Fréttablaðið - 02.03.2006, Side 42
■■■■ { heimilið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Vinsælustu blöndunartækin fyrir
baðherbergið í dag eru á vissan
hátt framúrstefnuleg og mætast
nú tvennar öfgar. Annars vegar
er mjúka línan þar sem kranar
eru bogadregnir og sturtuhausar
kringlóttir og hins vegar ferköntuð
lína sem er ögn voldugri. Ferkantaða
línan passar vel inn á baðherbergi
þar sem stílhrein hönnun er höfð í
fyrirrúmi en mýkri línan gefur meiri
hlýju og annars konar yfirbragð á
heildarútliti baðherbergisins.
Þegar kemur að vali á blöndun-
artækjum er þolinmæðin mikilvæg-
ust. Úrvalið er gríðarlegt og fyrstu
skrefin ættu að vera að safna að sér
bæklingum og skoða vel þær vörur
sem eru í boði þar sem heildarútlit
innréttingar getur auðveldlega farið
í vaskinn ef blöndunartækin stinga
í stúf.
6
Baðheimar. Þetta er sannkallaður
sturtuhaus. Þessi er frá Bossini og er 30
sentimetrar að þvermáli og óhætt að segja
að menn þurfi að standa sterkum fótum
undir þeirri bunu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Egill Árnason. Oval-línan frá Gessi er stíl-
hrein og glæsileg. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Egill Árnason. Gessi, Oval-línan. Í þessari línu fást blöndunartæki í ýmsum stærðum og
gerðum, hvort sem er fyrir frístandandi vaska eða innfellda. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Betri buna ef
tækin eru góð
Úrvalið er mikið af blöndunartækjunum núna. Margir kjósa mjúkar og
ávalar línur en kubbslaga blöndunartæki sækja sífellt í sig veðrið.
Baðheimar. Odisea Kuatro-línan frá
Ramon Soler. Hausinn má einnig fá inn-
felldan í vegg ásamt kubbslaga blöndun-
artækjum sem þá má raða upp að vild á
sturtuveggnum.
Baðheimar. Odisea Kuatro-línan frá Ramon
Soler.
Baðheimar. Odisea Kuatro-línan frá Ramon
Soler. Blöndunartæki fyrir vask. Í þessari
línu má einnig fá krana með framparti sem
hægt er að snúa um fimmtán gráður.
Tengi. Glæsilegur sturtuhaus frá Vola.
Blöndunartækin eru öll innfelld, sem leyfir
flísunum að njóta sín betur og baðherberg-
ið verður stílhreinna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Með vorið á næsta leiti er tilvalið
að leyfa heimilinu að springa út,
koma inn með bjarta liti og mynd-
ir af blómum og trjágróðri. Skærir
litir eru flottir í leirtaui og púðum
á meðan blómavasar eru flottir í
jarðarlitum og grænum tónum. Til-
valið er að fara út með myndavél-
ina, mynda haustlauka sem eru að
springa út og trjágreinar, láta prenta
myndirnar á borðdúka, gardínur
eða púðaver.
Einnig er hægt að útbúa skugga-
myndir af ljósmyndunum, varpa
þeim á vegg með myndvarpa og
mála á veggina. Blóm og mynstur
eru mjög heit um þessar mundir í
húsbúnaði og því tilvalið að koma
þeim að, nánast hvar sem er. Glans-
myndir af blómum er hægt að líma
á gamlar kommóður eða borð og
lakka yfir með glæru lakki.
Bjóddu móður náttúru inn
Leyfðu vorinu að springa út innandyra.
Fallegur trjágróður. Veggfóður frá Cole and
Son í London. Sjá www.cole-and-son.com
Silfurlitað og glansandi veggfóður með
blómum. Sjá www.cole-and-son.com
Blómamynstur frá Cole and Son.
Sniðugt er að nota ljósmyndir af trjám til að prenta á púða eða dúka. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM