslands
2003 2005 2006
75
3
kr
.
73
7
kr
.
70
3
kr
.
90
2
kr
.
2004
Verslunin kvk opnar á Laugavegi 27 í dag. Í versluninni verða seld föt
eftir íslensku fatahönnuðina Kolbrúnu Ýr Gunnarsdóttur og Írisi Egg-
ertsdóttur, en þær eiga verslunina. Auk þess að selja föt verður skart
selt í versluninni. Eins og nafn verslunarinnar gefur til kynna verður
eingöngu seld tískuvara fyrir konur í búðinni. Í framtíðinni stefna þær
Kolbrún Ýr og Íris að því að selja föt fyrir karlmenn í versluninni.
■ Verslun og þjónusta
Ný tískuverslun á Laugavegi
Miði á almenna sýningu í Borgarleikhúsinu er dýrastur samanborið við Þjóðleikhúsið
og Leikfélag Akureyrar. Í Borgarleikhúsinu kostar miðinn 2.900 krónur, hjá Þjóðleik-
húsinu 2.700 krónur og 2.600 hjá Leikfélagi Akureyrar.
Mikill fjöldi tilboða er í boði hjá öllum leikhúsunum. Sérstakt verð er á miðum fyrir
hópa, öryrkja og aldraða og svo börn.
Verð á söngleiki og það sem er skilgreint sem stórsýningar er hærra en miðar á
almennar sýningar hjá öllum leikfélögunum. Borgarleikhúsið býður slíkar
sýningar á 3.600 krónur, Þjóðleikhúsið á um 3.000 krónur eftir sýningum
og Leikfélag Akureyrar á 3.500 krónur.
Þjóðleikhúsið býður upp á áskriftarkort þar sem fjórar
sýningar eru á 6.500 krónur. Fimm sýningar á Stóra sviðinu
eru á 10.500 krónur og sex sýningar á minni sviðun-
um kosta 10.500. Leikfélag Akureyrar býður upp á
svokallað áskriftarkort sem veitir fjölbreyttan afslátt
í samstarfi við ýmis fyrirtæki og önnur leikhús.
Tekið skal fram að þessi samanburður tekur
ekki tillit til einstakra þátta verðmyndunar eða eðli
sýninga.
■ Hvað kostar... í leikhús
Verð misjafnt eftir eðli sýninga
Tollar verða felldir niður
á tómötum og gúrkum
samkvæmt samningi um
tvíhliðaviðskipti með land-
búnaðarvörur milli Íslands
og Evrópusambandsins sem
var undirritaður á dögunum.
Þórhallur Bjarnason, formaður
Sambands garðyrkjubænda, gerir
ekki ráð fyrir að þetta muni hafa
mikil áhrif á verð á tómötum og
gúrkum hér á landi þar sem þessar
heimildir hafi ekki verið mikið not-
aðar. Árið 2002 gerðu stjórnvöld
aðlögunarsamning við garðyrkju-
bændur um að fella niður rauntolla
á tómata, gúrkur og paprikur en
heimildirnar voru enn til staðar í
lögunum.
Þessi nýi samningur er í skoðun
hjá Sambandi garðyrkjubænda
núna varðandi áhrif á greinina hér
á landi. Hann telur að samnings-
staða garðyrkjubænda muni að
vissu leyti veikjast við afnám þess-
ara tolla.
Þórhallur segir að það megi búast
við meiri samkeppni þegar þessar
heimildir séu farnar og garðyrkju-
bændur muni þurfa að kljást við
aukinn innflutning. Einnig séu við-
ræður í gangi við Alþjóðaviðskipta-
stofnunina sem sömuleiðis miða að
afnámi tolla og munu stuðla að aukn-
ingu í innflutningi á grænmeti.
Tækifæri skapast fyrir íslenska
garðyrkjubændur í útflutningi á
tómötum og gúrkum að mati Þór-
halls sem segir þessa tolla hafa
haldið aftur af garðyrkjubændum
sem hafi hugað á útflutning gegn-
um tíðina. Í fréttatilkynningu frá
landbúnaðar- og utanríkisráðuneyt-
unum um þennan samning kemur
fram að erlendir fjárfestar hafi
sýnt sóknartækifærum fyrir
útflutning á tómötum og agúrkum
áhuga en forsenda fyrir þeim við-
skiptum hafi verið að tollar falli
niður á markaði Evrópusambands-
ins.
Samkvæmt könnun Neytenda-
stofu á verðþróun á grænmeti sem
birtist núna í lok janúar hefur verð
á íslenskum tómötum lækkað um
sex prósent og innfluttum tómötum
um 15 prósent frá janúar 2005 til
janúar 2006. Íslenskar agúrkur
hafa hækkað um eitt prósent á
sama tímabili en ekki reyndist unnt
að mæla verðmun á innfluttum
agúrkum vegna lítils framboðs.
- sdg
GRÆNMETI OG ÁVEXTIR Formaður Sambands garðyrkjubænda telur að niðurfelling tolla muni ekki hafa mikil áhrif á verð á tómötum og
agúrkum hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Tollar verða felldir niður
af tómötum og agúrkum