Fréttablaðið - 07.03.2006, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 07.03.2006, Blaðsíða 31
ÞRIÐJUDAGUR 7. mars 2006 19 KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 6.489 +0,37% Fjöldi viðskipta: 429 Velta: 4.232 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 57,00 +0,70% ... Alfesca 3,99 -1,20% ... Atorka 6,05 +0,00% ... Bakkavör 51,80 +0,00% ... Dagsbrún 6,83 +1,90% ... FL Group 25,90 -0,80% ... Flaga 3,80 -1,30% ... Íslandsbanki 20,20 +0,00% ... KB banki 931,00 +0,30% ... Kögun 66,50 +0,00% ... Landsbankinn 28,70 +0,70% ... Marel 68,30 +0,00% ... Mosaic Fashions 17,70 +0,00% ... Straumur-Burðarás 19,0 +1,60% ... Össur 111,00 -0,50% MESTA HÆKKUN Icelandic Group 3,38% Dagsbrún 1,94% Straum-Burðarás 1,57% MESTA LÆKKUN Vinnslustöðin 4,76% Flaga 1,30% Alfesca 1,24% Umsjón: nánar á visir.is Láttu þá vinna með þér Námskeiðið veitir heildstæða yfirsýn yfir fjármálin. Meðal annars er fjallað um sparnað, húsnæðiskaup, gengisáhættu, tryggingar, fjárfestingar í verðbréfum og lífeyrissparnað. Leitast verður við að veita ráðleggingar og innsýn í flest það sem snýr að fjármálum fjölskyldunnar. Leiðbeinandi er Þór Clausen, viðskiptafræðingur og forstöðumaður Símenntar Háskólans í Reykjavík, og Gunnar Baldvinsson, forstöðumaður lífeyrissviðs Íslandsbanka. Námskeiðið stendur yfir í þrjár klukkustundir. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Skráðu þig á isb.is eða í síma 599 6350. Fyrstir koma – fyrstir fá. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 4 1 3 7 Hvaða tími hentar þér? Þriðjudagur 7. mars kl. 16–19 Fimmtudagur 9. mars kl. 16–19 Námskeiðin eru haldin í Háskólanum í Reykjavík Íslandsbanki og HR bjóða þér á fjármálanámskeiðið Peningarnir þínir Hagnaður af rekstri Landsvirkj- unar nam tæpum 6,29 milljörðum króna á síðasta ári en var 7,19 milljarðar króna árið 2004. Í árs- lok námu heildareignir fyrirtæk- isins 182 milljörðum króna og var eiginfjárhlutfall 31,9 prósent. Rekstrarhagnaður hækkaði um rúman milljarð króna miðað við árið 2004. Afskriftir eru 443 millj- ónum krónum lægri en árið á undan en fyrirtækið hefur í sam- ræmi við lög um ársreikninga og settar reikningsskilareglur breytt um aðferð við meðferð á undir- búningskostnaði virkjana í árs- reikningi. ■ Minni hagnaður Landsvirkjunar Hagnaður MP fjárfestingarbanka var 613 milljónir króna árið 2005 samanborið við rúman einn millj- arð ári áður. Var arðsemi eiginfjár 34 prósent í fyrra. Hreinar vaxtatekjur voru nei- kvæðar um tæpar níu milljónir króna en aðrar rekstrartekjur námu 971 milljón. Hreinar rekstrartekjur voru því um 963 milljónir króna og drógust saman um þriðjung milli ára. Munar mestu að gengishagn- aður dróst saman um 670 milljónir króna. Rekstrarkostnaður var 288 milljónir og jókst um tólf prósent. Eignir bankans voru 25 millj- arðar í árslok og hækkuðu um 105 prósent. Eigið fé nam 3.347 millj- ónum. Stærstu eigendur bankans eru Margeir Pétursson og félög í eigu hans með 31 prósent hlutafjár, bræðurnir Sigurður Gísli og Jón Pálmasynir eiga samanlagt 27 pró- sent og SPV um fjórtán prósent. - eþa Hagnaður MP dregst saman FRÁ FUNDI STJÓRNAR STRAUMS - BURÐARÁSS Magnús Kristinsson styrkir stöðu sína í Straumi eftir að hafa óvænt verið vikið úr sæti varaformanns. Magnús Kristinsson, sem nýverið var óvænt felldur úr embætti varaformanns Straums- Burðaráss, hefur styrkt stöðu sína með kaupum á 35,5 milljón hlutum í félaginu fyrir tæpar 588 milljón- ir króna. Félög í eigu Magnúsar eiga eftir kaupin rúmlega fjórtán prósenta hlut í Straumi - Burðarási. - hhs Styrkir stöðu sína í Straumi Á aðalfundi SPRON var sam- þykkt tillaga frá stjórn SPRON um að hún fái heimild til að auka stofnfé um allt að 130 prósent. Innborgað stofnfé var um 3.961 milljónir í árslok 2005 en gæti farið í 9,1 milljarð nýti stjórn heimild sína að fullu. Á síðasta ári var stofnfé sparisjóðsins sexfaldað. Hildur Petersen stjórnarformaður vék máli sínu að stofnfjármarkaði SPRON, sem hefur verið starfræktur frá 2004, en yfir 33 þúsund bréf hafa skipt um hendur frá stofn- un hans. „Ég leyfi mér að fullyrða að hér hafi vel tekist til. Strax í upphafi urðu mikil viðskipti með stofnfjárbréf og gátu nú þeir stofnfjáreigendur sem það vildu selt sín bréf og aðrir sem hug höfðu á að fjárfesta í stofn- fjárbréfum gert það,“ sagði Hildur. Í máli Hildar kom einnig fram að arðsemi eiginfjár hjá SPRON hefði á síðasta ári verið sú mesta meðal lánastofnana en arðsemin var yfir 61 prósenti. Raunávöxtun af nafnverði stofn- fjárbréfa SPRON nam 55 pró- sentum á síðasta ári. Samþykkt var að greiða fimmtíu prósenta arð til eigenda auk þess sem stofnfé var hækkað um fimm prósent. Stjórn sparisjóðsins var endurkjörin. - eþa Geta tvöfaldað stofnfé SPRON Raunávöxtun nafnverðs stofnfjárbréfa í SPRON 55 prósent á síðasta ári. HILDUR PETERSEN, STJÓRNARFORMAÐUR SPRON Viðskipti með stofnfé sparisjóðsins hafa tekist vel og verið blómleg.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.