Fréttablaðið - 02.03.2006, Page 78
2. mars 2006 FIMMTUDAGUR38
!
Dans hefur höfðað til
fremur afmarkaðs hóps eða
réttara sagt finnst mörgum
sem listdans sé þeim hulinn
heimur. Öðru hverju spretta
fram hópar sem vilja kynna
þessa list fyrir almenningi
án þess að hún glati þokka
sínum.
Þann 6.maí er væntanlegur hing-
að til lands dansflokkurinn James
Sewell Ballet og heldur hann sýn-
ingu í Austurbæ. Það er Event
sem hefur veg og vanda af komu
hópsins sem farið hefur sigurför
um heiminn á síðastliðnum
fimmtán árum. Að sögn Ísleifs B.
Þórhallssonar, hjá Event, hefur
fyrirtækið reynt að leita að atrið-
um sem eru öðruvísi. „Einhverj-
um hámenningarlegum atburð-
um sem líka eru skemmtilegir,“
segir Ísleifur en það var í gegn-
um samstarfsfélaga hans í Banda-
ríkjunum sem Event komst fyrst
í tæri við hópinn. „Við fluttum
inn Pilobolus sem mæltist mjög
vel fyrir hjá áhorfendum og
höfum því verið að leita að ein-
hverju svipuðu,“ segir Ísleifur.
„Kosturinn við að vera gestgjafi
á Íslandi er sá að allir vilja koma
hingað,“ bætir hann við.
James Sewell Ballet hefur
fengið mikið lof gagnrýnenda og
Ísleifur telur komu hópsins vera
hvalreka á fjörur listunnenda.
„Flokkurinn heldur fast í þá hefð
sína að fara ótroðnar slóðir, sýna
frumlega dansa sem storka
tæknilegum takmörkunum ball-
etsins,“ ústkýrir Ísleifur en bætir
við að flokkurinn leitist við að
skemmta og hreyfa við áhorfend-
um. „Þetta er mjög líklega eini
ballettflokkurinn sem getur stát-
að sig af því að áhorfendur bæði
gráta og hlæja á sömu sýning-
unni,“ segir Ísleifur.
Ballett hefur hingað til átt
mjög traustan en ef til vill lokað-
an aðdáendahóp en Sewell-ball-
ettinn hefur reynt að fá fleiri til
að skilja listformið. „Flokkurinn
hefur hlotið ótal alþjóðlegar við-
urkenningar fyrir mikilvægt og
frumlegt framlag til nútímaball-
etts og er mjög eftirsóttur til sýn-
inga um allan heim,“ segir Ísleif-
ur en ráðgert er að miðasala
hefjist um miðjan mars. -fgg
Framúrstefnulegur flokkur
BENJAMIN SKUGGI James Sewell Ballet hefur vakið mikla athygli fyrir nálgun sína á
nútímaballet og hlotið fjöldan allan af alþjóðlegum viðurkenningum.
Kl. 12.05
Ken Farø heldur fyrirlestur
á dönsku um samanburð á
orðatiltækjum í ólíkum málum á
vegum Stofnunar Vigdísar Finn-
bogadóttur í Lögbergi, stofu 102.
Um þessar mundir á Harmonikufélag Reykjavíkur
20 ára afmæli og efnir í tilefni þess til tónleika í
Salnum í Kópavogi.
Þar koma fram tveir margverðlaunaðir har-
monikuleikarar, Lars Karlsson frá Svíþjóð og Øivind
Farmen frá Noregi.
Þessir tveir glæsilegu listamenn flytja fjölbreytta
og spennandi tónlist úr öllum áttum. Báðir leika
þeir jöfnum höndum klassíska tónlist, djass og
dægurlög af ýmsu tagi. Heimsókn þeirra verður
án efa lyftistöng og menningarauki fyrir starfsemi
félagsins sem og annarra harmonikufélaga á land-
inu, sem eru fjölmörg.
Markmið Harmonikufélags Reykjavíkur hefur frá
upphafi verið að glæða áhuga fólks á harmonik-
unni og þeim tónlistararfi sem henni sem hljóðfæri
fylgir. Á umliðnum 20 árum hefur félagið fylgt
markmiðum sínum ötullega fram meðal annars
með fjölbreyttu tónleikahaldi hérlendis og þátttöku
í tónleikahaldi og menningarhátíðum í öðrum
löndum.
Þess má geta að þeir félagar leika einnig fyrir
dansi í Húnabúð annað kvöld.
Tveir með harmonikur
Námsflokkar Hafnarfjarðar
Miðstöð símenntunar
Gospelnámskeið
Frábært tækifæri fyrir þá sem vilja taka
þátt í lifandi söng og tónlist!
Óskar Einarsson, tónlistarstjóri Fíladelfíukirkjunnar
í Reykjavík ásamt Hrönn Svansdóttur, söngkonu og
leiðtoga tónlistarstarfs Fíladelfíu.
Föstudagur 10. mars kl. 17.00-21.00
Laugardagur 11. mars kl. 10.00-16.00
Sunnudagur 12. mars kl. 10.00-15.00
Þetta námskeið hentar öllum, jafnt byrjendum sem
lengra komnum, sem langar að kynna sér og prófa að
syngja í gospelkór undir styrkri handleiðslu reynds
tónlistarmanns og kórstjórnanda. Námskeiðið er í
samstarfi við Hafnarfjarðarkirkju og samanstendur af
æfingum og tónleikum í kirkjunni. Ekkert aldurstakmark
en börn verða að vera í fylgd með fullorðnum.
Skráning í síma 585-5860
menning@frettabladid.is
> Ekki missa af ...
... Himnaríki Árna
Ibsen, sem nú er sýnt í
Hafnarfjarðarleikhúsinu.
Sýningum lýkur í þessum
mánuði.
... óperunni Öskubusku
eftir Rossini sem sýnd er
í Íslensku óperunni með
Sesselju Kristjánsdóttur í
aðalhlutverki. Aðeins þrjár
sýningar eru eftir.
... Talaðu við mig, sýning-
um Íslenska dansflokksins
í Borgarleikhúsinu á nýjum
verkum eftir Rui Horta og
Didy Veldman.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
MARS
27 28 1 2 3 4 5
Fimmtudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Tveir margverðlaun-
aðir harmonikuleikarar, Lars
Karlsson frá Svíþjóð og Øivind
Farmen frá Noregi, koma
fram á tónleikum í Salnum í
Kópavogi í tilefni af 20 ára afmæli
Harmonikufélags Reykjavíkur.
21.00 Þórir heldur tónleika á
Kaffi Vín, Laugavegi 73, einn og
óstuddur með gítarinn. Frítt inn.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.05 Ken Farø heldur fyrirlest-
ur á dönsku um samanburð á
orðatiltækjum í ólíkum málum
á vegum Stofnunar Vigdísar Finn-
bogadóttur í Lögbergi, stofu 102.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.
is ekki síðar en sólarhring fyrir
birtingu.