Fréttablaðið - 02.03.2006, Side 80
2. mars 2006 FIMMTUDAGUR40
bio@frettabladid.is
Vinningar verða afhentir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið.
Frumsýnd 3. mars
Sendu SMS skeytið
JA PPF á númerið 1900
og þú gætir unnið miða fyrir tvo.
Vinningar eru:
Bíómiðar fyrir 2, DVD myndir,
Tölvuleikir, Varningur tengdur myndinni,
Myndavélar og margt fleira
Olíuheimurinn er spilltur,
undirlagður af mönnum
sem svífast einskis og
studdur af vestrænum yfir-
völdum sem vilja fyrir alla
muni halda sínum áhrifum
á mikilvægum svæðum.
Svona lýsir kvikmyndin
Syriana baráttunni um
olíuna.
Það þarf ekki annað en að horfa til
ástandsins í Mið-Austurlöndum til
að skilja hversu mikilvægur olíu-
iðnaðurinn er. Vesturveldin hafa
árum saman reynt að halda
„sínum“ mönnum við völdin og er
innrásin í Írak kannski lýsandi
dæmi um hversu miklu hinn vest-
ræni heimur er tilbúinn að fórna
fyrir svarta gullið. Hugmyndin er
komin frá bókinni See No Evil
eftir Robert Baer en hann hefur
vakið athygli fyrir bækur sínar
um vafasamar aðferðir CIA,
bandarísku leyniþjónustunnar.
Handritið að Syriana er byggt
upp á formúlu sem nýtur mikilla
vinsælda meðal höfunda í Holly-
wood. Margir muna eflaust eftir
því þegar Robert Altman blandaði
saman mörgum litlum smásögum
í Short Cuts en hún fjallaði um líf
„venjulegra“ íbúa Los Angeles
sem höfðu áhrif á líf hver annars
án þess að vita af því. Kvikmyndin
Magnolia fetaði fótspor Altmans
árið 1999 en þá fléttaði Paul Thom-
as Anderson lífi nokkurra íbúa í
sömu borg saman með eftirminni-
legum hætti. Syriana er á sömu
slóðum, segir margar sögur þar
sem hver og ein er lítið brot í stóru
púsluspili.
Meðal þeirra sem kvikmynda-
húsagestir fá að fylgjast með er
Nasir prins sem hefur ákveðið að
afturkalla leyfi bandaríska olíu-
risans Connex og leyft kínversk-
um aðilum að bora eftir gasi í
þeirra stað. Þetta veldur mikilli
spennu milli Bandaríkjanna og
hins óþekkta olíuríkis en á sama
tíma fær lítið fyrirtæki hins vegar
einkaleyfi í Kasakstan og það
kveikir áhugann hjá Connex á fyr-
irtækinu. Þessi flétta teygir anga
sína til Washington þar sem sam-
þykki þarf fyrir samrunanum. Á
sama tíma bíður CIA-útsendarinn
Bob Barnes eftir því að komast á
eftirlaun. Hann sér jafnvel fram á
að geta eytt síðustu stundum
sínum innan stofnunarinnar fyrir
framan skrifborð. Hann trúir því
hins vegar að starf sitt felist í að
gera Bandaríkin að öruggara landi
og þegar honum er lofuð stöðu-
hækkun fyrir næsta verkefni
getur Barnes ekki skorast undan.
Það fer hins vegar út um þúfur en
Barnes grunar að ekki sé allt með
felldu.
Það er handritshöfundurinn
Stephen Gaghan sem hér reynir
fyrir sér í leikstjórastólnum en
hann hlaut einmitt Óskarinn fyrir
handrit sitt að Traffic. Hann hefur
ekki þurft að kvíða neinu því
meðal framleiðanda er Steven
Soderbergh en hann leikstýrði ein-
mitt Traffic. George Clooney og
Matt Damon eru í helstu hlutverk-
um en meðal annarra leikara má
nefna Chris Cooper, William Hurt
og Amanda Peet. - fgg
BOB BARNES Er falið að drepa Nasir prins en þegar verkefnið fer út um þúfur áttar hann sig
á því að ekki er allt sem sýnist.
Hið dýrmæta svarta gull
Hinn heimsfrægi knattspyrnu-
þjálfari Yves Gluant hefur nýver-
ið leitt landslið Frakka til sigurs
gegn Kínverjum í knattspyrnu. Á
meðan Gluant baðar sig í frægðar-
ljómanum er hann skotinn með
eiturör og stórum bleikum dem-
anti, sem gengur undir nafninu
Bleiki pardusinn, er stolið. Málið
vekur samstundis mikla athygli
og fjölmiðlasirkus er í uppsiglingu
en franska lögreglan verst allra
frétta.
Lögregluforinginn Dreyfus
ákveður að leysa málið sjálfur
enda gæti hann hlotið heiðursorðu
fyrir vikið. Til að slá ryki í augu
þeirra sem fylgjast með gangi
mála fær hann lögreglumanninn
Clouseau til að villa um fyrir
múgnum enda þekktur fyrir
klunnaskap sinn og væri líklegri
til að fremja glæp en að leysa
hann. Seinheppni Clouseau leiðir
hann þó á slóð þjófsins, Dreyfus
til mikilla ama.
Steve Martin bregður sér hér í
gervi lögreglumannsins franska
sem Peter Sellers gerði ódauðleg-
an í upphafi sjöunda áratugarins.
Reyndar átti Peter Ustinov að
leika klaufabárðinn en Bleiki par-
dusinn var á sínum tíma upphaf-
lega hugsaður í kringum stór-
stirnið David Niven. Sellers fékk
hlutverkið hins vegar þegar Ustin-
ov hafnaði því og skilaði einhverj-
um besta gamanleik sem sést
hefur á hvíta tjaldinu.
MARTIN OG JEAN RENO Þrátt fyrir að hafa farið beint á toppinn í Bandaríkjunum þegar hún
var frumsýnd voru gagnrýnendur mishrifnir.
Clouseau snýr aftur
Chris Wilton er ungur maður á upp-
leið. Hann er giftur hinni saklausu
Chloe Hewett Wilton en er haldinn
blindri metnaðargirni og svífst ein-
skis til að fá sínu framgengt. Þegar
bandaríska stúlkan Nola Rice
kemur í bæinn verður Wilton
umsvifalaust ástfanginn af henni
en neyðist í kjölfarið að gera upp á
milli kvennanna í lífi sínu með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Það er bandaríski sérvitringur-
inn Woody Allen sem bæði leik-
stýrir og skrifar handritið að þess-
ari ástarsögu sem gerist öll á
Bretlandseyjum en ekki í New
York eins og flestar kvikmyndir
Allens. Myndin er því söguleg fyrir
þær sakir að þetta er fyrsta mynd
leikstjórans sem ekki er framleidd
í Bandaríkjunum. Allen hefur átt
erfitt uppdráttar í heimalandi sínu
og svo virðist sem landar hans hafi
lítinn áhuga á verkum hans. Hann
nýtur hins vegar enn mikillar virð-
ingar í Evrópu og sækist því í
síauknum mæli þangað.
Scarlett Johansson leikur banda-
rísku stúlkuna Nolu Rice. Scarlett
sló fyrst í gegn með kvikmyndinni
The Horse Whisperer sem Robert
Redford gerði. Þeirri velgengni
fylgdi hún eftir með kvikmynd
Coen-bræðra The Man Who Wasn‘t
There. Örlög hennar voru endan-
lega ráðin þegar hún sannaði sig
sem alvöruleikkona í Lost in Trans-
lation eftir Sofiu Coppola. Scarlett
leikur aðalhlutverkið í næstu mynd
Allens, Scoop, en hún hélt vart
vatni yfir samstarfinu við leik-
stjórann sérlundaða.
RICE OG WILTON Hin forboðna ást þeirra á eftir að reynast þeim dýrkeypt þegar kemur að
skuldadögum.
Það besta frá Allen?
Steve Martin, Dan Aykroyd og Chevy
Chase eiga eitt sameiginlegt: þeir eru
fallnar stjörnur. Í kvikmyndinni Three
Amigos var Martin ásamt Chase og
Martin Short sparkað út úr kvikmynda-
veri vegna þess að þeir voru liðin tíð.
Þótt það hljómi kaldhæðnislega þá
eru þetta einmitt örlög þeirra núna.
Á níunda áratugnum og við upphaf
þess tíunda mátti vart fara með gam-
anmál án þess að þeir þrír ættu þar
hlut að máli.
Það er ekkert eitt sem olli því að
stjörnuhrap þeirra varð svona mikið.
Eftirspurnin eftir kímnigáfu félaganna
varð einfaldlega minni vegna þess að
nýir menn, með ferskar hugmyndir
um hvernig mætti skemmta lýðnum,
ruddu sér leið inn í afþreyingariðnað-
inn. Martin og félagar stóðu álengdar
og horfðu á konungdæmi sitt falla
í hendur yngri manna. Eftir standa
nokkrar eftirminnilegar persónur sem
enn kitla hláturtaugarnar.
Martin hóf feril sinn með uppi-
standi og komst fljótlega að í gam-
anþáttum. Hann sló í gegn með sem
hálfvitinn Navin R. Johnson sem hélt
að hann væri svartur þar til fjölskyldan
ljóstraði upp leyndarmálinu mikla. Í
kjölfarið fylgdu myndir á borð við The
Man with Two Brains og Lonely Guy
sem allar rökuðu dollurum í kassann.
Nútímaútfærslan af Cyrano De Berger-
ac í kvikmyndinni Roxanne varð met-
sölumynd og frægð Martins minnkaði
ekki með myndum á borð við Planes,
Trains & Automobiles, Dirty Rotten
Scoundrels að ógleymdri Parenthood.
Síðan þá hefur hins vegar jafnt og þétt
hallað undan fæti hjá leikaranum.
Á síðustu árum hefur Steve Mart-
in varla gert neitt annað en að pirra
aðdáendur sína með afspyrnulélegum
myndum en þegar fram líða stundir
getur hann huggað sig við þá stað-
reynd að hans verður minnst sem einn
af mestu gamanleikurum sögunnar.
Fallin stjarna
STEVE MARTIN Á að baki margar ógleym-
anlegar persónur en hefur á undanförnum
árum pirrað aðdáendur sína með afspyrnu-
lélegum myndum.
And I really don‘t care for the
way your company left me in
the middle of fucking nowhere
with fucking keys to a fucking
car that isn‘t fucking there.
And I really didn‘t care to
fucking walk down a fucking
highway and across a fucking
runway to get back here to
have you smile at my fucking
face. I want a fucking car
RIGHT FUCKING NOW!
Steve Martin lætur bílaleiguna heyra það í
Planes, Trains & Automobiles frá árinu 1987.
> Ekki missa af ...
Það er alltaf fagnaðarefni þegar íslensk
kvikmynd er sýnd í kvikmyndahúsum
borgarinnar. Það er þó sorglegt að sjá
hversu litla aðsókn þessar myndir fá
miðað við þá vinnu sem í þær hefur
verið lagt. Blóðbönd sýnir að íslenskir
kvikmyndagerðarmenn eru smám
saman að ná tökum á mikilvægum
atriðum kvikmyndarinnar og þurfa gestir
kvikmyndahúsanna ekki lengur að kvíða
því hvort þeir heyri í leikaranum eða
ekki. Blóðbönd er hugljúf mynd með
traustum leik sem ætti engan að svíkja.