Fréttablaðið - 02.03.2006, Side 33
FIMMTUDAGUR 2. mars 2006 5
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
London, Mílanó, París
Nú er farið að síga á seinni hluta tískuvikna sem hafa staðið yfir í
tískuborgunum en París rekur lestina með tískuviku sem hófst á
sunnudag og stendur fram til 5. mars. Þar verða sýndar helstu tísku-
línur í kvenfatnaði sem er fjöldaframleiddur eða tilbúinn til notkunar
(prêt-a-porter), fyrir veturinn 2006-7. París hefur þá sérstöðu að hafa
sérstaka tískuviku fyrir dömur og aðra fyrir herratísku og var herra-
tískuvikan í janúar. Í Mílanó, svo dæmi sé tekið, er kven- og karl-
atískan sýnd á sama tímabili, en Ítalir segja Mílanó löngu vera komna
fram úr París hvað tísku varðar. Víst er að það eru mörg tískuhús í
Mílanó, sem er vagga ítalskrar tísku, þar sem finna má m.a. aðal-
stöðvar Armani, Dolce og Gabbana og þar sýnir Gucci þó í eigu
Frakka sé (Gucci-group) enda í upphafi ítalskt fyrirtæki.
Bæði dömu- og herrasýning Dolce og Gabbana var undir áhrifum frá
Napóleóni Bónaparte með gylltum útsaumi og fjöðrum við hæfi kon-
ungborinna, nálgast hátískuna þar sem allt er gert í höndunum. Í
herratískunni er meiri fágun hjá Dolce og Gabbana en áður og minna
um liti. Aðalliturinn er grátt og gallabuxur á að nota með sléttflau-
elsjökkum næsta vetur. Herrasýningarnar á Ítalíu áttu flestar það
sammerkt að svart var liturinn með örlitlu gráu ívafi. Hvort sem litið
er til Gucci eða Jil Sander sem Prada-group var reyndar að selja í
hendur Englendinga. (Í þessum heimi heitir allt „group“ eins og
heima). Konur hafa að vanda meira frelsi þegar tískan er annars
vegar og hjá þeim má finna ýmsa liti. Armani „sér lífið í bleiku“ líkt
og Edit Piaf söng undir á sýningunni. Hinn nýi hönnuður Gucci leitar
í fjólublátt og pallíettur.
Nú er bara að sjá hvort París standi undir nafni sem háborg tískunn-
ar en þar verður nokkuð um breytingar í ár. Tískuhús Pierre Balmain
sýnir að nýju með nýjum hönnuði, Christophe Decarnin, en tískuhús-
ið hefur ekki sýnt síðan 2004. Jean-Charles de Castalbajac er sömu-
leiðis með á ný og Miuccia Prada, sem í síðustu viku kynnti bæði
kven- og karltísku Prada í Mílanó, tekur upp á því hafa MiuMiu tísku-
sýningu í París en MiuMiu er ódýrari tískulína og höfðar til yngri
kaupenda en Prada. Svo rekur hver sýningin aðra.
Ég talaði í síðustu viku um flottar nærbuxur frá tískuhúsi Johns
Galliano sem hann hefur hannað fyrir næsta vetur. Þær virtust líka
flottar á sýningu hans í júlí síðastliðnum fyrir sumarið. Nú eru þess-
ar sumarnærur komnar í búð Gallianos á St. Honoré-götu og eru
hreint ekki eins flottar, einhverra hluta vegna, og þær voru á fyrir-
sætunum og kosta litlar fimmtíu evrur. bergthor.bjarnason@
Nýjar
ítalskar
vorvörur
Sængurgjafir
Afmælisgjafir
Tækifærisgjafir
Ný skósending
Laugaveg 53 • S: 552 3737
Fegurðina fær Elle Macpher-
son úr genunum samkvæmt
nýlegu viðtali.
Ofurfyrirsætan Elle Macpherson
hefur loksins gefið það upp hver
sé lykillinn að baki fegurð hennar.
Fyrir þá sem vonuðust eftir
einhverjum leynibrögðum þá
verða þeir fyrir vonbrigðum.
Macpherson segir nefnilega að
það sé ekki góðu mataræði, lýta-
aðgerðum, líkamsrækt eða rán-
dýrum snyrtivörum að þakka að
hún sé jafn glæsileg og raun ber
vitni.
Elle þakkar nefnilega mömmu
sinni útlit sitt. „Þetta er allt í
gegnunum, ég hugsa ekki of mikið
um þetta,“ sagði hún í nýlegu við-
tal og auðvitað verðum við að trúa
því. Elle Macpherson er alltaf jafn glæsileg,
þökk sé móður hennar.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Fegurðin í genunum
Smáralind
Kringlunni
Debenhams
Full búð
af nýjum
vörum
NFS ER Á VISIR.IS
Bein útsending á VefTV og upptökur þegar þér hentar