Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.03.2006, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 07.03.2006, Qupperneq 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 TAKTU NÆSTA SKREF F í t o n / S Í A F I 0 1 5 1 2 8 FRJÁLS ÍBÚ‹ALÁN Okkar markmi› er a› veita framúrskarandi fljónustu á sanngjörnum kjörum. Komdu til okkar í Lágmúla 6, hringdu í 540 5000 e›a sendu okkur póst á frjalsi@frjalsi.is. Vi› viljum a› heima sé best! VEXTIR 4,35% ���������� ��������������� ������������� Íslenskir ráðsmenn - ráðnir og kjörnir til að reka heimilið, rækta garðinn, matbúa möguleik- ana, hvetja heimilisfólkið til dáða og gera því kleift að sinna hugðar- efnum sínum af metnaði og krafti kunna misvel til heimilisverka. Ál og meira ál er lausnin - einföld eins og skyndibiti og rennur ljúf- lega ofan í langsvelta landsbyggð- ina sem búið er að sjúga lífsgleð- ina úr með kvótabraski og vögguvísum um möguleikaskort- inn. FÖRUFÓLK á betlibrók í skýja- kljúfum Nýju Jórvíkur kemur heim og hótar lýðnum. Hótar honum að allt fari fjandans til, allir verði atvinnulausir og éti það sem úti frýs ef ekki verði fleiri álver, hótar að ef álrisarnir fái ekki það sem þeir vilja - stækkun og stuð - þá fari þeir og skilji eftir sig rjúk- andi rúst, hótar að ef ekki verði virkjað fyrir stóriðju á umhverfis- vænu paradísareyjunni í norðri muni aðrir jarðarbúar grafa heimsbyggðina í kolaskít. Og þá hljómar þetta svona: Þeir sem ekki vilja álvæða um allar trissur bera ábyrgð á stórfelldri mengun um víða veröld um alla framtíð, bera ábyrgð á því að álversmógúlarnir fari í fússi af því að þeir fengu ekki nákvæmlega það sem þeir vildu, bera ábyrgð á að hér verði allir komnir í moldarkofa með hor út á kinn að naga skósóla í hallæri innan örfárra ára ef ekki verði ál og meira ál. HVURSLAGS pólitík er þetta eig- inlega? spyrja einhverjir og slá sér á lær. Ætlast fólk til þess að vera tekið alvarlega með svona röksemdafærslu? Já, það ætlast til þess og verður að ósk sinni. Ein- faldur og hraðsoðinn hræðsluáróð- ur er eitt af öflugustu vopnum ver- aldarsögunnar þegar halda á sauðsvörtum í skefjum á milli kosninga - næstum jafn öflugt vopn og hótanir. Komið með aðrar hugmyndir, sagði maður að norðan um daginn. Það er núna sem við viljum fá þær. Við hlið hans sat sveitungi sem byggir atvinnu- starfsemi sína á einni lítilli hug- mynd um syndandi hvali í sjó og kom plássinu á kortið. LITLA íslenska fjölskyldan á hjara veraldar leggur nú af stað í lang- ferð. Nestið er ekki fjölbreytt í bakpokanum - ál og meira ál - og leiðsögumennirnir í ferðinni verða erlendir álrisar. Í pokanum eru líka vonir um undanþágur og auka- skammta af mengunarkvótanum frá Kyoto. Hvurslags eigin- lega er þetta? AUGL†SINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.