Fréttablaðið - 02.03.2006, Side 57
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { heimilið } ■■■■
PGV ehf. ı Bæjarhrauni 6 ı 220 Hafnafjörður ı Sími: 564 6080 ı Fax: 564 6081 ı www.pgv.is
PGV ehf. sérhæfir sig í smíði glugga,
hurða, sólstofa og svalalokanna úr
PVC-u
Öllum framleiðsluvörum PGV fylgir
10 ára ábyrgð
Gluggarnir eru viðhaldsfríir og á
sambærilegum verðum og gluggar
sem stöðugt þarfnast viðhalds
GLUGGI TIL FRAMTÍÐAR …
• ENGIN MÁLNINGAVINNA
• HVORKI FÚI NÉ RYÐ
• FRÁBÆR HITA OG HLJÓÐEINANGRUN
• FALLEGT ÚTLIT
• MARGIR OPNUNARMÖGULEIKAR
• ÖRUGG VIND- OG VATNSÞÉTTING
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Þegar kemur að húsgögnum er fólk
oftast að leita eftir fallegum mublum
sem einnig hafa hagnýtt notagildi
umfram það sem þeim er ætlað.
Í versluninni Mirale má meðal
annars finna glæsilegt borðstofuborð
sem er opnað í miðju og er auðvelt
að breikka. Borðið rúmar fjóra í sæti
og hægt er fá borðið úr ljósri og
dökkri eik. Í Mirale er einnig til sölu
Philippe Starck-sjónvarpsskápur
frá Cassina sem er sérlega fallegur
í útliti. Skápurinn hefur einnig
þann skemmtilega eiginleika að
skápahurðirnar eru úr sérstöku efni
sem gerir fjarstýringum kleift að ná
í gegnum þær. Því er hægt að ganga
frá tækjunum inn í skápinn og ekki
er nauðsynlegt að draga hurðirnar
frá þegar notast er við þau.
Innlit í Mirale
Verslunin Mirale er með margar fallegar vörur til sölu
sem eru sérstaklega hagnýtar.
Mirale. Hvítlakkaður Philippe Starck-sjónvarpsskápur frá Cassina. Skáparnir eru opnanlegir
og úr efni sem fjarstýringar draga í gegnum. Verð krónur 399 þúsund. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Mirale. Stækkanlegt Cassina-borðstofuborð, rúmar fjóra í sæti. Borðið er opnað í miðju og
stækkað úr 2,25x75 í 2,25x1,50. Verð krónur 317 þúsund. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
21
Bourgie lampinn er hannaður af
Ferruccio Laviani, sem er þekktur
fyrir að notast við djörf form og
tilvísanir í sígilda hluti í hönnun
sinni. Bourgie-lampann hannaði
Laviani árið 2003 og er gott dæmi
um það. Útlínur lampans eru í
barokkstíl en efniviðurinn er úr
plexigleri, einu vinsælasta efni 21.
aldarinnar. Þó lampinn sé ungur
að árum má segja að hann sé
framtíðarklassík og hafi stimplað sig
inn sem hönnun sem muni standast
tímans tönn. Hægt er að stilla
hæðina á lampanum og nota hann
sem borðlampa eða standlampa.
Er hann með innbyggðan
snertidimmer. Upplýstur gefur
hann af sér sérkennilega birtu og
er á mörkum þess að vera skúlptúr.
Hann er framleiddur í glæru og
svörtu. Lampinn fæst í Epal.
Sígild hönnun
GLÆSILEGT ÚRVAL AF VEGGFÓÐRUM
OPNUM EFTIR BREYTINGAR
FALLEGRI VERSLUN
GOTT ÚRVAL AF FALLEGUM SÓFUM
SPENNANDI OPNUNARTILBOÐ
Laugavegi 95 • Sími 552 1844