Fréttablaðið - 07.03.2006, Qupperneq 20
[ ]
SÓMABAKKAR
Nánari uppl‡singar á somi.is
*Gildir a›eins ef panta› er fyrir meira en 3.000 kr.
PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING*
Með Vivag Control
sjálfsprófinu má sjá
hvort óþægindi
í leggöngum stafi
af of háu sýustigi.
Fáðu frekari upplýsingar
í næsta apóteki.
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
3
60
.0
56
Betra úthald
Góð næring • Brennsluaukandi
Útsölustaðir m.a: Yggdrasill, Fjarðarkaup, Maður lifandi í Borgartúni og Hæðarsmára,
Lífsins Lind í Hagkaupum, Lyfjaval í Mjódd og Hæðarsmára og Lyfja á Selfossi.
S: 462-1889 • heilsuhorn@simnet.is • www.simnet.is/heilsuhorn
Póstsendum
um land allt
vinnur gegn fílapenslum og bólum.
Bindur bakteríur og húðflögur og dregur þær til sín.
Silicol Skin
Þannig getur þú haldið húð
þinni mjúkri og hreinni og
komið í veg fyrir bólur.
Fæst í apótekum.
Heitustu vörurnar
Verslun Vítamin.is - Ármúla 32
s. 544 8000 • Opið mán-fös 10-18 & laug 11-15
Verslun Vítamin.is - Gránufélagsgötu 4 (JMJ Húsi)
s. 466 2100.
Opið mán-fös 16-18.30 & laug 11-13.
Sundferðir geta verið mjög hressandi á morgnana. Þegar farið
er að birta fyrr er alveg tilvalið að fara í sundlaugina fyrir vinnu eða
skóla og synda nokkrar ferðir.
Landlæknir gefur út leiðbein-
ingar til varnar vöggudauða
ungbarna.
Nýjar rannsóknir benda til þess að
notkun snuðs á svefntíma dragi úr
líkum á vöggudauða. Því er mælt
með henni í nýjum leiðbeiningum
sem landlæknir hefur sent frá sér
um aðgerðir til varnar skyndidauða
ungbarna. Síðast voru slíkar leið-
beiningar gefnar út árið 1994, en í
ljósi nýrrar þekkingar hafa þær nú
verið endurskoðaðar og sendar öllu
heilbrigðisstarfsfólki sem annast
ungbarnavernd.
Skyndidauði ungbarna, öðru
nafni vöggudauði, er skilgreindur
þannig að ungbarn, oftast á aldrin-
um 2ja-4ra mánaða, deyr í svefni,
án undanfarandi veikinda, og vönd-
uð krufning með viðeigandi rann-
sóknum leiðir ekki í ljós dánaror-
sök. Tíðni vöggudauða hér á landi
hefur verið með því lægsta sem
þekkist í nálægum löndum.
Meginbreytingin frá leiðbein-
ingunum 1994 er sú að í ljósi ofan-
nefndra rannsókna er nú mælt með
notkun snuðs á svefntíma ungbarna,
þó ekki fyrr en brjóstagjöf er komin
vel á veg, enda er brjóstagjöfin
einnig talin vera mikilvæg vörn
gegn vöggudauða.
Aðrar breytingar eru að aukin
áhersla er nú lögð á að ungbörn sofi
á bakinu. Ef það reynist af einhverj-
um ástæðum erfitt er mælt með að
því að gæta þess að börnin geti ekki
oltið á grúfu. Að öðru leyti er for-
eldrum ráðlagt að ekki sé reykt á
heimilum ungbarna eða þar sem
þau dvelja, að ungbörn sofi jafnan í
eigin rúmi og séu höfð á brjósti ef
þess er nokkur kostur. Þá skal forð-
ast að nota kodda undir höfuð ung-
barna og að ofdúða þau.
(Af www.lydheilsustod.is)
Notkun snuðs á svefntíma
minnkar líkur á vöggudauða
,,Meðgöngumagadans hefur verið
stundaður í Austurlöndum nær í
mörg hundruð ár. Konurnar dansa
frá því þær eru litlar og þær dansa
sig í gegnum meðgönguna, fæð-
inguna og eftir fæðingu,“ segir
Arndís Mogensen, hjúkrunarfræð-
ingur og ljósmóðurnemi, sem
kennir þennan dans í Magadans-
húsinu í Ármúla.
Flestar konurnar hjá Arndísi
eru rúmlega hálfnaðar með með-
gönguna og ein þeirra er komin 39
vikur á leið. Magadansinn styrkir
og liðkar grindina og líkamann
almennt. ,,Konur eru oft mjög stíf-
ar í baki en þetta liðkar allt upp,
ég fann það sjálf eftir að ég byrj-
aði að dansa á fullu. Þetta er engin
töfralausn en er þó talin geta
hjálpað alveg helling við fæðing-
una. Dansinn auðveldar barninu
að snúa kollinum rétt ofan í grind-
ina og grindarbotnsvöðvarnir
þjálfast svo konur eiga auðveld-
ara með að þrýsta barninu út,“
segir Arndís og bætir því við að
dansinn hafi einnig hjálpað konum
að ná sér fyrr eftir fæðingu.
Þó hugleiðsla sé ekki kennd í
meðgöngumagadansi er áhersla
lögð á slökun. ,,Hreyfingarnar eru
mun rólegri en í venjulegum maga-
dansi og við reynum að ná slökun
út úr sjálfum dansinum. Einnig er
tónlistin róleg og falleg og í lok
tímans er slakað og teygt vel á.“
Það kemur sér vel fyrir dans-
nemendurna að Arndís er að læra
ljósmóðurfræði. Hún getur því
gefið þeim ýmiss konar ráðlegg-
ingar og séð til þess að ekki sé
verið að reyna mikið á viss lík-
amssvæði. ,,Ég hef rosalega
gaman að þessu og vona bara að
þetta sé komið til að vera,“ segir
Arndís að lokum.
mariathora@frettabladid.is
Dansað gegnum fæðingu
Arndís Mogensen kennir ófrískum konum magadans. Dansinn styrkir og liðkar grindarbotninn og
getur hjálpað konum í fæðingu.
Arndís Mogensen sameinar áhuga á dansi og ljósmóðurfræðum í meðgöngumagadansi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Snuddan er ekki bara
róandi. Hún getur líka
skipt sköpum á fyrstu
mánuðum ævinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Næstu námskeið hjá Maður lifandi
07. mars 2006 Þarmaflóran og heilbrigði.
Verð 1.000 kr.
Helgi Valdimarsson prófessor kl17.30-19.00
08. mars 2006 10 grunnreglur Verð 6.900
Þorbjörg Hafsteinsdóttir kl 19.00-23.00
14. mars 2006 Hvað heldur þú að þú sért?
Verð 1.000 kr.
Þorvaldur Þorsteinsson kl 18.00-19.30
15. mars 2006 Heilbrigði og hamingja
Verð 2.900 kr.
Benedikta Jónsdóttir. 18.30-22.00