Fréttablaðið - 02.03.2006, Page 28
2. mars 2006 FIMMTUDAGUR28
Hversu svalt væri að geta lokið
gráðu í bókmenntafræði frá
Háskóla Íslands OG háskólanum í
Köln? Hversu feitt væri að geta
útskrifast úr verkfræði frá háskól-
anum í Reykjavík OG háskólanum
í Kraká? Hversu frábært væri að
geta valið sér hvaða háskóla sem
er í Evrópu til þess að stunda nám
við, án þess að hafa áhyggjur af
því að námið sé metið að fullu
þegar maður snýr aftur heim; án
þess að hafa áhyggjur af því að
námið sé lánshæft; án þess að hafa
áhyggjur af því að gráðan manns
gengisfalli?
Svarið er: Mjög svalt, mjög
feitt, mjög frábært.
Bologna-ferlið miðar að því að
Evrópa verði eitt menntunarsvæði
árið 2010. Í „einu menntunar-
svæði“ felst að nemendur geti
valið sér skóla í hvaða landi sem
er innan Evrópu á sama hátt og
þeir myndu velja sér skóla í sínu
heimalandi. Menntamálaráðherr-
ar þeirra landa sem eru aðilar að
ferlinu hafa samþykkt að uppfylla
tiltekin skilyrði til þess að þetta
göfuga markmið geti orðið að
veruleika.
Í fyrsta lagi er mikilvægt að
evrópskir háskólar hafi sambæri-
legt prófgráðukerfi. Tekin hefur
verið ákvörðun um að þriggja ára
grunnnám og tveggja ára meist-
aranám að undangengnu doktors-
námi skuli notað á samevrópska
menntunarsvæðinu. Slík uppbygg-
ing á prófgráðu tíðkast á flestum
námsleiðum hér á landi.
Einnig er lögð áhersla á skil-
virkt innra eftirlit og mat á öllu
námi til að stuðla að sem mestu
gagnsæi milli skóla og landa.
Mikið er lagt upp úr að námsmark-
mið séu skýrt fram sett, það er að
sú þekking, geta og hæfni sem
nemandi á að búa yfir að námi
loknu sé tilgreind. Þetta á bæði við
um nám á tilteknum fræðasviðum
og einstökum námskeiðum.
Samræmt einingakerfi er lyk-
illinn að því að mögulegt sé að
meta nám óhindrað á milli skóla.
Bologna-ferlið mun styðjast við
svonefnda ECTS-einingu, en sam-
kvæmt ECTS-kerfinu er fullt nám
á einu námsmisseri 60 einingar.
Kerfið byggist á því hversu mikið
vinnuframlag er á bak við hverja
einingu. Vinnuframlagið er síðan
skilgreint sem hlutfall af náms-
framvindu eins misseris.
Í Bologna-ferlinu er ekki ein-
göngu hvatt til nemendaskipta,
heldur þykja kennaraskipti ekki
síður mikilvæg. Það er því ljóst að
ferlið mun koma til með að hafa
gríðarlegar afleiðingar fyrir
íslenskt (og evrópskt) háskóla-
samfélag og þær milljónir manna
sem nema og starfa í því samfé-
lagi.
Ofangreindir þættir eru hins
vegar aðeins brot af því sem þarf
að koma til svo að samevrópska
háskólasvæðið verði raunveru-
legt. Á Íslandi hefur ekki verið
mikil umræða um Bologna-ferlið
og stöðu Íslands í því samhengi
hingað til. Slík umræða er þó mjög
mikilvæg, sérstaklega í ljósi þess
metnaðarfulla markmiðs sem
rektor Háskóla Íslands hefur sett
sér um að HÍ verði einn af 100
bestu háskólum í heimi.
Það stendur hins vegar til bóta,
og þess vegna standa Stúdentaráð
Háskóla Íslands og Bandalag
íslenskra námsmanna í samein-
ingu að ráðstefnu um Bologna-
ferlið og innleiðingu þess á Íslandi.
Þar munu fulltrúar frá mennta-
málaráðuneytinu, Háskóla Íslands,
sérskólanna á háskólastigi, stúd-
enta hérlendis og stúdenta erlend-
is kynna sín sjónarmið. Ráðstefn-
an fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur
á morgun, föstudag, og hefst kl.
14.00. Aðgangur er öllum opinn.
Höfundur er varaformaður
SHÍ.
Bologna er ekki bara borg
UMRÆÐAN
BOLOGNA-FERLIÐ
ATLI BOLLASON
Bologna-ferlið miðar að því að
Evrópa verði eitt menntunar-
svæði árið 2010. Í „einu mennt-
unarsvæði“ felst að nemendur
geti valið sér skóla í hvaða
landi sem er innan Evrópu á
sama hátt og þeir myndu velja
sér skóla í sínu heimalandi.
Á síðastliðnum mánuðum hafa
gengið nokkrir dómar vegna lík-
amstjóna sem fólk hefur orðið
fyrir við að renna í hálku við
mannvirki. Þetta eru tveir hæsta-
réttardómar frá nóvember síðast-
liðnum. Annars vegar var um að
ræða slys við Kaffi Nauthól og
hins vegar slys við Fjölbrautaskól-
ann í Breiðholti. Einnig gekk
dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur
í janúar síðastliðnum er varðaði
slys við verslunina BT í Skeifunni.
Í öllum þessum málum var fallist
á bótaskyldu umráðamanna við-
komandi fasteigna. Athyglisvert
er að í báðum hæstaréttardómun-
um var niðurstöðu héraðsdóms
snúið við.
Við skoðun á þessum tveimur
hæstaréttardómum vaknar sú
spurning hvort réttarframkvæmd
í þessum málum sé eitthvað að
breytast. Í fyrri dómnum voru
málavextir þeir að R datt á tré-
palli við veitingastaðinn Kaffi
Nauthól í Reykjavík. Þar sem full-
nægjandi varúðarráðstafanir til
að eyða hálku voru ekki gerðar
var fallist á bótaskyldu að hluta.
Telja verður að niðurstaða Hæsta-
réttar í þessu máli sé í samræmi
við dómaframkvæmd undanfarin
ár, það er, sú krafa er gerð til
verslunareigenda og annarra þjón-
ustufyrirtækja þar sem ótilgreind-
ur hópur fólks sækir, að sinna
hæfilegu eftirliti með öryggi á
aðkomuleiðum og grípa til aðgerða
til að tryggja það.
Hefur hér orðið skýr stefnu-
breyting frá þeirri dómvenju sem
fylgt var fram til 1995 og er niður-
staðan í fyllilegu samræmi við
dóma réttarins frá 1995 (Verslun-
in Víðir, Austurstræti 17) og 1996
(Blómaval). Sömu línu er fylgt í
dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
frá því í janúar, þar sem S rann til
í hálku við inngöngudyr verslun-
arinnar BT, Skeifunni. Ekki var
talið að nægilegt eftirlit hefði
verið með aðstæðum við inngang-
inn, þrátt fyrir að veðrið hafði á
þessum tíma verið umhleypinga-
samt og því talsverð hætta á að
hálka myndaðist. Rétt er þó að
taka fram að þegar þessar línur
eru ritaðar liggur ekki fyrir hvort
þessum dómi verði áfrýjað.
Á hinn bóginn má færa fram
rök fyrir því að dómur Hæstarétt-
ar vegna slyssins við Fjölbrautar-
skólann í Breiðholti feli í sér
stefnubreytingu hjá réttinum. Þar
voru málsatvik þau að R varð fyrir
slysi við FB, þegar hún var á leið
frá skólabyggingunni eftir um 10
metra löngum göngustíg sem ligg-
ur út á bifreiðastæði framan við
skólann. Hafði hún sótt námskeið
fyrir læknaritara í skólanum um
kvöldið. Þótti upplýst í málinu að
hún hafði runnið á svelli neðst á
gangstígnum. Í göngustígnum var
hitalögn sem þó náði ekki alla leið
niður að gangbrautinni við bíla-
stæðið. Var það metið starfsmönn-
um skólans til gáleysis, að hafa
ekki gert frekari ráðstafanir til að
koma í veg fyrir hættu á að fólk
slasaðist á þessum tiltekna stað
við skólann. Eins og áður segir má
færa fram rök fyrir því að þarna
sé um stefnubreytingu að ræða
hjá Hæstarétti og verður ekki
betur séð en að þetta sé í fyrsta
sinn sem rétturinn fellir bóta-
skyldu á hið opinbera vegna slyss
sem sem rekja má til hálku og/eða
bleytu utanhúss við byggingar á
þess vegum. Fram að þessum
dómi höfðu alls ekki verið gerðar
miklar kröfur til þessara aðila
með að gera ráðstafanir er hindr-
að gætu slys vegna hálku eða
bleytu.
Má í þessu sambandi einkum
benda á dóm Hæstaréttar frá 1999
er varðaði slys við lögreglustöðina
í Reykjavík. Þar voru atvik þau að
S rann á leið sinni niður tröppur
við dyr lögreglustöðvarinnar í
Reykjavík og slasaðist. Talsverð-
ur snjór var í tröppunum sem voru
auk þess flísalagðar og því mjög
hálar í rigningu þegar snjór lá yfir
þeim líkt og umræddan dag.
Hæstiréttur sýknaði ísl. ríkið
meðal annars með þeim rökstuðn-
ingi að S hafi borið að sýna sér-
staka aðgæslu, einkum með því að
halda sér í handriðið og þræða
brúnir. Einnig hafði S skömmu
áður gengið upp tröppurnar og
hlaut því að hafa verið ljóst hvern-
ig aðstæður voru. Einnig má hér
nefna dóma Hæstaréttar frá 1986
(MH-dómurinn), frá 2003 (varnar-
liðið í Keflavík) og frá 2004 (stræt-
isvagnabílstjórinn).
Þegar FB-dómurinn frá nóvem-
ber síðastliðnum er borinn saman
við þessa dóma má draga þá álykt-
un að Hæstiréttur hefur tekið U-
beygju í afstöðu sinni til athafna-
skyldu aðila á vegum hins opinbera
vegna bygginga á þess vegum. Má
einnig færa fram rök fyrir því að
þær kröfur sem Hæstiréttur gerir
í þessum dómi til umráðamanna
fasteignarinnar að hlutast til um
ráðstafanir, til að hindra slys
vegna hálku, séu sambærilegar og
rétturinn hefur gert til umráða-
manna húseigna þar sem verslun-
arrekstur eða annars konar þjón-
ustustarfsemi fer fram. Verður
fróðlegt að fylgjast með því hvort
Hæstiréttur haldi sig hér eftir við
það að beita sakarreglunni með
ströngu mati vegna hálku- og
bleytuslysa við byggingar á vegum
hins opinbera.
Höfundur er hæstaréttarlög-
maður á Acta lögmannsstofu.
Slys vegna hálku eða bleytu
utanhúss
UMRÆÐAN
HÁLKUSLYS
SIGURÐUR B. HALLDÓRSSON
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI