Fréttablaðið - 02.03.2006, Side 30
[ ]
Prada og D&G voru eins og svart
og hvítt á tískuvikunni í Mílanó.
Prada lagði áherslu á sjálfstæði
kvenna og þar sást lítið í bert hold.
Fyrirsæturnar virtust ákveðnar,
alvarlegar og tilbúnar að takast á
við veruleikann. ,,Ég er þreytt á
því að vera sæt. Við konur eigum
að vera sterkar og hætta að reyna
að hrífa alla,“ sagði Miuccia Prada
eftir sýninguna. Fötin voru dökk,
og þau virtust þægileg og hlý. Ekki
sást mikið í bert hold og fyrirsæt-
urnar báru skjalatöskur og glósu-
bækur undir arminum.
Það leit út fyrir að D&G hefði
fengið innblástur af Vetrarólymp-
íuleikunum í Tórínó en sviðinu
hafði verið breytt í vetrarland
með gervisnjó og öllu tilheyrandi.
Fyrirsæturnar hjá D&G virtust
mun tilbúnari í skíðaferð en lær-
dóm eða vinnu, íklæddar hvítum
prjónaflíkum frá toppi til táar. Þar
má nefna töskur, sokkabuxur, álfa-
húfur og lambhúshettur og marg-
ar hverjar voru í þykkum dúsk-
stígvélum.
mariathora@frettabladid.is
Veski eru flestum konum mikilvæg. Það er skemmtilegra ef veskið
passar við fötin og skóna og því getur verið gott að eiga nokkur til
skiptanna.
Eins og svart og hvítt
Sýningar Prada og D&G voru mjög ólíkar.
Barnaleg
tilboð
0
%
2
afsláttur í
Barnadeild
Framkallaðu bros á
barninu þínu og fataðu
það upp fyrir vorið.
Nýttu þér 20% afsláttinn
sem við bjóðum í
barnadeild Debenhams
og tryggðu þér flottustu
barnamerkin á
markaðnum í stærðum
fyrir 0-14 ára;
jasper conran,
matthew williamson,
john rocha, esprit og
st. george by duffer
-á mun betra verði.
á Kauphlaupi
Opið til 21:00
alla fimmtudaga
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
3
15
99
0
3/
20
06