Fréttablaðið - 02.03.2006, Page 72

Fréttablaðið - 02.03.2006, Page 72
 2. mars 2006 FIMMTUDAGUR32 timamot@frettabladid.is Á þessum degi árið 1927 varð íþróttamaðurinn skrautlegi, Babe Ruth, hæst launaði hafnabolta- leikmaður í heimi. Metupphæðin hljóðaði upp á 70.000 dollara á ári og var það lið hans, New York Yankees, sem þurfti að reiða fram launin. George Herman „Babe“ Ruth var fæddur árið 1895 og var frægasti hafnaboltamaður síns tíma. Metin sem hann setti í hafnaboltaheiminum standa mörg enn þann dag í dag. Sérgrein Ruths voru svokölluð heimhlaup (home run) en hann var sérlega leikinn við að slá hafnaboltann út fyrir endimörk leikvallarins. Frægð hans og fjárráð leyfðu Ruth að njóta til fullnustu að vera maður lystisemdanna sem Bandaríki þess tíma buðu upp á. Hann lagði himinhá laun sín ekki til hliðar heldur var duglegur að eyða í allt sem hugur hans girntist. Að margra mati varð Babe Ruth holdgervingur neyslu- hyggjunnar sem var að grípa um sig í Bandaríkjum þess tíma og virtist óseðjandi á mat, kynlíf og yfir höfuð allt það sem hægt var að kaupa. Lífsstíll hans tók sinn toll og Babe Ruth lést 16. ágúst árið 1948, einungis fimmtíu og þriggja ára að aldri, eftir baráttu við krabbamein. ÞETTA GERÐIST > 2. MARS 1927 Babe Ruth fær fúlgur fjár MERKISATBURÐIR 1836 Texas lýsir yfir sjálfstæði frá Mexíkó. 1923 Tímaritið Time er gefið út í fyrsta sinn. 1939 Nýr páfi er kosinn sem velur sér nafnið Pius XII. 1956 Bandarísk herflutningaflug- vél með sautján mönnum hrapar í sjóinn djúpt út af Reykjanesi. Enginn kemst lífs af. 1957 Heilsuverndarstöðin í Reykjavík er vígð. Bygging hennar tók sjö ár. 1982 Bíóhöllin í Reykjavík hefur starfsemi og er stærsta kvikmyndahús á Íslandi. 1999 Áburðarverksmiðja ríkisins er seld Haraldi Haraldssyni. DUSTY SPRINGFIELD (1939-1999) LÉST ÞENNAN DAG „Það er yndislegt að vera vinsæll, en fáviska að halda að það muni endast.“ Dusty Springfield var bresk söngkona og þekkt fyrir að vera ein besta hvíta soul-söngkonan. „Ég ætlaði að hafa opið hús í kvöld og bjóða fullt af fólki en það endaði á því að flestir voru uppteknir svo ég hætti snarlega við,“ segir Carlos Ari Ferrer sóknarprestur sem er 45 ára í dag. Carlos er þó langt í frá svekktur. „Þegar maður er kominn á minn aldur þá hættir maður að svekkja sig á svona hlutum,“ segir Carlos glaðlega sem hafði ætlað að skrópa á héraðsfund í kvöld vegna afmælisins. „Ætli ég mæti þá ekki bara þangað með míníkökur,“ segir hann glettinn. Carlos er nú að ljúka í annað sinn námskeiði sem hann bjó til fyrir fólk sem styður aðra eftir áföll. Námskeið- ið ber nafnið Áfall og samfélag og hefur að sögn Carlosar mælst vel fyrir. „Ég hef verið að bjóða saman skóla- fólki og fólki úr heilbrigðis- og félags- málageiranum til að ræða hvað gerist þegar stór áföll dynja yfir. Það hefur skilað góðum umræðum og hugmynd- um um hvernig við getum gert áfalla- hjálparnetið þéttriðnara,“ segir Carlos sem hefur verið viðloðandi þessi mál í mörg ár og meðal annars unnið að áfallaáætlunum fyrir Biskupsstofu. Carlos er sóknarprestur í Tjarna- prestakalli í Kjalarnessprófastsdæmi og ríkir yfir Kálfatjarnarkirkju í Vog- unum. „En síðan er ég kirkjulaus í Áslandi á Völlum,“ útskýrir Carlos sem notast við skólann og íþróttasal fyrir helgihald. „Það gengur bara ágæt- lega,“ segir hann glaðlega en bendir þó á að búið sé að gera ráð fyrir kirkju sem verði byggð þó síðar verði. Áhugamál Carlosar eru tónlist, kvikmyndir, bækur og síðast en alls ekki síst matur. „Ég er mikill matgogg- ur og allt sem viðkemur mat hvort heldur sem er að afla hans, búa hann til eða pæla í uppskriftum er mikið áhuga- mál hjá mér,“ segir Carlos sem gæddi sér á saltkjöti og baunum að Íslend- inga sið en segist samt ná litlu sambandi við þann forna mat. „Ég er meira fyrir súrkál og reykta svínaskanka ef út í það er farið,“ segir Carlos sem er hálf- bandarískur með ættir að rekja til Púertó Ríkó og á þýska móður. Hann flutti hingað til lands árið 1969 þegar móðir hans giftist Íslendingi og hefur verið hér síðan. Bækur eru Carlosi hugleiknar en þar sem hann er mikið á ferðinni eftir Reykjanesbrautinni hefur hann vanið sig á að hlaða niður hljóðbókum á net- inu til að hlusta á í bílnum. Um þessar mundir hlustar hann á bók eftir Desmond Tutu og segir hann Reykja- nesbrautina ansi drjúga til hlustunar. CARLOS ARI FERRER SÓKNARPRESTUR: ER 45 ÁRA Matgoggur og bókaormur MATGOGGUR, BÓKAORMUR OG SÖNGFUGL Carlos Ferrer sóknarprestur syngur með kórnum Vox Academica milli þess sem hann hlustar á bækur í bílnum og kennir á námskeiðum um áfallahjálp. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ANDLÁT Ragna Lísa Eyvindsdóttir (Góa), Borgarheiði 13v, Hveragerði, lést á sjúkrahúsi á Spáni laugardaginn 25. febrúar. Jón Jónasson tannlæknir, Suð- urhlíð 35, Reykjavík, lést á líkn- ardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 27. febrúar. Guðrún Jónsdóttir, Bakkaflöt 14, Garðabæ, lést af slysförum þriðjudaginn 28. febrúar. JARÐARFARIR 13.00 Tove Rigmor Guðmunds- son, Eyjabakka 1, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju. 15.00 Anna Steindórsdóttir Haarde, Aflagranda 40, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni. BABE RUTH Níu ljóðskáld úr grunnskól- um Reykjavíkur fengu viður- kenningu fyrir verk sín í til- efni af Vetrarhátíð í Reykjavík. Ljóð ungmennana voru valin úr hópi 200 ljóða sem send voru inn í ljóðasam- keppnina Dýr í norðri sem hátíðin efndi til ásamt Eddu útgáfu og Rithöfunda- sambands Íslands. Þetta er í annað sinn sem keppnin er haldin en Þátttökurétt hafa nemar í fimmtu bekkjum grunnskóla Reykjavíkur. Verðlaunahafarnir voru þau Birna Rós Gísladóttir, Emil Hilmuson og Hekla Geirdal Arnardóttir úr Borga- skóla, Björn Víkingur Þórðar- son, Viktor Freyr Ólafsson og Viktor Ásgeirsson úr Víkur- skóla, Selma Skúladóttir úr Foldaskóla, Páll Ársæll Haf- stað úr Vogaskóla og Andrea Björk Pétursdóttir úr Hlíða- skóla, en þau tóku á móti við- urkenningaskjali og bóka- verðlaunum fyrir frammistöðuna. Á sigurljóðunum má sjá að mikil fjölbreytni er í skáld- skap ungu kynslóðarinnar. ■ Ung ljóðskáld verðlaunuð FIMMTUBEKKINGAR Í REYKJAVÍK Tóku á móti verðlaunum fyrir skáldskap. AFMÆLI Viðar Víkingsson, kvikmyndagerðar- maður er 55 ára. Þorsteinn J. Vilhjálmsson, dag- skrárgerðarmaður er 42 ára. Ilmur María Stef- ánsdóttir, myndlist- arkona er 37 ára. Kolbrún Anna Björnsdóttir, leik- kona er 32 ára. Vetur Það er snjór, það er frost, það er vetur. Hreindýrin hlaupa eftir veginum og það koma spor í snjóinn. -Emil Hilmuson, Borgaskóla Selurinn Selurinn oft um sjóinn fer með svakalegum krafti og vippar sér upp á hin votu sker með vænan lax í kjafti. -Páll Ársæll Hafstað. Vogaskóla Í dag heldur Heiða Jóhanns- dóttir bókmenntafræðingur erindi um menningarlega mótun Reykjavíkur. Hún beinir sjónum sínum að ímynd borgarinnar sem villtrar næturlífsborgar sem hefur verið gegnum gangandi í markaðssetningu borgarinnar erlendis. Að mati Heiðu er miðpunktur orðræðunnar bein og óbein loforð um aðgang að „lauslát- um“ konum og ætlar hún að velta fyrir sér hvernig rót- gróin orðræða ferðamanns- ins, sem hverfist í kring um andstæður elds og íss, er yfirfærð á borgarlandslag- ið. Í fyrirlestrinum verður velt upp spurningum hvern- ig staðalímynd eins og þessi verður til, hvernig henni er viðhaldið og hvers konar átök verða um hana. Hann hefst klukkan 12.15 í Öskju, stofu N132 og er í boði Rann- sóknastofu í kvenna- og kynjafræðum. Næturlífsborgin Reykjavík Ósk Guðmundsdóttir læknamiðill lést í Svíþjóð 26. febrúar s.l. Jarðarförin auglýst síðar. Björgvin Kristjánsson Guðmundur Björgvinsson Andrea Elísdóttir Indriði Björgvinsson Trausti Björgvinsson Sigrún Ásgeirsdóttir Halldór Björgvinsson Jóna Elísdóttir 90 ára. Níræður er í dag Indriði Guðjónsson Vogatungu 3, Kópavogi. Eiginkona hans er Selma Friðgeirsdóttir og eru þau að heiman í dag. Afmæli

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.